Fréttablaðið - 20.08.2021, Side 14

Fréttablaðið - 20.08.2021, Side 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, „Þegar ég kom í fyrsta sinn í OsteoStrong í fyrrasumar var hryggurinn alveg S-laga. Ég er með mikla hryggskekkju og svo var hryggjarsúlan líka snúin. Það var bara myrkur hjá mér; ég var grenjandi yfir bakinu og gekk öll skökk. Nú finn ég ekki fyrir því. Núna er ég mun beinni í baki þó svo að hryggskekkjan sé enn til staðar. Með OsteoStrong er ég búin að byggja upp beinin og vöðvana og það styður svo vel við mig,“ segir Þorbjörg. Aðrir sjá breytingarnar líka „Það er fallegt þegar fólkið í kringum mann tekur eftir breyt- ingunum. Þegar ég gekk á fjöll í sumar varð ég svo agalega óörugg með mig því jafnvægið hefur verið svo lélegt hingað til. Maðurinn minn var f ljótur að koma mér á rétta braut og sagði: „Þú þarft ekkert að hafa áhyggjur, þú kemst þetta alveg. Jafnvægið er orðið svo miklu betra eftir OsteoStrong.“ Ég hef verið að æfa mig fyrir það að ganga á Lónsöræfi en í þá göngu hefði mér ekki dottið í hug að fara áður en ég kynntist OsteoStrong,“ segir Þorbjörg. Hún segist ekki vera íþrótta- kona en hafi byrjað að hlaupa þegar hún varð 49 ára. „Þá var ein hér í vinnunni í mastersnámi í mannauðs- stjórnun. Hún fékk okkur til að skipta okkur upp í þrjá hópa. Einn hópurinn átti að hlaupa og það var hlaupakennsla inni í því. Annar átti að gera það sem hann var vanur að gera og þriðji hópurinn átti að gera ekki neitt. Ég sagði við stelpurnar: „Ég kann ekki að hlaupa og get ekki hlaupið. Ég skal gera þetta, ég skal vera í hlaupahópnum svo að þið getið allar hlegið þegar þið horfið á eftir mér. En eftir þetta verkefni er ég sú eina sem er enn að hlaupa. Ég fékk náttúrlega kennslu og það munar um það. Ég reyndar læt mér nægja að skokka, en 10 kílómetrar á 62 mínútum er metið mitt,“ greinir Þorbjörg frá. Rauðvínsmaraþonið Þorbjörg sneri sig á ökkla í því sem hún segir skemmtilegasta maraþon sem sögur fara af; eða Rauðvínsmaraþoninu, árið 2018. „Þá hleypur maður á milli kastala og smakkar mismunandi rauðvín á hverjum stað. Ég var að stíga í gegnum hallarhliðið á einum stað en sneri mig svo illa að ég þurfti að hætta í hlaupinu. Þó gafst ég ekki upp fyrr en 7 kíló- metrum síðar. Eftir þetta trufluðu ökklarnir mig en eftir nokkra mánaða ástundun hjá Osteo Str- ong finn ég ekki fyrir þeim,“ segir Þorbjörg og hvetur alla til að skoða þetta stórskemmtilega hlaup. Þetta gerir OsteoStrong OsteoStrong er byltingar- kennt æfingakerfi sem styður fólk á öllum aldri til vaxtar. Meðlimir OsteoStrong mæta einu sinni í viku og ná á innan við 10 mínútum að þétta vöðva, sinar, liðbönd og bein, bæta árangur og fyrirbyggja meiðsl. Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri óháð líkam- legri getu. Meðlimir geta átt von á að: n Auka styrk n Minnka líkur á álags- meiðslum n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Minnka verki í baki og liða- mótum n Lækka langtímablóðsykur n Auka beinþéttni Æfingatækin sem iðkendur OsteoStrong nota til að styrkja sig eru fjögur og reyna á hendur, fætur, bak og kvið. Styrkur skiptir Þorbjörgu miklu máli og þar hjálpar OsteoStrong mikið.Hver æfing í OsteoStrong er gerð aðeins einu sinni af fullu afli. Í lok æfinga slaka meðlimir OsteoStrong vel á með Pemf-bylgjum. Jafnvægi iðkenda Osteo- Strong bætist að meðaltali um 77 prósent eftir aðeins fimm skipti. Líka fyrir landsbyggðina Þorbjörgu þykir mikilvægt að fólk viti að OsteoStrong sé líka val- kostur fyrir fólk á landsbyggðinni. „Í upphafi náði ég að koma vikulega í einn mánuð og þá varð ég strax réttari í bakinu og betri í kroppnum. Eftir það varð ástund- unin dreifðari en ég náði samt að upplifa mikla bætingu.“ Að sigra sjálfa sig Í sumar vann Þorbjörg mikið þrek- virki fyrir sjálfa sig og hljóp Dyr- fjallahlaup á Borgarfirði eystri. „Þar hljóp ég 12,8 kílómetra upp og niður, upp og niður. Algerlega geggjað hlaup. Síðustu brekkuna upp man ég eftir að hugsa: Er ég að fara þarna upp? Já, já, ég kemst upp! Það tók mig góðan tíma en ég komst á endanum í mark. Mín hugsun er alltaf að eiga nóga orku til að dansa að kvöldi,“ segir Þor- björg kát. Það verður að vera gaman Þorbjörg hefur í nokkur ár hlaupið fyrir Alzheimer-samtökin í Reykja- víkurmaraþoninu. „Í eitt skiptið þegar ég var að hlaupa 10 kílómetra fékk ég stein- völu í skóinn á Ægissíðunni og náði henni ekki úr. Eftir smá tíma fann ég að það gengi ekki upp og var komin með risastórar blöðrur á fæturna. Þó kláraði ég hlaupið á hnefanum af sársauka. Eftir að ég lauk svo hlaupinu tók mig stuttan tíma að muna að ég ætti gervi- skinnsplástra heima og kæmist því samt í háu hælana til að njóta Menningarnætur um kvöldið. Svona forgangsraða ég. Það verður að vera skemmtilegt,“ segir Þor- björg og hlær. „OsteoStrong hefur hjálpað mér og byggt minn líkama þannig upp að núna get ég gert þetta og haldið áfram, 58 ára gömul. Fyrir mér er OsteoStrong og einkaþjálfun hin gullna blanda. Þegar ég lít fram á veginn vil ég bara vera flott eldri kona og þessi blanda gerir mig að flottri eldri konu. Það að vera sterk í mínum líkama.“ Fyrir venjulegt fólk „Það er allt hægt ef maður er tilbúinn til að fjárfesta í líkaman- um sínum og heilsu. OsteoStrong er fyrir alla, líka venjulegt fólk og hefur boðið mér upp á miklu meiri uppbyggingu en ég hefði trúað á svona stuttum tíma,“ segir Þor- björg og er greinilega að upphugsa næsta ævintýri. n OsteoStrong býður upp á frían prufutíma þar sem fólk getur kynnst æfingunum og prófað tækin. OsteoStrong er í Hátúni 12. Bóka má tíma á osteostrong.is og í síma 419 9200. 2 kynningarblað 20. ágúst 2021 FÖSTUDAGURHEILSUR ÆKT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.