Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 1
Stjórn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs óskar eftir að ráða forstöðumann sem
hefur yfirumsjón með og samhæfir störf félagsráðgjafa, deildarstjóra í heimaþjónustu,
forstöðumanna þjónustueininga á starfssvæðinu og sérfræðinga skólaþjónustunnar.
FORSTÖÐUMAÐUR SKÓLA- OG
VELFERÐARÞJÓNUSTU ÁRNESÞINGS
Helstu verkefni
• Daglegur rekstur, stjórnun og eftirlit með
framkvæmd þjónustu og ákvarðanatöku
nefndarinnar og eftir atvikum ákvarðana
sveitarstjórna þegar þess er þörf
• Undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar og
eftirlit með útgjöldum þeirra aðila sem heyra
undir málaflokkinn
• Yfirumsjón með starfsmannamálum
• Fagleg ráðgjöf til starfsfólks
• Ýmis ráðgjöf gagnvart aðildarsveitarfélögum
við gerð fjárhagsáætlunar og um önnur mál
er snerta rekstur þjónustunnar
• Ábyrgð á góðu samstarfi við að efla faglega
þjónustu allra sem starfa í skóla- og
velferðarþjónustu
• Skýrslugerð og frágangur skjala og annarra
gagna á sviði þeirra málaflokka sem undir
hann heyra
• Önnur trúnaðarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í félagsráðgjöf eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsnám sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg
• Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfileikar
• Frumkvæði
• Hæfni í þverfaglegu samstarfi
• Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum
Sjö sveitarfélög í Árnessýslu:
Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes-
og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur,
Hveragerðisbær, Skeiða- og
Gnúpverjahreppur og Sveitarfélagið
Ölfus standa sameiginlega að skóla-
og velferðarþjónustu. Skólaþjónustu-
og velferðarnefnd sveitarfélaganna markar
þjónustunni stefnu í samvinnu við þá sem
málið varðar. Lögð er áhersla á heildarsýn
í málefnum einstaklinga og fjölskyldna.
Skóla- og velferðarþjónustan skiptist í
kennsluráðgjöf, sálfræðiþjónustu, félagslega
ráðgjöf, barnaverndarmál, málefni eldri
borgara og málefni fatlaðs fólks. Á svæðinu
eru sjö leikskólar og sjö grunnskólar.
Nemendafjöldi er alls um 1.450.
Umsóknir eru fylltar út á www.hagvangur.is
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um
störf umsækjanda og menntun.
Umsóknarfrestur til og með 5. maí nk.
Upplýsingar um starfið veita Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is og Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Við leitum að YFIRMATREIÐSLUMANNI með mikinn metnað.
Viðkomandi þarf að vera faglærður, þjónustulundaður og góður í mannlegum samkiptum með góða skipulagshæfileika.
Í starfinu felst að hafa umsjón með daglegum rekstri eldhúss, innkaupum, matseðlagerð, starfsmannaráðningum og vaktarplönum. Íslenskukunnátta
nauðsynleg.
Opnunartími Finnsson Bistro verður frá 11:30 til 21:00.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir sendist á: info@finnssonbistro.is
FINNSSON BISTRO
opnar
Í maí opnar Finnsson Bistro í Kringlunni