Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 28. MARS 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL MADE IN DENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig. Sóttkví er stutt sjónvarpsmynd eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur sem gerist í Reykjavík í mars 2020, í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins. Myndin er um hálf klukku- stund að lengd og er á dagskrá Ríkissjónvarpsins kl. 20.05 á páskadagskvöld. Í myndinni er hermt af vinkonunum Lóu, Heklu og Fjólu sem þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví og sækja styrk og félags- skap hver til annarrar með reglulegum fjarfundum á meðan. Auk innilokunarinnar er hver og ein að eiga við flóknar og á tíðum skoplegar aðstæður í einkalífi sínu sem magnast upp við einangrun og álag sóttkvíarinnar. Aðalhlutverk leika Elma Lísa Gunnarsdóttir, Birgitta Birgis- dóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Hilmar Guðjónsson en leik- stjóri er Reynir Lyngdal. Birgitta Birgisdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir leika í Sóttkví, ásamt Hilmari Guðjónssyni. Stilla Undir sóttkvíarálagi Birna Anna Björnsdóttir og Auður Jónsdóttir skrifuðu handrit myndarinnar í sameiningu. Morgunblaðið/Ásdís Ríkissjónvarpið sýnir stuttu sjónvarps- myndina Sóttkví að kvöldi páskadags. Víkverja var létt í pistli sínum sem birtist í Morgunblaðinu á þessum degi fyrir sjötíu árum, 28. mars 1951. Þar stóð: „Margir munu vera fegnir því, að páska- helgin er liðin hjá í þetta sinn. Páskahaldið er þannig hjá okkur á Íslandi, að hvergi í heiminum mun önnur eins deyfð og dauð- ans ró ríkja í jafn marga daga. Alt er lokað og læst dögum sam- an. Dag eftir dag má ekki sýna kvikmyndir, leikrit, halda dans- leiki nje aðrar opinberar sam- komur, hvort sem er til fróðleiks eða skemtunar.“ Og Víkverji var ekki hættur: „Upphaflega mun dymbilvikan hafa verið róleg af trúarlegum ástæðum, en því miður er ástæðan ekki sú sama lengur. Má vissulega til sansvegar færa, að páskahelgin hafi verið gerð að skinhelgidögum hjer á landi.“ Hitt var annað mál, að dómi Víkverja, að vinnandi fólk og þá ekki síst skrifstofumenn, sem lít- il tækifæri fengu til að vera úti, fögnuðu páskafríinu og notuðu það vel flestir, þegar vel viðraði. „Páskahelgin er vel þegið vetrarfrí, enda gengur það næst sjálfu sumarleyfinu hvað tíma- lengdina snertir.“ GAMLA FRÉTTIN Deyfð og dauðans ró Ekki fylgir sögunni hvernig þessir ágætu páskaungar tóku almennum lok- unum um páskana. Ætli hafi verið eins þungt í þeim og Víkverja karlinum? Morgunblaðið/Styrmir Kári ÞRÍFARAR VIKUNNAR Andri Yrkill Valsson fréttamaður á RÚV Gary Neville sparkskýrandi Júlíus Andri Þórðarson háskólanemi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.