Fréttablaðið - 07.09.2021, Blaðsíða 6
Það er hálf lygilegt að
heyra þessa tölu.
Óskar Reykdalsson.
bth@frettabladid.is
DÓMSMÁL Skúli Gunnar Sigfússon,
gjarnan kenndur við Subway, hefur
höfðað mál gegn endurskoðenda-
skrifstofunni KPMG. Hann höfðar
einnig mál gegn fyrirtækinu Logos
til vara, lögmannsstofunni sem
áður gætti hagsmuna Skúla í máli
sem tapaðist fyrir Hæstarétti.
„Þar er fallinn endanlegur dómur
sem ég er ósammála. En hann gildir
því miður og þess vegna verð ég
að grípa til þessara úrræða,“ segir
Skúli.
Í október var Skúli dæmdur til að
greiða hálfan milljarð króna með
dráttarvöxtum í Hæstarétti þegar
fyrirtæki hans, Sjöstjarnan, þurfti
að þola riftun á ráðstöfun fasteignar
úr félaginu Eggert Kristjánsson hf.
Að sögn lögmanns Skúla, Konráðs
Jónssonar, sem sækir nýja málið,
telur Skúli að ekki hafi verið rétt
staðið að ráðstöfun þessara fast-
eigna á sínum tíma. Logos sé stefnt
til vara ef KPMG verði sýknað,
meðal annars á þeim grundvelli að
krafan á hendur því sé fyrnd. Með
öðrum orðum að lögmannsstofan
sem Skúli réð til starfa áður til að
verja sig hefði átt að stefna KPMG
áður en málið fyrndist.
Málareksturinn, sem lauk með
Hæstaréttardóminum á árinu,
vakti mikla athygli og stóð lengi
yfir. Skúli hefur meðal annars gagn-
rýnt vinfengi forseta Hæstaréttar
við Svein Andra Sveinsson sem var
þrotabússtjóri í dómsmálinu. ■
Skúli í Subway stefnir KPMG í kjölfar tapaðs dómsmáls
Fyrrverandi lögmanns-
stofu Skúla er stefnt
til vara. Tekist er á um
riftanir og fyrningu í
fasteignamáli.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SUÐURLAND Fyrsti kynningar-
fundurinn af fimm um sameiningu
sveitarfélaga á Suðurlandi var hald-
inn í félagsheimilinu Hvoli á Hvols-
velli í gærkvöld. Verða þeir svo koll
af kolli í sveitarfélögunum fimm
sem kjósa um sameiningu samfara
alþingiskosningunum 25. septem-
ber. Það er Rangárþingi eystra og
ytra, Mýrdalshreppi, Skaftárhreppi
og Ásahreppi.
„Sameiningarmálin hafa því
miður verið of lítið í umræðunni
hérna í sveitarfélögunum,“ sagði
Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri
Rangárþings eystra, fyrir fund-
inn í gær. Á honum var farið yfir
kynningarefnið um sameininguna
og opnað fyrir fyrirspurnir og
umræður. Öllum fundunum verður
jafnframt streymt á netinu.
„Ég hef mjög litla tilfinningu
fyrir því hvernig kosningin muni
fara,“ segir Lilja. „Ég bind vonir við
að fundirnir verði til þess að fólk
kafi dýpra í efnið og taki afstöðu á
grundvelli þekkingar.“
Þó að umræðurnar hingað til
hafi ekki verið áberandi og áhug-
inn mætti vera meiri eru málefni
í deiglunni, einkum samgöngu-
málin. „Samgöngumálin skipta
miklu því þetta yrði víðfeðmasta
sveitarfélag landsins,“ segir Lilja.
Myndi það slá hinu nýstofnaða
Múlaþingi við.
Næsti fundur er fimmtudaginn
9. september í Leikskálum í Vík.
Mánudaginn 13. september verður
fundað í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjar-
klaustri, þriðjudaginn 14. septem-
ber á Laugalandi í Ásahreppi og
miðvikudaginn 15. september í
íþróttahúsinu á Hellu.
Verði sameiningin samþykkt
mun undirbúningshópur vinna að
henni í vetur og ný sveitarstjórn
taka við eftir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar næstkomandi vor. Sam-
einingin er háð því að meirihluti í
öllum sveitarfélögunum samþykki
hana. ■
Ekki nóg rætt um sameiningarmál á Suðurlandi
Lilja Einarsdótt-
ir, sveitarstjóri
Rangárþings
eystra.
Kosið er um sameiningu á svæðinu hér að neðan
Í gær var milljónasta sýnið
vegna skimunar fyrir kórón-
aveirunni tekið á vegum
heilbrigðisyfirvalda. Eitt slíkt
sýni kostar á bilinu fjögur
til sjö þúsund krónur og er
heildarkostnaðurinn því á
bilinu fjórir til sjö milljarðar.
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 Ákveðinn áfangi í sögu
kórónaveirufaraldursins á Íslandi
náðist í gær þegar milljónasta sýnið
var tekið. Þetta staðfesti Óskar
Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Í upphafi vikunnar höfðu verið
tekin 997 þúsund sýni en undan-
farna daga hafa um eða yfir þrjú
þúsund sýni verið tekin daglega.
Að sögn Óskars kosta sýnin á bilinu
fjögur til sjö þúsund krónur sem
þýðir að tekin hafi verið sýni fyrir
að minnsta kosti fjóra milljarða
króna. Ekki eru þar með talin sýni
sem tekin eru af einkareknum fyrir-
tækjum.
Í upphafi faraldursins var talið að
kostnaður við eitt sýni væri um tíu
þúsund krónur sem myndi þýða að
búið væri að taka fyrir tíu milljarða
króna en Óskar segir það ekki vera
rétta upphæð.
„Hraðgreiningarprófin kosta um
fjögur þúsund og hin prófin, PCR-
prófin, kosta um sjö þúsund,“ segir
Óskar aðspurður um kostnað við
hvert próf. „Við sem heilbrigðis-
stofnun megum ekki rukka meira
en það sem sýnið kostar. Þegar ein-
staklingar fara í hraðgreiningar-
próf á leiðinni úr landi rukkum við
einfaldlega það sem prófið kostar,“
segir hann.
Af þeim 997 þúsundum sýna sem
búðir var að taka um helgina var
stærsti hlutinn tekinn innanlands
eða 599 þúsund sýni. Landamæra-
sýnin eru færri eða tæplega 400
þúsund, þar af 287 þúsund í fyrri
skimun.
Þegar mest lét var 6.441 sýni
tekið, 27. júlí síðastliðinn, stuttu
eftir að fjórða bylgjan hófst með
Delta-af brigðinu.
Óskar tekur undir að það sé örlít-
ið skrýtið að komið sé að þessum
áfanga en segist allt eins eiga von
á því að önnur milljón sýna verði
tekin.
„Það er hálf lygilegt að heyra
þessa tölu,“ segir Óskar og bætir
við: „En á sama tíma eigum við von
á því að taka milljón sýni til við-
bótar. Miðað við alla viðburði sem
eru fram undan og breyttar reglur
um smitgát og að taka alla sem vilja
fara á viðburði í hraðpróf.“ ■
Milljón Covid-19 sýni verið tekin
hér á landi frá upphafi faraldursins
6.441
Um sex og hálft þús-
und sýna var tekið
þann 27. júlí síðast-
liðinn.
birnadrofn@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Árlegur meðalrekstrar-
kostnaður á hvern nemanda í
grunnskólum lækkar um 1,7 pró-
sent á milli mánaða, frá ágúst til
september 2021, samkvæmt upplýs-
ingum á vef Hagstofu Íslands. Áætl-
aður kostnaður á hvern nemanda
í núlíðandi septembermánuði er
2.280.623 krónur.
Í sama mánuði í fyrra var áætlað-
ur meðalrekstrarkostnaður á hvern
nemanda rétt rúmar tvær milljónir
og 38 þúsund. Það er um 107 þúsund
krónum hærri meðalkostnaður en í
september árið 2019. ■
Kostnaður lækkar
milli mánaða
Í upphafi faraldursins voru ýmsar aðferðir notaðar til að taka sýni hjá fólki. Þessi maður fór í sýnatöku í bíl sínum fyrir
utan heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hver grunnskólanemandi kostar
tæplega 2,3 milljónir að meðaltali.
hjorvaro@frettabladid.is
AFGANISTAN Talibanar lýstu í gær
yfir sigri í Panjshir, sem er land-
svæði norðaustur af Kabúl. Svæðið
var fyrir gærdaginn það eina í
Afganistan sem talibanar höfðu
ekki lýst yfir að hafa náð stjórn í.
Hersveitir andstæðinga Talibana
hafa ekki viðurkennt ósigur á svæð-
inu. Ahmad Massoud, leiðtogi Þjóð-
varnarsveitar Afganistan, hvatti til
andspyrnu við valdaráni Talibana
og átaldi þjóðarleiðtoga heims og
alþjóðastofnanirf fyrir að leyfa
þeim að hrifsa völdin í landinu. ■
Talibanar náðu
síðasta svæðinu
Talibanar lýstu yfir sigri í Panjshir
landsvæðinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
hjorvaro@frettabladid.is
ÁSTRALÍA Lögreglan í Nýja Suður-
Wales í Ástralíu fann í gær þriggja
ára dreng, sem hafði verið týndur í
skóglendi í rúma þrjá sólarhringa,
heilan á húfi.
Hvarf drengsins, sem er með ein-
hverfur og mállaus, var rannsakað
sem sakamál. Lögreglumenn komu
auga á hann úr þyrlu í skóginum en
talið er kraftaverk að hann sé á lífi. ■
Kraftaverk að
barn fannst á lífi
6 Fréttir 7. september 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ