Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Side 17
þennan sal forsetahallarinnar fyrir fundinn! Full- yrða má að það sé ekki almenn venja. Margir voru fundirnir Bréfritari átti iðulega fundi með æðstu mönnum ESB (breytileg nöfn) í Brussel. Bæði með Jacques Delors (sem var mikill áhrifamaður, nú 95 ára), Rom- ano Prodi (stundum forsætisráðherra Ítalíu) og San- ter, sem einnig kom hingað til lands sem forsætis- ráðherra Lúxemborgar og voru allir eftirminnilegir. Erdogan hitti bréfritari alloft og átti við hann mörg samtöl, bæði í Tyrklandi og á fundum á meginland- inu og ekki síst á fundum í tengslum við Nató. Þegar Erdogan forsætisráðherra átti erindi vestur um haf og millilenti hér kom fyrir að hann lét bréfrit- ara vita og kannaði hvort hægt væri að setja á há- degisfund í flughöfninni sem var gert, ef það gekk upp. Langur tími er liðinn og mikið hefur gengið á í lífi Erdogans sem hefur augljóslega haft mikil áhrif á hann. Bréfritari átti iðulega harla ánægjuleg sam- skipti við Erdogan á þessum tíma. Rifjað var upp að báðir hefðu hafið stjórnmálaafskipti sín sem borgar- stjórar, hann í Istanbul. Erdogan hafði verið liðtæk- ur knattspyrnumaður (gott ef hann hafði ekki komist í landsliðið) og hafði gist fangelsi í tæpt ár fyrir að fara með kvæði á mótmælafundum. Sá íslenski gat ekki montað af slíku. CIA fréttir allt seinast Lífsáfall Erdogans varð þegar deildum í her Tyrk- lands tókst næstum að ráða hann af dögum. Flugher- inn réðst á sumardvalarstað hans og varpaði sprengjum. Þetta var á valdatíma Obama í Banda- ríkjunum, en Bandaríkin voru og eru með öfluga her- stöð í Tyrklandi. En Bandaríkin virtust þó ekki verða neitt vör við að tilraun hersins til valdaráns væri í pípunum. Það var „óvinurinn,“ Pútín forseti Rússlands, sem hringdi í Erdogan og sagði að gerð yrði árás á hús hans innan skamms. Erdogan komst út á síðustu mínútum og braut byltinguna á bak aftur með ævintýralegum hætti. Hann talaði inn á síma sinn í mynd og CNN í Tyrklandi sendi það út. Á skerminum var aðeins sími Erdogans, lítill á skján- um, þar sem hann skoraði á vopnlausan almenning að þyrpast út á göturnar og umkringja skriðdrekana sem þá þegar æddu um götur Istanbul. Síðar komst Erdogan í flugvél sem flögraði lengi um áður en liðs- mönnum Erdogans þótti öruggt að lenda. Það vakti mikla athygli að John Kerry, Íslandsmágur, þá utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði að fordæma byltingartilraun hersins og árás á réttkjörinn leið- toga Natóríkis. Sagði hann einfaldlega að það væri of fljótt að gefa yfirlýsingar nú. Það yrði gert þegar mál skýrðust! Eftir að Erdogan náði undirtökum á ný gekk hann mjög fast fram og vafalítið er að þau viðbrögð öll hafa ekki staðist marga kvarða um mannréttindi og jafnræði fyrir dómstólunum, eða þær aðferðir sem virða þarf þegar knúið er á um að ákvarða sekt eða sakleysi og svo mætti lengi telja. En vegna aðdrag- andans hefur það uppgjör ekki aðeins verið sann- leiksleit í þágu refsiréttarins, heldur verið upp á líf og dauða í augum Erdogans. En það er þekkt að því dýpra sem sokkið er á þeirri vegferð því snúnara verður að komast aftur á rétta braut. Og hversu valdamiklir sem menn eru um skeið eru þeir um leið smám saman orðnir fangar í eigin til- veru, sem sleppa ekki úr þeim lífstíðardómi sem þeir hafa fellt yfir sjálfum sér. Þá er ekki spurt um sanngirni. Morgunblaðið/Ásdís ’ Langur tími er liðinn og mikið hefur gengið á í lífi Erdogans sem hefur augljóslega haft mikil áhrif á hann. Bréfritari átti iðulega harla ánægjuleg samskipti við Erdogan á þessum tíma. 11.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.