Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
FH – KR.................................................... 0:2
ÍA – Breiðablik ......................................... 2:3
Stjarnan – KA........................................... 0:1
Keflavík – Valur........................................ 1:2
Staðan:
Valur 6 5 1 0 12:6 16
KA 6 4 1 1 11:3 13
Víkingur R. 5 4 1 0 9:3 13
FH 5 3 1 1 11:5 10
Breiðablik 6 3 1 2 14:10 10
KR 5 2 1 2 8:7 7
Leiknir R. 5 1 2 2 6:7 5
Fylkir 5 1 2 2 7:10 5
ÍA 6 1 2 3 7:12 5
Keflavík 6 1 0 5 6:15 3
HK 5 0 2 3 6:11 2
Stjarnan 6 0 2 4 2:10 2
Lengjudeild karla
Grótta – Vestri.......................................... 5:0
Staða efstu liða:
Fram 3 3 0 0 10:3 9
Fjölnir 3 3 0 0 6:1 9
Grótta 3 2 0 1 9:4 6
Vestri 3 2 0 1 6:6 6
2. deild karla
KF – Leiknir F ......................................... 1:0
Staða efstu liða:
KF 3 3 0 0 6:2 9
Reynir S. 3 2 0 1 4:3 6
ÍR 3 2 0 1 5:6 6
Þróttur V. 3 1 2 0 9:5 5
3. deild karla
Elliði – Tindastóll ..................................... 1:0
Augnablik – Sindri ................................... 4:1
Dalvík/Reynir – Ægir .............................. 1:1
Staða efstu liða:
Höttur/Huginn 3 3 0 0 6:3 9
Augnablik 3 2 1 0 8:2 7
KFG 2 2 0 0 4:0 6
Elliði 3 2 0 1 5:4 6
Lengjudeild kvenna
Haukar – Víkingur R ............................... 0:2
Augnablik – FH........................................ 1:4
Afturelding – HK ..................................... 6:2
Staða efstu liða:
Afturelding 3 2 1 0 11:5 7
KR 3 2 0 1 9:4 6
FH 3 2 0 1 8:4 6
Grótta 3 2 0 1 6:5 6
2. deild kvenna
Fjölnir – Einherji ..................................... 3:0
Álftanes – Fjarð/Hött/Leiknir ................ 1:5
Sindri – Fram ........................................... 1:4
Hamrarnir – SR ....................................... 2:1
Völsungur – KH........................................ 2:0
England
Manchester City – Everton .................... 5:0
- Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 59 mín-
úturnar með Everton.
Arsenal – Brighton.................................. 2:0
- Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekknum
hjá Arsenal.
Sheffield United – Burnley .................... 1:0
- Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 89
mínúturnar með Burnley.
Aston Villa – Chelsea ............................... 2:1
Leicester – Tottenham ............................ 2:4
Liverpool – Crystal Palace ...................... 2:0
Fulham – Newcastle ................................ 0:2
Leeds – WBA............................................ 3:1
West Ham – Southampton ...................... 3:0
Wolves – Manchester United.................. 1:2
Lokastaða efstu liða:
Manch. City 38 27 5 6 83:32 86
Manch. United 38 21 11 6 73:44 74
Liverpool 38 20 9 9 68:42 69
Chelsea 38 19 10 9 58:36 67
Leicester 38 20 6 12 68:50 66
West Ham 38 19 8 11 62:47 65
Tottenham 38 18 8 12 68:45 62
Arsenal 38 18 7 13 55:39 61
Leeds United 38 18 5 15 62:54 59
Þýskaland
Bayern München – Augsburg................ 5:2
- Alfreð Finnbogason kom inn á sem vara-
maður á 76. mínútu hjá Augsburg sem end-
aði í 13. sæti.
B-deild:
Holstein Kiel – Darmstadt...................... 2:3
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn og lagði upp mark fyrir Darmstadt sem
endaði í 7. sæti.
Ítalía
Bologna – Juventus ................................. 1:4
- Andri Fannar Baldursson kom inn á sem
varamaður á 80. mínútu hjá Bologna sem
endaði í 12. sæti.
Danmörk
Bröndby – Nordsjælland ........................ 2:0
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby sem er danskur meistari.
Bandaríkin
New England – New York RB ............... 3:1
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 61
mínútuna með New England og lagði upp
tvö mörk.
Noregur
Tromsö – Sandefjord .............................. 1:3
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn og
skoraði fyrir Sandefjord.
Lilleström – Viking ................................. 1:1
- Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 85
mínúturnar með Viking og lagði upp mark.
50$99(/:+0$
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslandsmeistarar KR þurfa einn sig-
ur í viðbót til að fagna einstaklega
sætum sigri á Val í einvígi liðanna í
átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í
körfubolta eftir 115:103-sigur á Hlíð-
arenda á sunnudagskvöld. Staðan er
nú 2:1, KR í vil, en allir leikir einvíg-
isins til þessa hafa endað með útisigr-
um. Sem fyrr gerðu KR-ingar gríð-
arlega vel í að loka á Jordan Roland í
liði Vals á meðan Valsmenn réðu lítið
við Brandon Nazione, Tyler Sabin og
Matthías Orra Sigurðarson. Miguel
Cardoso spilaði best Valsmanna, en
of margir leikmenn voru undir pari.
Þór frá Þorlákshöfn er kominn í
2:1-forystu gegn nafna sínum frá Ak-
ureyri. Þar hafa leikirnir unnist af
heimaliðunum til þessa, en lokatölur í
Þorlákshöfn urðu 109:104. Heima-
menn geta þakkað fyrir sýningu fyrir
utan þriggja stiga línuna þar sem lið-
ið skoraði átján þriggja stiga körfur.
Larry Thomas gerði sjö af þeim og
skoraði 29 stig. Þór frá Akureyri
skoraði 16 þrista og Derick Basile
gerði fjóra þeirra og var með 27 stig.
Á laugardag urðu deildarmeistarar
Keflavíkur fyrsta liðið til að tryggja
sér sæti í átta liða úrslitunum eftir
87:83-sigur á Tindastóli á heimavelli.
Tindastóll var yfir nánast allan tím-
ann, en Keflvíkingar tóku fram úr á
lokakaflanum og það dugði til sigurs.
Tímabilið var erfitt fyrir Skagfirðinga
og það kemur ekki sérstaklega á
óvart að Keflavík hafi sópað þeim úr
keppni, enda deildarmeistarar að
spila við liðið sem endaði í áttunda
sæti. Það er erfitt að sjá nokkurt lið
vinna Keflavík þrisvar í þessari úr-
slitakeppni.
Stjörnumenn voru yfir stærstan
hluta leiks á móti Grindavík á heima-
velli sínum og unnu að lokum 85:69-
sigur. Rétt eins og í Þórsslagnum
hafa heimaliðin fagnað sigri til þessa í
einvíginu. Með Ægi Þór Steinarsson
og Hlyn Bæringsson í miklu stuði
áttu Grindvíkingar litla möguleika
gegn sterku Stjörnuliði. Fáir spiluðu
vel hjá Grindavík og skoraði Ka-
zembe Abif, einn af atvinnumönnum
liðsins, aðeins tvö stig og átti arfas-
lakan leik. Hann verður að spila
miklu betur ætli Grindavík sér að
koma á óvart og slá Stjörnuna úr leik.
Meistararnir
sýndu klærnar
- Keflavík fyrst í átta liða úrslit
Afturelding varð á laugardag Ís-
landsmeistari kvenna í blaki með
því að sigra HK í oddaleik liðanna
um titilinn í Fagralundi í Kópa-
vogi. Afturelding vann fyrstu hrin-
una 25:22 og þá næstu 25:19. Mikil
spenna var í þriðju hrinu og stað-
an jöfn, 24:24, þannig að fram-
lengja þurfti en þar tryggði Aftur-
elding sér sigurinn, 27:25, og vann
leikinn þar með 3:0.
Mosfellingar sneru því blaðinu
við eftir að hafa tapað fyrsta leik
úrslitaeinvígisins 3:1 í Fagralundi
og vann heimaleikinn 3:1 áður en
kom að oddaleiknum.
Þrátt fyrir tapið var HK-
ingurinn Hjördís Eiríksdóttir
stigahæst allra með 17 stig. María
Rún Karlsdóttir skoraði 15 stig
fyrir Aftureldingu og Thelma
Dögg Grétarsdóttir skoraði 11
stig.
Thelma fór á kostum í deildinni
í vetur og skoraði 348 stig, þar af
64 beint úr uppgjöf. Valdís Unnur
Einarsdóttir varði 0,73 bolta að
meðaltali í leik á meðan María
Rún Karlsdóttir var besti móttak-
arinn með 20% nýtingu.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Meistarar Leikmenn Aftureldingar fagna Íslandsmeistaratitlinum.
Fagnað í Mosfellsbæ
Afturelding varð í gær síðasta liðið
til að gulltryggja sér sæti í úr-
slitakeppni Íslandsmóts karla í
handbolta. Liðinu nægði jafntefli á
útivelli gegn ÍBV og eftir æsispenn-
andi leik urðu lokatölur 27:27.
Bergvin Þór Gíslason skoraði sjö
mörk fyrir Aftureldingu og þeir
Fannar Friðgeirsson og Sigtryggur
Daði Rúnarsson fimm mörk hvor
fyrir ÍBV. Hefði ÍBV skorað í loka-
sókn leiksins væru Framarar enn í
baráttunni um sæti í úrslitakeppn-
inni eftir 32:20-stórsigur á Gróttu á
heimavelli. Eins og oft áður var
Andri Már Rúnarsson áberandi hjá
Fram með níu mörk. Stigið nægði
hins vegar Aftureldingu, sem er
með þremur stigum meira en Fram
þegar aðeins ein umferð er eftir.
Haukar, FH, Stjarnan, Valur,
KA, Selfoss, ÍBV og Afturelding
leika því um Íslandsmeistaratitilinn
í lok móts. Aðeins á eftir að koma í
ljós hvaða lið mætast og hvaða lið
verða með heimavallarrétt.
Deildarmeistarar Hauka eru
mjög sigurstranglegir en þeir unnu
enn og aftur sannfærandi sigur er
þeir heimsóttu Selfoss og unnu
35:24. Haukar hafa unnið hvern
stórsigurinn á fætur öðrum síðustu
vikur og virðast óstöðvandi. Orri
Freyr Þorkelsson skoraði mest í
gær eða sex mörk.
Valur hefur unnið fjóra af síð-
ustu fimm og Hlíðarendaliðið ætlar
sér að berjast við Hauka. Þorgils
Jón Svölu Baldursson skoraði sjö
mörk í 31:27-heimasigri á KA. Þá
vann FH 30:25-sigur á stigalausu
liði ÍR. Einar Rafn Eiðsson skoraði
sjö fyrir FH, sem er í öðru sæti.
Ljóst hvaða lið fara
í úrslitakeppnina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrslitakeppni Afturelding tryggði
sér sæti í úrslitakeppninni.
_ Bandaríkjamaðurinn Phil Mickel-
son varð á sunnudagskvöld elstur til
að vinna á einu risamótanna í golfi
þegar hann sigraði á PGA-meist-
aramótinu á Kiawah Island í Suður-
Karólínu í Bandaríkjunum. Mickelson
er fimmtugur og verður raunar 51 árs í
næsta mánuði. Julius Boros var 48
ára og fjögurra mánaða þegar hann
vann á sama móti, PGA-meist-
aramótinu, árið 1968. Mickelson slær
því metið nokkuð duglega.
_ Magdeburg er
Evrópudeild-
armeistari karla í
handbolta eftir
28:25-sigur á
Füchse Berlin í úr-
slitaleik í Manheim
á sunnudag. Ómar
Ingi Magnússon
var markahæstur
hjá Magdeburg með sjö mörk. Gísli
Þorgeir Kristjánsson lék ekki með lið-
inu vegna meiðsla.
_ Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir stóð uppi sem sig-
urvegari á B59-hótelmótinu í golfi á
sunnudag. Mótið er annað stigamót
ársins hjá Golfsambandi Íslands og
var leikið á Garðavelli á Akranesi. Guð-
rún lék þrjá hringi á samtals tíu högg-
um undir pari. Ragnhildur Krist-
insdóttir bætti hins vegar níu ára
vallarmet Guðrúnar um þrjú högg er
hún lék þriðja hringinn á 63 höggum.
Aron Snær Júlíusson vann í karlafokki
á sjö höggum undir pari.
_ Chelsea og Liverpool leika í Meist-
aradeild Evrópu í fótbolta á næstu
leiktíð en Leicester þarf að gera sér að
góðu að leika í Evrópudeildinni. Þetta
varð ljóst er lokaumferð ensku úrvals-
deildarinnar var leikin á sunnudag. Sa-
dio Mané skoraði bæði mörk Liverpool
í 2:0-sigri á Crystal Palace á heimavelli
á meðan Chelsea og Leicester töpuðu
bæði; Chelsea fyrir Aston Villa á úti-
velli, 1:2, og Leicester fyrir Tottenham
á heimavelli, 2:4,. Chelsea var í betri
stöðu fyrir um-
ferðina og kom
tapið því ekki að
sök. Gylfi Þór Sig-
urðsson brenndi
af víti hjá Everton
sem fékk stóran
0:5-skell á útivelli
gegn meisturum
Manchester City.
_ Dagný Brynjarsdóttir landsliðs-
kona í knattspyrnu verður áfram hjá
enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham
á næstu leiktíð en hún gekk til liðs við
Lundúnaliðið í janúar. Íslenska lands-
liðskonan hjálpaði West Ham að halda
sér í úrvalsdeildinni en hún spilaði níu
deildarleiki fyrir liðið sem endaði í 9.
sæti af 12.
Eitt
ogannað
ÍBV og Valur fara vel af stað í und-
anúrslitum Íslandsmóts kvenna í
handbolta og eru komin í 1:0 í ein-
vígjum sínum eftir sigra á sunnu-
dag.
ÍBV vann 27:26-útisigur á KA/
Þór í stórskemmtilegum leik. KA/
Þór var yfir stóran hluta leiks en
ÍBV var örlítið sterkara liðið í
seinni hálfleik. Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir fór á kostum fyrir
ÍBV og skoraði 11 mörk. Rakel
Sara Elvarsdóttir var markahæst
hjá KA/Þór með sex mörk.
„Heimakonur voru margar ólíkar
sjálfum sér í þessum leik, sér-
staklega eftir því sem leið á leikinn,
og virtust bara ekki þola
spennuna,“ skrifaði Einar Sig-
tryggson m.a. um leikinn á mbl.is.
Valur og Fram hafa lengi elt
grátt silfur saman og leikið ófáa
spennandi úrslitaleikina síðustu ár.
Valskonur voru hins vegar mun
sterkari á heimavelli Framkvenna
og unnu öruggan 28:22-sigur. Thea
Imani Sturludóttir og Lovísa
Thompson fóru á kostum fyrir Val
og skoruðu saman rúmlega helming
marka liðsins.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Slagur Elísa Elíasdóttir sækir að varnarmönnum KA/Þórs á Akureyri.
ÍBV og Valur byrja betur