Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021 V ið könnumst öll við skammdegis- málin sem gjósa upp árvisst og fá miklu vanstilltari umgjörð en önn- ur átakamál. Svo gufa þau allt í einu upp eins og dögg fyrir vorsól- inni. Það er iðulega lóan og aðrir íslenskir vorboðar sem komnir eru svo stundvísir og árvissir í átthagana sína. Þeir vita fyrir víst að þar eiga þeir að halda sig svo sem þriðjung af hverju ári. Þeir yrðu aldrei uppnefndir útlendir fuglar enda fæddir hér og alast upp, fugl fram af fugli, og hver þúfa og mosató er runnin þeim í merg og bein. Skammdegismál fara illa í boðskap vorsins. Sumir koma langt að og leita uppi þúfnakollinn frá því í haust. Einhverjir gefa sér að ferðin á slíkar slóðir sé gjald tilverunnar. Að öðrum kosti kæmist ungviðið ekki á legg. Fóðra verður það jafnt og þétt allan sólarhringinn og nóttin má ekki blanda sér í það. Lendum of oft í vondum félagsskap En að þessu sinni hafa varla dúkkað upp nokkur skammdegismál sem gagn er að. Því frá því að veir- an vonda og leiðigjarna barst úr austrinu hefur hún yfirtekið alla niðurdrepandi og æsandi umræðu. Og nú er komið á annað ár. Reyndar hefur okkar heims- hluti komið sér upp eins konar skammdegisumræðu öðru hvoru, aðeins öðru afbrigði, rétt eins og veiran. Nú seinast var það stóra stólamálið í Tyrklandi. Það kemur mörgum í opna skjöldu að leiðtogar Evr- ópusambandsins skuli hafa komist í annað eins upp- nám út af stólum eða vöntun á þeim miðað við vand- ræðaganginn sem heltók þá síðustu mánuði og hefur skapað almenningi, meintum skjólstæðingum þeirra, stórbrotinn vanda vegna yfirgengilegs klaufaskapar í bóluefnamálum. Oft því miður þurftum við hér í norðrinu að bjóða okkur um borð í þetta draugaskip af því að íslenskir ráðamenn hafa gleypt í sig fyrir löngu hráar fullyrð- ingar embættismanna um að landið hafi óvart gengið í ESB fyrir allmörgum árum. Þetta eru sömu menn sem leiddu Ísland í refsiaðgerðir gegn Rússum sem hafa þegar kostað okkur tugi milljarða króna. Þeir sögðu það vera vegna Krímskagans! Um hann hefur ekkert verið rætt síðan og má því sjálfsagt ganga út frá því að Pútín hljóti að hafa skil- að honum fyrir löngu. Refsiaðgerðirnar miklu hafa væntanlega gengið út frá því að þær myndu skila einhverju, ef ekki Krímskaga. Engum vitibornum manni datt í hug að honum yrði „skilað“. Almenningur verður að eiga erindi Þjóðin botnar illa í ruglmálum á borð við Icesave- uppgjöfina og undirmál um orkupakka sem hún fær aldrei skýringar á. Ekki verður séð að verulegur munur sé á afstöðu núverandi stjórnarflokka í þessum málum, þeir lulli allir í einni röð á eftir systurflokkunum Samfylkingu og Viðreisn, sem séu fánaberar. Það er óhjákvæmilegt þegar flokkum fjölgar, og enginn þeirra sem fyrir eru sker sig lengur úr, að stjórnmálalegur áhugi fari minnkandi og þátttaka í starfi flokkanna verði dræm. Þegar sú tilfinning bætist við að „kerfið“ haldi sínu striki hverjir sem slysist í stjórn þá versnar staðan hratt. En steininn tekur út þegar allir stjórnmálaflokkar landsins sætta sig við að nánast allur nýr lagagrundvöllur komi að- sendur og óumbeðinn og lýsa því yfir að þeir „hafi ekki lengur rétt“ til þess að taka raunverulega af- stöðu til sendinganna. Þá eru menn komnir í miklar ógöngur og ófyrirgefanlega sjálfheldu. Rétturinn sem þeir hafa ekki er hinn að færa löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdavald úr landinu og til ann- arra. Staðan er svo lömuð enn með því að „lögunum“ sem engin tök virðast til að breyta eða afnema séu þau einu sinni komin er nú lætt í gegn sem þings- ályktunum, en með alla sömu niðurstöðu og bindingu sem lög væru! Í öllum framangreindum efnum er gengið á svig við stjórnarskrá landsins og varla nokkur þingmaður á hinu forna þingi hefur neina döngun í sér til að taka á móti. Stólar skyggja og ekki sést til sólar Og þá fer sennilega best á því að líta á þessar þungu áhyggjur sem hálfgert innskot og halda sig við „alvörumálin“ eins og pirring heimsleiðtoga yfir stóra stólamálinu í Tyrklandi. ESB virðist ekki ætla að ríða feitum hesti frá því máli fremur en öðru því sem það fæst við þessi miss- erin. En hvað gerðist? Við sáum það öll á myndum, og reyndar lifandi myndum, eins og það hét fyrir skömmu. Forseti Tyrklands tekur á móti fulltrúum ESB. Tveimur „forsetum“ á þess vegum. Forsetar ESB eru 4-5 (eða eftir atvikum 7-8 ef forseti dóm- stólsins og endurskoðunarráðsins, og stundum Seðlabanka ESB, eru taldir með, sem oft er gert.) ESB-löndin fara svo „með forsæti í sambandinu“ í 6 mánuði í senn. Þess má minnast að þáverandi utanríkisráðherra sló því upp sem stórmáli að það mætti takast að af- henda „umsókn Íslands“ að ESB á meðan Svíar færu með forsæti í því! Ekki var heil brú í því, eins og kom á daginn. Í raun er ekkert gert með þessa hringekju þótt ríkin verji iðulega verulegum fjármunum í 6 mánuðina sína og fyrir lítil lönd er það ekki síst kostnaður við að halda einn leiðtogafund heima hjá sér og komast í lókalblöðin. Stóru löndin gera ekkert með þennan sýndarskap. Forseti leiðtogaráðsins er tiltölulega nýtt embætti og var hann í upphafi kallaður „forseti ESB“ en tog- streita hefur aukist og leiðbeiningar ESB um dipló- matíska röð, þar sem forseti leiðtogaráðsins væri á hærra hænsnapriki en forseti framkvæmdastjórnar- innar, virðast nú vera í uppnámi. Ráðist er á Erdogan, forseta Tyrklands, fyrir að hafa „niðurlægt konu“ með því að hafa stól fyrir karl á fundi sínum með þessum tveimur forsetum. (Mátti Erdogan væntanlega þakka fyrir að allur forseta- skari ESB var ekki mættur og jafnvel Spanó líka frá ME.) Þá hefði þurft að drífa inn stóla. Myndirnar sýna glöggt, að þegar Belginn Charles Michel, forseti leiðtogaráðsins, sá að einn stóll var við hlið Erdogans þá tók hann nánast undir sig stökk og hlammaði sér niður í „fína“ stólinn og ók sér þar hálfhræddur við að verða rekinn upp. Ursula von der Leyen sást standa á miðju gólfi og hnykkja til höfðinu og ræskja sig svo hátt og snjallt en hvorugur þeirra Erdogans eða Michels virðist hafa skynjað hvað þessar merkjasendingar þýddu. Það fór ekki á milli mála að Charles Michel tók af skarið um það hver skyldi sitja hið næsta Erdogan fyrst sá stóll væri einn. Það væsti svo sem ekki um Leyen í plusssófanum sem tók a.m.k. 10 manns í sæti. Tíu til tuttugu metr- um gegnt henni sat utanríkisráðherra Tyrklands í sínum sófa og forsetarnir tveir voru ekki langt und- an, en þó í svipaðri fjarlægð. Þeir Þórólfur og Víðir hefðu getað verið mjög sáttir við öll þessi fjarlægðar- mörk, en hefðu sjálfsagt ekki tekið afstöðu til fín- heitamatsins, enda veirunni óviðkomandi. Lítið hefur síðan verið rætt um umræðuefni fundarins eins og þegar Spanó mætti, en því meir um móðganir við ESB, niðurlægingu kvenfólks og annað það sem helst er efst á baugi um þessar mundir. Ítalíukeisari grípur inn í Mario Draghi, sem lengi var seðlabankastjóri ESB, en er nú aðsendur forsætisráðherra Ítalíu, tók upp þykkjuna fyrir Ursulu von der Leyen. En þótt Draghi sé mikið snillingsmenni, þá tókst honum ekki endilega vel upp í þetta sinn. Draghi svaraði blaða- mönnum um hið diplómatíska uppnám og „sagðist vera mjög brugðið yfir þessari niðurlægingu sem forseti framkvæmdastjórnarinnar hefði þurft að þola af hálfu þessa – við skulum kalla þá það sem þeir eru – einræðisherra sem við komumst ekki hjá að eiga samstarf við.“ Það stóð ekki á viðbrögðum. Utanríkiráðherra Tyrklands kallaði sendiherra Ítalíu þegar á sinn fund. Engar fréttir eru um sætaskipan þar. En ráð- herrann las sendiherranum pistilinn: „Við for- dæmum af miklum þunga lýðskrumsfyrirlestur og ógeðfellt tal af hálfu tilnefnds forsætisráðherra Ítal- íu í garð lýðræðislega kjörins forseta Tyrklands.“ Þarna hitti ráðherrann á veikan blett því titlarnir eru hverju orði sannari. Utanríkisráðherrann fullyrti við blaðamenn að niðurröðun á umræddum fundi með forseta Tyrk- lands hefði verið borin undir og verið í samræmi við óskir fulltrúa ESB og að öllu leyti í samræmi við diplómatískar reglur um samskipti þjóða. Talsmenn ESB gátu ekki andmælt því en báru fyrir sig að þeim hefði ekki gefist færi á að skoða Á hverja getur ESB stólað? Reykjavíkurbréf09.04.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.