Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 L auga rna r í Rey k javí k Fyrir líkama og sál w w w. i t r. i s S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in 50 ára Hannes er Reykvíkingur, ólst upp í Skeiðarvogi og býr í Sólheimum. Hann er lögfræðingur frá HÍ og með LL.M.-gráðu frá London School of Economics. Hannes er lögmaður hjá PACTA lögmönnum. Maki: Hrafnhildur Björg Haraldsdóttir, f. 1971, deildarstjóri fjármálasviðs hjá Lag- erinn Iceland. Börn: Hannes Þórður, f. 2001, Þórunn Bergljót, f. 2005, og Soffía Hrönn, f. 2008. Foreldrar: Sigrún Stefánsdóttir Haf- stein, f. 1926, d. 2012, húsmóðir og Hannes Þórður Hafstein, f. 1925, d. 1998, forstjóri Slysavarnafélags Íslands. Hannes Júlíus Hafstein Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Einhver hefur mistúlkað orð þín svo þú þarft að gera allt sem í þínu valdi stendur til að leiðrétta málið. Haltu ótrauð/ur áfram í leit að innri friði. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú þarft ekki að breyta svo miklu til þess að hrista aðeins upp í venjubundnum degi. Leyfðu öðrum að komast að með sínar skoðanir. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það eru ýmis smáviðvik sem þú þarft að leysa af hendi áður en þú getur tek- ið til við stóru verkefnin aftur. Ekki kaupa hluti sem þú hefur ekki efni á. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það er kominn tími til þess að þú setjir sjálfa/n þig í fyrsta sæti. Lifðu draum- inn þinn og þú öðlast sjálfstraust sem eng- inn getur unnið á. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú átt gott með að láta þér lynda við aðra í dag, þökk sé jafnlyndi þínu og hæfi- leikum til þess að spjalla við allt og alla. Haltu þig til hlés í deilu í nærumhverfinu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú kannt að njóta lífsins og fólk treystir á þig til að hefja partí á æðra plan. Kannski er botninum náð í vissu máli. 23. sept. - 22. okt. k Vog Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þú stofnir til deilna af litlu sem engu tilefni og af hverju þú gerir það. Gæfuhjólið snýst þér í hag. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Reiknaðu ekki með því að óreyndu að samstarfsmenn séu nákvæm- lega á sama máli og þú. Reyndu að vera ein/n með sjálfum þér í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það kann að vera að manneskja, sem er hjálpar þurfi, verði kynnt fyrir þér. Breytingar bíða handan hornsins og skiptir öllu máli að stefna þangað. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þótt þú eigir í innri baráttu er ekki rétt að þú látir hana koma niður á þín- um nánustu. Varastu að lofa upp í ermina á þér. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Mundu að aðgát skal höfð í nær- veru sálar og fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Taktu vel á móti þeim sem leita til þín. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það er undir þér komið hvort sam- skipti þín eru góð eða slæm við aðra. Fylgstu með peningamálunum og forðastu að eyða um efni fram. landbúnaði. Í dag er fólk meðvitaðra hvaðan maturinn kemur og um dýra- velferð. Dýravelferð er eitt af stóru markmiðum Beint frá býli.“ Jóhanna hefur verið í Geitfjárræktarfélagi Ís- lands frá 1992, sem gjaldkeri og for- maður, nú meðstjórnandi. Hún er einnig í Kvenfélagi Hvítársíðu. til 18, yfir vetrartímann er opið eftir samkomulagi Jóhanna var einn af stofnendum Beint frá býli, fyrsti formaðurinn, síð- an ritari og nú meðstjórnandi, en fé- lagið var stofnað 2008. „Það er hitt baráttumálið. Það þarf að vera eitt- hvað til að vinna á móti stóriðnaði í J óhanna Bergmann Þor- valdsdóttir er fædd 24. maí 1961 á Fæðingarheimili Reykjavíkur en ólst upp á Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði. Hún gekk í Varmalands- skóla, sem þá var heimavistarskóli, 7- 14 ára, síðan Héraðsskólann í Reyk- holti í þrjá vetur. Hún vann á sumrin á búinu á Háafelli og síðan hjá Kaup- félagi Borgfirðinga við afgreiðslu- störf, prjónastofu Borgarness, í Essó Borgarnesi og hjá bifreiðastöð Kaup- félags Borgfirðinga við ástöðu á fjár- bílum. Veturinn 1981-82 var hún hjá Námsflokkum Reykjavíkur og 1982- 1985 í Hjúkrunarskóla Íslands. Eftir útskrift frá hjúkrunarskól- anum vann Jóhanna á deild 12 bráða- móttöku a Kleppsspítala og síðan á Heilsugæslustöðinni i Borgarnesi þar til börnunum tók að fjölga og þau hjónin tóku við búinu á Háafelli. Lengi voru þau með blandað bú, en um aldamótin sneru þau sér að geita- rækt. Þó eru enn nokkrar eftir- legukindur á bænum. „Mig dreymdi geitur sem barn en fékk þær þrjár fyrstu árið 1989. Þá var þetta bara hobbí en svo heltóku þær mig, blessaðar, og markmiðið hjá mér varð að byggja upp stofninn og kynna fólk fyrir geitaafurðum. En all- ar hefðir í sambandi við geitur voru orðnar gleymdar. Við búum til osta, paté og pylsur, sápur úr mjólkinni og krem úr tólginni en hún er einstak- lega græðandi og bólgueyðandi. Svo er ég með garð og geri alls konar hlaup og síróp úr jurtum í garðinum. Ég nota líka plönturnar sem krydd í ostana.“ Einnig er unnin kasmírull úr þelinu í ullinni, en hún hafði ekki verið nýtt áður. Á Háafelli eru um 200 veturfóðr- aðar geitur. „Auk þess sem geiturnar fara í slátur þá höfum við líka selt þær til lífs. Það hefur aukist gífur- lega, nú eru 116 skráð býli með geitur og síðustu tölur um geitur á landinu eru tæplega 1.700. Þegar ég byrja þá eru 300 dýr á landinu hjá 40 eig- endum.“ Gestamóttaka hefur verið á Háa- felli frá 2012 og síðastliðin þrjú ár hafa komið 6.000-7.000 manns á ári. Frá 1. júní er opið daglega frá kl. 13 Áhugamál Jóhönnu eru fjöl- skyldan, geitur og fleiri dýr. Hún hef- ur einnig mikinn áhuga á garðyrkju, sérstaklega rósa- og nytjajurtarækt- un. „Lógóið okkar eru geitur og rósir. Rósategundirnar hérna voru 180 þeg- ar mest var en þeim hefur fækkað mikið. Núna legg ég meiri áherslu á Jóhanna B. Þorvaldsdóttir, geitabóndi og hjúkrunarfræðingur – 60 ára Ljósmynd/Bryndís Geirsdóttir Hjónin Þorbjörn og Jóhanna sneru sér að geitarækt um aldamótin. Hún var fyrsti formaður Beint frá býli. Geitur og rósir beint frá býli Ljósmynd/Edda Kristín Egilsdóttir Bambi Eini eftirlifandi geitaleikarinn úr Game of Thrones. Matvæli Afurðir frá Háafelli. Vinkonurnar Bríet Svala Sölvadóttir og Bryn- hildur Ylfa Þórodds- dóttir teiknuðu myndir og seldu nágrönnum sínum í Mosfellsbæ og söfnuðu með því fé til styrktar Rauða kross- inum. Þær komu með afraksturinn þann 27. apríl, 3.783 krónur, og afhentu Rauða krossi Íslands. Hlutavelta 30 ára Reynir er Akureyringur, fæddur þar og upp- alinn og býr í Þorp- inu. Hann er raf- iðnfræðingur að mennt frá Háskól- anum í Reykjavík og er sjálfstætt starfandi rafverk- taki. Maki: Eva Bryndís Bernharðsdóttir, f. 1990, vinnur á Tannlæknastofu Akureyrar. Dóttir: Arna Marý, f. 2020. Foreldrar: Davíð Jónsson, f. 1955, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, og Hildur Haraldsdóttir, f. 1957, ritari á handlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þau eru búsett á Akureyri. Reynir Ingi Davíðsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.