Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Blaðsíða 19
Sniðið
„Þú þarft ekki að vera grannur og leggjalangur
til að skarta hvítum buxum. Nú eru í tísku buxur
með beinu sniði en ekki níðþröngar. Hægt er að
hafa þær síðar eða í styttri kantinum þar sem þær
ná þá rétt fyrir ofan ökklann. Ég er líka hrifinn af
buxum sem eru millivegurinn af chinos og gallabux-
um, með brettar skálmar. Mjög Jackie O.“
Hversu hvítar?
„Hvítar buxur virka mjög ferskar og gefa öllu útlit-
inu bjartari ásýnd. Þær mega þó ekki vera of hvítar,
ekki lýsa í myrkri!“
Úr hvaða efni?
„Alls ekki velja efni sem er of þunnt. Þá sést í gegn-
um þær! Gallabuxnaefni með teygju í er mjög vinsælt.“
Hvað skal para buxurnar við?
„Vinsælast hefur verið að para buxurnar við einlita
boli, til dæmis hvíta eða svarta. Sumir hafa líka fallið
fyrir þessum klassísku röndóttu bolum sem minna á
Frakkland. Ef þú vilt eitthvað ljósara þá getur ljós-
brúnn verið fallegur eða aðrir hlutlausir litir við kakí-
jakka. Vinsælast er samt hvítur og blár,“ segir stílist-
inn.
Röndóttir bolir
í frönskum stíl
passa vel við.
Hvítar buxur
í beinu sniði
eru töff.
Sumarið er á næsta leiti og þá er viðeig-
andi að klæðast ljósari litum. Hvítu
buxurnar eru löngu orðnar klassík en
það þarf að stíga varlega til jarðar og
vanda valið þegar fjárfest er í hvít-
um buxum. Það er margt sem gæti
farið úrskeiðis. Stílisti Sunday Tim-
es gaf lesendum nokkur góð ráð.
Hvítar Raph Lauren-buxur úr hör í
Mathildu 34.990.
Hvítar milliháar buxur frá Envii.
Fást í Gallerí Sautján 12.995.
Fallegt er að para
hvítar buxur við
sumarlega hæla.
Smart buxur úr Lindex 5.999.
Gallabuxur í
mömmusniði í
Zöru 5.495.
Sandlitaðar
flíkur hressa
upp á hvítar
buxur.
Hvernig á að
„púlla“ hvítu
buxurnar?
11.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19