Fréttablaðið - 20.08.2021, Qupperneq 18
Hugsaðu þér. Fiskur
á fimm mínútum!
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
Lax er með hollari fæðu-
tegundum enda prótínríkur,
stútfullur af hollum fitusýr-
um og inniheldur lífsnauð-
synleg næringarefni eins
og B-vítamín, astaxanthin,
kalíum og fleira.
Þessi laxauppskrift er með þeim
einfaldari og fljótlegri. Þá má
jafnvel leyfa fiskinum að liggja í
marineringunni í allt að tvo daga.
Framtíðar-þú munt þakka for-
tíðar-þér fyrir að hafa undirbúið
þennan gómsæta rétt. Því þegar
laxinn hefur fengið að liggja í
marineringunni tekur ekki nema
um fimm mínútur að elda hann
undir grillinu í ofninum. Hugsaðu
þér. Fiskur á fimm mínútum! Fyrir
þau sem vilja það frekar má skipta
laxinum út fyrir bleikju eða silung.
Lax
Uppskriftirnar eru í þrjá til fjóra
maga.
Innihaldsefni
½ dl hvítt miso (eða rautt)
tæplega 1 dl hrísgrjónavín eða
vatn og smá hrísgrjónaedik
1 msk. sojasósa
2 msk. olía
½ dl púðursykur eða sykur
4 bitar af laxi, um 150-200 g hver
biti. Best að nota laxaflök og passa
að beinhreinsa.
Aðferð
Byrjaðu á að hræra saman miso,
Fimm mínútna lax og frískandi gúrkusalat
Laxinn smell-
passar líka með
hrísgrjónum og
eggjahræru. En
gúrkusalatið
er samt guð-
dómlegt með.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Stóru íslensku agúrkurnar eru tilvaldar í þetta frískandi salat enda safaríkar
og stökkar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
hrísgrjónavín, olíu og sykur.
Smakkaðu til og vittu hvort það
þurfi að stilla til sýru, salt eða
sætu. Nuddaðu marineringunni
á laxaflökin og settu í lokað ílát.
Helltu restinni af marineringunni
yfir og láttu standa í minnst 45
mínútur. Ef laxinn liggur í mar-
ineringunni í lengri tíma þá þéttist
hann og verður safaríkari.
Eldun
Þegar kemur að því að elda skal
forhita ofninn á mesta hita,
um 200-250°C á grill. Settu
álpappírsfilmu á ofnskúffu
eða eldfast mót úr málmi og
leggðu fiskinn á plötuna. Helltu
afganginum af marineringunni
yfir. Eldaðu laxinn þar til hann er
orðinn vel dökkur á yfirborðinu og
heitur í miðjunni. Eldunartími ætti
ekki að vera mikið lengri en fimm
mínútur en það fer eftir því hvað
ofninn er öflugur. Ef einhver svæði
virka eins og þau muni brenna
er hægt að fletta álfilmunni yfir
til að vernda yfirborðið. Berið
fram strax. Ekki er verra að strá
söxuðum vorlauk yfir.
Kramið gúrkusalat
Þetta gúrkusalat smellpassar með
laxinum og ýfir máltíðina upp
með ferskum, asískum tónum.
Innihaldsefni
2 stórar agúrkur
1 og ½ tsk. salt
Dressing*
Aðferð
Skerðu endana af gúrkunum og
settu í ziplock-poka og lokaðu.
Taktu þunga pönnu eða tóma vín-
flösku og kremdu gúrkuna þannig
að hún opnist á hliðunum. Taktu
gúrkurnar úr pokanum og skerðu
í munnbita. Settu gúrkubitana í
sigti, blandaðu saltinu við og láttu
standa í um 15-30 mínútur. Ekki
þarf að skola saltið af.
*Dressing
1 tsk. kraminn hvítlaukur
4 tsk. dökkt balsamedik (eða hrís-
grjónaedik og balsamedik
látið hvítlaukinn liggja í leginum í
5-15 mínútur
1 msk. sojasósa
2 tsk. ristuð sesamolía
1 tsk. sykur
ristuð sesamfræ eftir smekk
Hrærðu innihaldsefnin saman í
stóra skál. Bættu gúrkubitunum út
í (ekki nota safann af gúrkunum)
og veltið upp úr dressingunni
ásamt ristuðum sesamfræjum.
Ekki er verra að strá söxuðu
kóríander yfir í lokin. ■
6 kynningarblað 20. ágúst 2021 FÖSTUDAGURHEILSUR ÆKT