Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021
LESBÓK
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
ENDURKOMA Eftir tíu ára hlé snýr enska leikkonan Kate
Winslet aftur í sjónvarp í glæpaþættinum Mare of Easttown í
mánuðinum. Þar leikur hún rannsóknarlögreglukonuna
Mare Sheehan sem rannsakar morð á ungri stúlku í bænum
Easttown í Pennsylvaníu en glímir um leið við áföll í einkalíf-
inu. Kunnuglegt stef, þykir ykkur ekki? Kjaftasögur ganga
um Sheehan í þessu litla og samstillta samfélagi og munu
þær trufla hana við lausn málsins? Af öðrum leikurum í
þættinum má nefna Julianne Nicholson, Jean Smart,
Evan Peters og Guy Pearce sem einmitt lék á móti
Winslet í seinustu sjónvarpsseríu sem hún tók þátt í,
Mildred Pierce, árið 2011. Mare of Easttown verður
frumsýndur á HBO Max 18. apríl og degi síðar á Sky
Atlantic/Now TV.
Rannsakar morð
Kate Winslet
er á leið aftur
í sjónvarpið. AFP
UPPKÖST Þeir gerast ekki hressari, sagnaþulirnir
í málmheimum en Bruce Dickinson, Íslandsvinur og
söngvari Iron Maiden. Í þætti á BBC á dögunum
rifjaði hann upp fyrstu kynnin af átrúnaðargoði
sínu, Ian Gillan, söngvara Deep Purple. Dickinson
var þá með félögum sínum í málmbandinu Samson í
hljóðveri þegar Gillan gekk í salinn. Þeir Samsynir
voru nýkomnir af næstu knæpu og okkar manni
varð skyndilega svo bumbult að hann rauk beina
leið inn á klósett. Kallaði þar í 45 mínútur á Eyjólf.
Að því kom að hurðinni var hrundið upp og Gillan
stóð í gættinni. „Jæja, lagsi. Við skulum koma þér
heim.“ Dickinson getur ekki gleymt þessu atviki –
enda minnir Gillan hann víst reglulega á það.
Gillan veidd’ann upp úr klósettinu
Dickinson hefur marga fjöruna sopið.
AFP
Aura Garrido leikur í Innocent.
Liggur aftur
undir grun
SAKLEYSI Aðdáendur Harlans Co-
bens ættu að merkja við 30. apríl á
dagatalinu hjá sér en þá verður nýr
þáttur úr smiðju hans frumsýndur á
efnisveitunni Netflix. Innocent kall-
ast hann og byggist á samnefndri
skáldsögu frá árinu 2005. Níu árum
eftir að Mateo var grunaður um
morð reynir hann að hefja nýtt líf
ásamt eiginkonu sinni, Oliviu, sem á
von á þeirra fyrsta barni. Þá berst
óvænt símtal sem kemur Mateo úr
jafnvægi enda er sakleysi hans aft-
ur dregið í efa. Að þessu sinni af
lögreglukonunni Lorenu sem er að
rannsaka meint sjálfsvíg. Aðal-
hlutverk leika Mario Casas, Aura
Garrido og Alexandra Jiménez.
V
ísir birti frétt þess efnis mið-
vikudaginn 16. september
1970 að rokkgoðið Jimi
Hendrix hefði áhuga á að heimsækja
Ísland. Heimildarmaðurinn var Al-
bert, plötusnúður á því ágæta dans-
húsi Las Vegas. Föðurnafn hans
kemur ekki fram en hér mun vera um
að ræða Albert Rúnar Aðalsteinsson
sem einnig var þekktur sem rótari og
tónlistarmaður á þessum tíma, meðal
annars undir nafninu Albert Icefield.
Hann er nú látinn.
„En Jimi viðurkenndi það fyrir Ís-
lendingi nokkrum, sem náði tali af
honum í London í fyrravetur, að
áhugi sinn á Íslandsförinni hefði
vaknað er brezkur hljómlistarmaður,
sem hafði komið til Íslands hafði sagt
honum frá því, hve íslenzku stelp-
urnar væru dæmalaust sætar og
skemmtilegar,“ hafði blaðið eftir Al-
berti plötusnúði.
Kvaðst Albert hafa sett sig sam-
stundis í samband við umboðsmann
Jimi Hendrix á Norðurlöndum, er
hann frétti af áhuga kappans á að
koma hingað til lands. „Hefur Albert
síðan átt nokkur bréfaskipti við þann
umboðsmann og fengið þær upplýs-
ingar í gegnum hann, að ekki væri
með öllu útilokað, að Jimi fengist til Ís-
lands, þar eð hann er mikill ferðamað-
ur og sækist mikið eftir því að koma til
nýrra staða og kynnast nýju fólki og
staðháttum,“ stóð í fréttinni sem ÞJM
Jimi Hendrix á
tónleikum í Stokk-
hólmi árið 1967.
Lést tveimur
dögum síðar
Rétt fyrir andlát sitt gat Jimi Hendrix vel hugsað
sér að heimsækja Ísland enda hafði honum borist
til eyrna að íslensku stelpurnar væru dæmalaust
sætar og skemmtilegar. Það stóð alltént í Vísi.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Goðsögnin lifir, hálfri öld eftir andlátið. Hér má sjá „múrverk“ af Jimi Hendrix í
góðum félagsskap á vegg í New York. Myndin var tekin í byrjun þessarar viku.
AFP
Aðeins rúmum tveimur vikum eftir að
Jimi Hendrix hélt á fund feðra sinna var
annað stórt skarð höggvið í raðir vinsæl-
ustu rokktónlistarmanna heims, þegar
söngkonan Janis Joplin lést, einnig 27 ára
að aldri. Íslensk dagblöð voru ekki með
sama viðbúnað af þeim sökum og fréttin
rataði ekki á forsíður þeirra.
„Ein þekktasta bandaríska söngkonan
í popheiminum, Janis Joplin, fannst látin í
íbúð sinni í Hollywood í dag. Dán-
arorsökin var ekki ljós, en lögreglan taldi
dauðann stafa af ofneyzlu lyfja,“ sagði Morgunblaðið á blaðsíðu 17
þann 6. október 1970. Joplin féll frá 4. október. „Sviðsframkoma
hennar var óvenjuleg í hæsta máta. Hún skók sig og hristi, eins og
hún ætti lífið að leysa, og drakk töluvert sterkt vín, Southern Com-
fort, á milli. Hún átti það til að drekka einar fjórar flöskur af víninu
á einni skemmtun. Rödd hennar var sérstæð og auðþekkt — eins
og strokið væri yfir raddböndin með sandpappír.“
Skammt stórra högga á milli
Janis Joplin
lést 27 ára.