Fréttablaðið - 20.08.2021, Síða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Stundum er talað um að á ákveðn-
um málum sé stigsmunur en ekki
eðlismunur. Það á við um stjórn-
mál á Íslandi. Við gerum okkur
ekki alltaf grein fyrir því en þegar
samfélagið okkar er borið saman
við flest önnur blasir við að það er
nokkuð einsleitt. Af því leiðir að
þorri þjóðarinnar virðist sammála
um ýmis mál sem hafa meitlast inn
í þjóðarsálina í gegnum tíðina.
Eitt þessara mála er aðgangur
allra að menntun. Sem þýðir ekki
að það sé bannað að gera þjónustu-
samninga við sjálfstæða aðila um
rekstur grunnskóla, menntaskóla,
háskóla og listaháskóla. Enda mikil-
vægt að námsfólk hafi val. Að sama
skapi virðist þjóðin sammála um að
hér eigi að reka öflugt heilbrigðis-
kerfi. Sem þýðir ekki að það sé
bannað að gera þjónustusamninga
við einkaaðila um ýmsa heilbrigðis-
þjónustu. Slíkir samningar munu
ekki veikja opinbera heilbrigðis-
kerfið heldur geta þvert á móti
gert því kleift að sinna kjarnastarf-
seminni betur. Stigsmunur en ekki
eðlismunur. Svona mætti, held ég,
lengi telja.
Stjórnmálafólk ætti kannski,
sama í hvaða horni það kýs að
berjast, að sætta sig við að á Íslandi
er velferðarmarkaðshagkerfi. Stórt
og mikið orð, nokkur einföldun, en
alls engin innri mótsögn. Markaðs-
hagkerfið er grunnur öflugs
velferðarkerfis. Og samfélag sem
virkar vegna stöðugs velferðar-
kerfis, það er grunnur markaðshag-
kerfis. Svíþjóð, sjálf vagga velferðar-
stefnunnar, er besta dæmið sem
við höfum um farsælt hjónaband
velferðarmarkaðshagkerfisins.
Eru það ekki hjónaböndin þar sem
andstæðurnar mætast – og sjá kosti
hvors annars – þau sem endast? n
Farsælt hjónaband
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
NÝTT FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
SERTA OCEAN SPLENDID – STILLANLEGT
Fimm stjörnu Hótel-rúmalínan frá Serta er fáanleg í verslunum Betra Baks í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði.
SERTA OCEAN SPLENDID stillanlegt heilsurúm
nú á kynningarverði með 20% afslætti.
SERTA ER OPINBER BIRGIR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta
er fimm svæða skipt pokagorma dýna
þar sem hreyfingar þínar trufla ekki
rekkjunaut þinn. Góður stuðningur er
við bakið en mýkra gormakerfi er við
axlir og mjaðmasvæðið. Þannig liggur
þú alltaf með beina hryggsúlu og nærð
hámarks hvíld. Hægt er að sérsníða
rúmið að þínum þörfum, velja um 3
mismunandi stífleika sem og fjórar
mismunandi topp dýnur. Áklæðið
utan um dýnuna er mjúkt og slitsterkt
áklæði, ofnæmisfrítt og andar vel.
Kynningarverð 519.920 kr.Verðdæmi: Serta Ocean Splendid 2 x 80 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr.
Náttborð ekki inni-
falið í verði en selt sér.
Serta Ocean Splendid eru fáanleg í tveimur áklæðisgerðum gráu sléttflaueli og
gráu áklæði. Þau fást í fjórum stærðum; 160/180/200 x 200 cm og 180 x 210 cm
K Y N N I N G A R A F S L ÁT T U R
20%
S E R TA O C E A N S P L E N D I D
NÝTT
S E R TA O C E A N S P L E N D I D
SYKURLAUS
HINDBERJA OG
SALTLAKKRÍS