Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 3
Sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs Um sýslumenn gilda lög nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi. Í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu búa um 64% landsmanna. Málaflokkar fullnustu- og skiptasviðs eru m.a. fjárnám, útburðar- og innsetningarmál, lögbannsmál, kyrrsetningar, nauðungarsölur og skiptamál. Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna má finna á www.syslumenn.is. Hjá embætti Sýslumannsins á höfuð- borgarsvæðinu starfa um 100 manns. Á fullnustu- og skiptasviði eru 17 stöðugildi. Menntunar- og hæfniskröfur: Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir lausa til umsóknar stöðu sviðsstjóra fullnustu- og skiptasviðs. Sviðsstjóri heyrir undir sýslumann og situr í framkvæmdastjórn embættisins. Sviðsstjóri er ábyrgur fyrir stjórnun mannauðs á sviðinu og ber faglega ábyrgð á verklagi og úrlausn mála innan þess. Leitað er að dugmiklum, faglega sterkum og metnaðarfullum einstaklingi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Þjónusta, rekstur og mannauðsmál sviðsins • Dagleg yfirsýn yfir verkefnastöðu og eftirfylgni með markmiðum sviðsins • Þátttaka í þróun tölvukerfa og þróun á stafrænni þjónustu • Hefur frumkvæði að þróun á starfsemi og verklagi faghópa • Vinna að því að efla og þróa þjónustu embættisins • Samskipti við opinbera aðila og aðra hagsmunaaðila Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Einnig skal fylgja afrit af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélags lögfræðinga. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins. • Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi • Haldgóð þekking og reynsla af málaflokkum fullnustu- og skiptasviðs • Starfsreynsla sem nýtist í starfi • Stjórnunarreynsla er kostur • Leiðtogahæfni, yfirsýn og árangursmiðað viðhorf • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og rík þjónustulund • Góð tölvukunnátta, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð • Mjög gott vald á íslensku í mæltu og rituðu máli Kría er nýr opinber sprota- og nýsköpunarsjóður, sem hefur það að markmiði að stuðla að uppbyggingu og þroska sérhæfs fjármögnunar- umhverfis sprota-, tækni-, og nýsköpunar- fyrirtækja á Íslandi. Markmiði sínu mun Kría ná með því að fjárfesta í vísisjóðum (e. Venture Capital Funds) sem eru sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum með miklum möguleikum á alþjóðlegum vexti. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um upplýsingar um árangur sem viðkomandi Kría leitar að sjóðsstjóra sem hefur innsýn og áhuga á umhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, til að Helstu verkefni: Hæfniskröfur: Umsóknarfrestur er til og með 2. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is Sjóðsstjóri Sprota- og nýsköpunarsjóður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.