Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021 ÁHUGAMÁL Síðan sá ég eitt sinn stelpu á You- tube sem var að setja á sig hárkollu og hugsaði, þetta er hægt! Ég sökkti mér ofan í þessi myndbönd og fannst þetta geggjað. Það var einmitt einn háralitur sem ég gat aldrei litað hár- ið mitt með af því ég er svo dökk- hærð; ljóslillablár. Ég uppgötvaði þarna að ég gæti bara keypt mér þannig hárkollu. Ég fann hana á net- inu og keypti og er hún ein af uppá- haldshárkollunum mínum. Hún er búin að ganga í gegnum margt,“ seg- ir Bogga og segist oft nota hana þeg- ar hún hitti vini eða fari út að skemmta sér. Bogga kaupir vandaðar hárkollur sem líta náttúrulega út en eftir að hafa keypt fyrstu kolluna var ekki aftur snúið. „Þá þurfti ég að kaupa aðra og svo aðra. Þetta er ekki ódýrt áhugamál,“ segir hún en segist þó ekki kaupa hárkollur úr mannahári því þær séu allt of dýrar. Hárkolla í þrjátíu stigum Hvað notar þú oft hárkollu? „Fyrir Covid notaði ég hárkollu allar helgar og oft þegar ég fór í skólann. Ef ég vaknaði með hræði- legt hár gat ég bara skellt á mig hár- kollu,“ segir hún og brosir. „Eina notaði ég mikið í vinnunni af því hún er stutt,“ segir Bogga og viðurkennir að það geti verið ansi heitt að vera með kollu. „Það venst. Eftir tuttugusta sinn hættir þú að taka eftir því. Einu sinni var ég með hárkollu í Aust- urríki í þrjátíu stiga hita, og hatt yf- ir. Eftir það er allt annað ekkert mál,“ segir Bogga og segir nú ekki nógu mörg tilefni til að nota hár- kollur vegna faraldursins. Þó setur hún upp hárkollu þegar hún fer í vinnuna. „Ég er að vinna í Líflandi, hesta- búð, og körlunum þar finnst þetta mjög fyndið þegar ég er með blátt hár,“ segir Bogga og segir hesta ein- mitt þriðja áhugamálið. Finnst foreldrum þínum þetta hárkolluáhugamál ekkert skrítið? „Jú, en ég held að pabbi sé bara ánægður með að ég sé hætt að lita á mér hárið. Stundum mætti ég til hans með eldrautt hár og hann dæsti bara.“ Hemur sig í kaupunum Í safni Boggu má finna tíu hárkollur og hún er hvergi nærri hætt. „Ég ætla ekki að kaupa aftur fyrr en í sumar,“ segir Bogga og segist reyna að hemja sig í innkaupum. Hún liggur gjarnan yfir síðum á net- inu sem selja hárkollur og lætur sig dreyma. Sérstök kúnst er að setja á sig hárkollu og segir Bogga að svart- ar konur séu þar fremstar í flokki og hafi kennt sér réttu handtökin á net- inu. Bogga nær í allar hárkollurnar og raðar þeim varlega á eldhúsborðið. Hún fer um þær mjúkum höndum og sýnir blaðamanni en þarna eru hár- kollur í öllum regnbogans litum. Hún handleikur eina tvílita; svarta og brúna með topp. „Þessi er svolítið inn í dag af því hún er tvílit,“ segir hún og tekur svo upp lillabláu hárkolluna, sem var sú fyrsta í safninu. „Þessi er svakaleg! Ég þarf að slétta hana,“ segir hún og mátar eina rauða og hvíta, tvílita. „Ég litaði þessa sjálf sem var svakalegt vesen. Hún er stoltið mitt. Ég litaði hana upphaflega fyrir bún- ing en hef alveg notað hana úti á djamminu,“ segir hún og skellir á sig annarri með stutt hár. „Ég hef fengið marga fría drykki út á þessa bláu,“ segir hún og greini- legt er að hárkollurnar vekja at- hygli. Bláa aldrei með vesen Bogga setur upp hárkollurnar eina af annarri. Útlit hennar gjörbreytist eftir því hvaða kolla er sett upp. Sumar eru rómantískar, aðrar töff og enn aðrar brjálaðar. „Stjúpmamma mín segir að ég sé með mörg andlit,“ segir Bogga og segist gjarnan klæða sig í stíl við kollurnar. „Ég nota hárið rosalega mikið til að tjá mig. Ef ég er í stuði nota ég ljósa hárkollu en ef ég vil vera alvar- leg nota ég aðeins náttúrulegri. Ef ég vil skemmta mér rosalega vel nota ég þessar styttri. Ég fer eig- inlega í karakter eftir því hvaða hár- kollu ég er með. Svo er ég bara mjög venjuleg þegar ég er ekki með neina hárkollu,“ segir hún og hlær. „Mér þykir vænt um þær. Ég veit ekki hver er í uppáhaldi; þetta er eins og að gera upp á milli barna sinna. Ég nota svörtu mest því hún passar við flest. En ég held að þessi stutta bláa sé uppáhalds; hún er aldrei með neitt vesen.“ Bláa stutta er aldrei með vesen.Þessi ljósbláa er sumarleg og sæt.Ein sem er í miklu uppáhaldi.Tvílitt hár er í tísku.Svart fer Boggu vel. Svarta síða hárkollan er klassísk og passar vel við alls kyns klæðnað. Bogga litaði sjálf þessa hárkollu sem var ekkert létt verk. Morgunblaðið/Ásdís Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Veganbúðin, Fiskkompaní Akureyri & Matarbúr Kaju Akranesi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.