Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021
ÁHUGAMÁL
Vitamin E
Útsölustaðir: Apótekum, Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaup, Heilsuhúsinu og á Heimkaup.is
Vítamínið sem verndar!
- Nærir, græðir og endurnýjar
- Gefur húðinni raka, næringu og fallegan ljóma
- Hentar vel fyrir þurra húð og vegan
Tveir litlir krúttlegir pylsu-hundar gægjast forvitnir áblaðamann þegar Borghildur
Gunnarsdóttir opnar dyrnar. Yfir
kaffibolla segir Bogga, eins og hún
er kölluð, blaðamanni frá óvenju-
legum áhugamálum sínum, jap-
önsku og hárkollum!
„Ég er á fyrsta ári í iðnaðarverk-
fræði og þriðja ári í japönsku í Há-
skóla Íslands. Ég átti að fara í
skiptinám til Japans en svo kom Co-
vid og þá fór ég í iðnaðarverkfræði í
staðinn,“ segir hin 23 ára Bogga.
Talar japönsku við
hundana
Bogga segir áhugann á japönsku
hafa kviknað strax í grunnskóla.
„Ég er einkabarn þannig að ég
eyddi miklum tíma ein. Einhvern
tímann fann ég anime-þætti talsetta
á ensku en seinasta serían var á
japönsku,“ segir Bogga og útskýrir
að anime séu japanskar teiknimynd-
ir.
„Ég horfði á seríuna á japönsku
og varð strax ástfangin af tungu-
málinu. Ég byrjaði að kenna sjálfri
mér japönsku í níunda bekk og svo
fór ég í MH af því þar er japanska
kennd. Ég er fyrsti nemandinn, svo
ég viti, sem útskrifast með japönsku
sem þriðja tungumál,“ segir Bogga
sem dreif sig svo í japönsku í HÍ.
„Við erum þó nokkur í japönsku
þarna,“ segir Bogga og segist alveg
skilja tungumálið og geta haldið
uppi samræðum.
„Ég hef einu sinni komið til Jap-
ans. Ég fór með pabba mínum fyrir
tveimur árum og var í tíu daga. Ég
talaði þar japönsku og pabbi gat
ekki verið án mín því ég talaði jap-
önsku við alla leigubílstjórana.
Hann týndist bara ef hann þurfti að
fara eitthvað einn,“ segir hún og
hlær.
„Þegar ég talaði japönsku í búð-
um var ég gjarnan spurð: „Af
hverju kanntu japönsku?““
Bogga útskýrir japanska stafrófið
fyrir blaðamanni.
„Þeir nota þrjú stafróf; tvö eru
eftir hljóðum og er þá annað fyrir
japönsk orð og hitt fyrir tökuorð.
Þriðja stafrófið er með táknum fyrir
heil orð. Það er kínverska stafrófið
sem þeir tóku til sín og þeir nota
það til að stytta ritmálið,“ segir
Bogga og segir þetta ekki flókið
þegar maður nær tökum á því.
„Þeir blanda öllum stafrófum
saman. Þetta er svolítið klikkað en
um leið hrikalega skemmtilegt. Ég
myndi kalla þetta áhugamál mitt en
um leið þráhyggju,“ segir hún og
hlær.
Bogga segist lesa mikið jap-
anskar bækur og horfir einnig á
japanskt efni.
„Ég reyni að lesa mikið til að
halda mér við og vann um skeið við
að lesa í gegnum japönsk innflutn-
ingsgögn, sem var æðislegt. Stund-
um tala ég japönsku við hundana,“
segir hún og brosir.
„Við erum nördar hérna á þessu
heimili.“
Japanska vinkonan bíður
Bogga segir drauminn vera að
blanda saman iðnaðarverkfræði og
japönsku.
„Það eru nokkur íslensk fyrirtæki
staðsett í Japan og það væri draum-
ur að fá einhvern tímann vinnu hjá
einhverju þeirra. Ég ætla seinna í
skiptinám til Japans,“ segir Bogga
og segist hafa farið í iðnaðarverk-
fræði því próf í japönsku myndi ef
til vill ekki opna margar dyr.
„Ég er mjög raunsæ manneskja,“
segir Bogga og segist ætla að klára
BA-próf í japönsku þegar hún fer í
skiptinám í iðnarverkfræði í Japan.
Bogga á eina japanska vinkonu
sem var hér í skiptinámi og höfðu
þær hlakkað mikið til að hittast í
Japan.
„En það verður að bíða.“
Ljóslillablá hárkolla keypt
Hárkollur eru einnig stórt áhuga-
mál hjá Boggu og á það einnig upp-
runa sinn í anime-teiknimyndum.
„Í þessum teiknimyndum eru
persónur með mjög litríka hárliti.
Þegar ég var í menntaskóla byrjaði
ég að lita á mér hárið mjög mikið og
vildi vera með alls konar litað hár.
„Ég nota hárið til að tjá mig“
Borghildur Gunn-
arsdóttir talar reip-
rennandi japönsku og
safnar hárkollum. Hún
notar hárkollur til að tjá
sig og á erfitt með að
gera upp á milli þeirra.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Bogga skoðar sig í spegli og lagar til hárið á fyrstu hárkollunni sem hún keypti. Það er smá Marilyn Monroe-stæll á þessari bleiku og skvísulegu hárkollu.
„Ég fer eiginlega í karakter eftir því
hvaða hárkollu ég er með. Svo er
ég bara mjög venjuleg þegar ég er
ekki með neina hárkollu,“ segir
Bogga sem á tíu hárkollur sem hún
notar við mismunandi tækifæri.
5