Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Page 12
D yrnar opnast og Guðrún Sigríð- ur Ágústsdóttir, eða Sirrý eins og hún er kölluð, stendur þar og býður brosandi í bæinn. Hún er í afar fallegri bleikri blússu með slaufu og með varalit í stíl. Sirrý býður upp á te í notalega eldhúskróknum. Ný- fæddur lítill frændi er inni í stofu ásamt móð- urinni, en Sirrý hefur fengið það hlutverk að vera amma drengsins og er að vonum í skýj- unum. Sirrý hellir heitu tei í bolla og man svo eftir kökum sem bíða inni í stofu og býður blaða- manni að fá sér. Þar má sjá snúða, marengs- tertu og fleira góðgæti. „Er veisla á eftir?“ spyr blaðamaður. „Nei, nei, ég er kökukona,“ segir Sirrý eins og það sé daglegur viðburður að skella í nokkrar tertur og fullan bakka af snúðum. Það kemur síðar í ljós í viðtalinu að Sirrý bíður ekki eftir neinu; ef hún vill köku í dag þá er kaka bökuð; ef hún vill klæðast bleiku spari- skyrtunni er ekki eftir neinu að bíða. Lífið er núna hjá Sirrý sem þurft hefur að glíma við krabbamein og alla þá sálarangist sem því fylgir. Sirrý fékk að vita það árið 2015 að hún ætti ekki langt eftir, en hér er hún enn og ekk- ert á förum. Nema þá helst upp á Hvannadals- hnjúk! Skírð Guðrún ellefu ára Sirrý var skírð Sigríður og það var ekki fyrr en löngu síðar að nafninu Guðrún var bætt fram- an við. „Þegar ég kom heim úr skólanum einn dag- inn þegar ég var ellefu ára tilkynntu foreldrar mínir mér að ég héti núna Guðrún Sigríður; þau hefðu gleymt að skíra mig Guðrúnar-nafninu,“ segir Sirrý og brosir. „Ég var skírð í höfuðið á ömmu sem hét Guðrún Sigríður en notaði ekki nafnið Guðrún,“ útskýrir Sirrý og segist ekki hafa kippt sér upp við nafna- breytinguna. „Ég hélt ég fengi einhverjar gjafir en svo var nú ekki,“ segir hún og hlær. Sirrý er alin upp vestur á fjörðum, á Bíldu- dal, og segir hún æskuna hafa verið afar góða og fjölskylduna samrýmda. Amma og afi voru í næsta húsi og Sirrý segist oft hafa skottast til þeirra, jafnvel bara til að bjóða góða nótt. „Afi minn er enn á lífi, 99 ára og er minn besti vinur í lífinu. Hann hefur einmitt verið verndari göngunnar en hann var mikill fjalla- maður,“ segir hún og á við göngu Snjódríf- anna. Æskuástin varð að lífsförunaut en Sirrý fann ástina hinum megin við bæjarlækinn, eins og hún orðar það, þegar hún hitti Jens Bjarna- son frá Tálknafirði. Hún var ekki há í loftinu þegar þau kynntust; aðeins þrettán ára en hann fimm árum eldri. „Jens hélt ég væri mun eldri. Ég fékk þarna fyrsta kossinn sem var sjokk,“ segir hún og hlær. „Hann beið svo bara þolinmóður og spurði reglulega; hvað ertu gömul núna?“ Þau hjón hafa verið saman síðan, eftir þenn- an fyrsta koss fyrir margt löngu, og eiga fjög- ur börn, það yngsta ellefu ára. Hvað er að sjá þig? Lífið tók snarpa beygju þegar Sirrý greindist með leghálskrabbamein árið 2010, þá 37 ára gömul. „Ég greindist sex mánuðum eftir að ég eign- Maður á bara stundina Guðrún Sigríður Ágústsdóttir tilheyrir vöskum hópi kvenna sem kalla sig Snjódrífurnar. Þær þveruðu Vatnajökul í fyrra en í ár stefna þær hærra. Sirrý, eins og hún er kölluð, greindist með krabbamein árið 2010 og aftur 2015 og var þá sagt að hún ætti aðeins nokkur ár ólifuð. Nú sex árum síðar er hún eldhress á leið upp á hæsta tind Íslands í hundrað kvenna hópi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Mig langaði að búa til einhverja brjálaða áskorun. Útivist hefur í raun verið mín end- urhæfing; að komast upp á fjöll og upplifa þessa sigra, en ég komst ekki á milli hæða fyrstu mánuðina. Ég upplifði svo mikla valdefl- ingu í útivistinni,“ segir Sirrý, ein af Snjódríf- unum sem eru á leið upp á Hvannadalshnjúk. Morgunblaðið/Ásdís ’ Við hjónin fundum á okk- ur að við ættum ekki góð- ar fréttir í vændum. Lækn- irinn settist á rúmgaflinn og sagði mér að staðan væri ekki góð; ég væri með stórt æxli sem ekki væri hægt að skera. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.