Fréttablaðið - 20.08.2021, Blaðsíða 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
„Þegar ég kom í fyrsta sinn í
OsteoStrong í fyrrasumar var
hryggurinn alveg S-laga. Ég er
með mikla hryggskekkju og svo
var hryggjarsúlan líka snúin. Það
var bara myrkur hjá mér; ég var
grenjandi yfir bakinu og gekk öll
skökk. Nú finn ég ekki fyrir því.
Núna er ég mun beinni í baki
þó svo að hryggskekkjan sé enn
til staðar. Með OsteoStrong er
ég búin að byggja upp beinin og
vöðvana og það styður svo vel við
mig,“ segir Þorbjörg.
Aðrir sjá breytingarnar líka
„Það er fallegt þegar fólkið í
kringum mann tekur eftir breyt-
ingunum. Þegar ég gekk á fjöll í
sumar varð ég svo agalega óörugg
með mig því jafnvægið hefur verið
svo lélegt hingað til. Maðurinn
minn var f ljótur að koma mér
á rétta braut og sagði: „Þú þarft
ekkert að hafa áhyggjur, þú kemst
þetta alveg. Jafnvægið er orðið svo
miklu betra eftir OsteoStrong.“ Ég
hef verið að æfa mig fyrir það að
ganga á Lónsöræfi en í þá göngu
hefði mér ekki dottið í hug að fara
áður en ég kynntist OsteoStrong,“
segir Þorbjörg.
Hún segist ekki vera íþrótta-
kona en hafi byrjað að hlaupa
þegar hún varð 49 ára.
„Þá var ein hér í vinnunni
í mastersnámi í mannauðs-
stjórnun. Hún fékk okkur til að
skipta okkur upp í þrjá hópa.
Einn hópurinn átti að hlaupa
og það var hlaupakennsla inni í
því. Annar átti að gera það sem
hann var vanur að gera og þriðji
hópurinn átti að gera ekki neitt.
Ég sagði við stelpurnar: „Ég kann
ekki að hlaupa og get ekki hlaupið.
Ég skal gera þetta, ég skal vera í
hlaupahópnum svo að þið getið
allar hlegið þegar þið horfið á eftir
mér. En eftir þetta verkefni er ég sú
eina sem er enn að hlaupa. Ég fékk
náttúrlega kennslu og það munar
um það. Ég reyndar læt mér nægja
að skokka, en 10 kílómetrar á 62
mínútum er metið mitt,“ greinir
Þorbjörg frá.
Rauðvínsmaraþonið
Þorbjörg sneri sig á ökkla í því
sem hún segir skemmtilegasta
maraþon sem sögur fara af; eða
Rauðvínsmaraþoninu, árið 2018.
„Þá hleypur maður á milli
kastala og smakkar mismunandi
rauðvín á hverjum stað. Ég var
að stíga í gegnum hallarhliðið á
einum stað en sneri mig svo illa
að ég þurfti að hætta í hlaupinu.
Þó gafst ég ekki upp fyrr en 7 kíló-
metrum síðar. Eftir þetta trufluðu
ökklarnir mig en eftir nokkra
mánaða ástundun hjá Osteo Str-
ong finn ég ekki fyrir þeim,“ segir
Þorbjörg og hvetur alla til að skoða
þetta stórskemmtilega hlaup.
Þetta gerir OsteoStrong
OsteoStrong er byltingar-
kennt æfingakerfi sem
styður fólk á öllum aldri til
vaxtar. Meðlimir OsteoStrong
mæta einu sinni í viku og ná
á innan við 10 mínútum að
þétta vöðva, sinar, liðbönd
og bein, bæta árangur og
fyrirbyggja meiðsl.
Flestir geta nýtt sér það sem
OsteoStrong býður upp á,
fólk á öllum aldri óháð líkam-
legri getu.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka líkur á álags-
meiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Lækka langtímablóðsykur
n Auka beinþéttni
Æfingatækin sem iðkendur OsteoStrong nota til að styrkja sig eru fjögur og reyna á hendur, fætur, bak og kvið.
Styrkur skiptir Þorbjörgu miklu máli og þar hjálpar OsteoStrong mikið.Hver æfing í OsteoStrong er gerð aðeins einu sinni af fullu afli.
Í lok æfinga slaka meðlimir OsteoStrong vel á með Pemf-bylgjum.
Jafnvægi
iðkenda Osteo-
Strong bætist
að meðaltali um
77 prósent eftir
aðeins fimm
skipti.
Líka fyrir landsbyggðina
Þorbjörgu þykir mikilvægt að fólk
viti að OsteoStrong sé líka val-
kostur fyrir fólk á landsbyggðinni.
„Í upphafi náði ég að koma
vikulega í einn mánuð og þá varð
ég strax réttari í bakinu og betri í
kroppnum. Eftir það varð ástund-
unin dreifðari en ég náði samt að
upplifa mikla bætingu.“
Að sigra sjálfa sig
Í sumar vann Þorbjörg mikið þrek-
virki fyrir sjálfa sig og hljóp Dyr-
fjallahlaup á Borgarfirði eystri.
„Þar hljóp ég 12,8 kílómetra upp
og niður, upp og niður. Algerlega
geggjað hlaup. Síðustu brekkuna
upp man ég eftir að hugsa: Er ég
að fara þarna upp? Já, já, ég kemst
upp! Það tók mig góðan tíma en
ég komst á endanum í mark. Mín
hugsun er alltaf að eiga nóga orku
til að dansa að kvöldi,“ segir Þor-
björg kát.
Það verður að vera gaman
Þorbjörg hefur í nokkur ár hlaupið
fyrir Alzheimer-samtökin í Reykja-
víkurmaraþoninu.
„Í eitt skiptið þegar ég var að
hlaupa 10 kílómetra fékk ég stein-
völu í skóinn á Ægissíðunni og
náði henni ekki úr. Eftir smá tíma
fann ég að það gengi ekki upp og
var komin með risastórar blöðrur
á fæturna. Þó kláraði ég hlaupið á
hnefanum af sársauka. Eftir að ég
lauk svo hlaupinu tók mig stuttan
tíma að muna að ég ætti gervi-
skinnsplástra heima og kæmist
því samt í háu hælana til að njóta
Menningarnætur um kvöldið.
Svona forgangsraða ég. Það verður
að vera skemmtilegt,“ segir Þor-
björg og hlær.
„OsteoStrong hefur hjálpað mér
og byggt minn líkama þannig upp
að núna get ég gert þetta og haldið
áfram, 58 ára gömul. Fyrir mér er
OsteoStrong og einkaþjálfun hin
gullna blanda. Þegar ég lít fram á
veginn vil ég bara vera flott eldri
kona og þessi blanda gerir mig að
flottri eldri konu. Það að vera sterk
í mínum líkama.“
Fyrir venjulegt fólk
„Það er allt hægt ef maður er
tilbúinn til að fjárfesta í líkaman-
um sínum og heilsu. OsteoStrong
er fyrir alla, líka venjulegt fólk og
hefur boðið mér upp á miklu meiri
uppbyggingu en ég hefði trúað á
svona stuttum tíma,“ segir Þor-
björg og er greinilega að upphugsa
næsta ævintýri. n
OsteoStrong býður upp á frían
prufutíma þar sem fólk getur
kynnst æfingunum og prófað
tækin. OsteoStrong er í Hátúni 12.
Bóka má tíma á osteostrong.is og í
síma 419 9200.
2 kynningarblað 20. ágúst 2021 FÖSTUDAGURHEILSUR ÆKT