Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.5. 2021
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380
T
vöfalt fleiri bóluefnisskammtar
bárust í vikunni en í vikunni á
undan, svo loks komst hreyf-
ing á bólusetningar í landinu. Var
mikil umferð til og frá Laugardals-
höll, þar sem um 25 þúsund manns
voru boðuð í bólusetningu. Jafnvel á
föstudag, þegar engin bólusetning fór
þar fram, mátti enn sjá fólk, sem ekki
kann á dagatal, rjátla við dyrnar.
Hins vegar kom upp hópsmit í Þor-
lákshöfn, þar sem allt var sett í hæga-
gang, í von um að hamla frekari út-
breiðslu skjótt. Elliði Vignisson
bæjarstjóri lét í ljós vonir um að það
tækist, en var svo sjálfur greindur.
Heimsmarkaðsverð á minkaskinnum
hefur tvöfaldast, svo salan stendur
undir framleiðslukostnaði í fyrsta
sinn í fimm ár. Loðdýrabændur eru
agndofa yfir þessu nánast fordæma-
lausa ástandi.
Fram eru komin frumvarpsdrög þar
sem gert er ráð fyrir því að veita ráð-
herra auknar heimildir til þess að
veita fólki utan EES undanþágur til
þess að kaupa fasteignir í landinu.
Þessu fögnuðu ýmsir líkt og mikil
lagabót væri, en engum hefur dottið í
hug að kæra ólög þessi til mannrétt-
indadómstóls fyrir brot á eignarrétti
seljenda.
Læknar telja að Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra sé enn við
sama heygarðshornið og að reglu-
gerðardrög hennar um endurgreiðslu
sjúkrakostnaðar vegna þjónustu
sjálfstætt starfandi sérgreinalækna,
sem Sjúkratryggingar Íslands hafi
ekki samið við, séu án lagastoðar.
Þjóðvegi 85 í gegnum miðbæ Húsa-
víkur (ekki úthverfi) var lokað um
liðna helgi vegna Óskarsverðlauna-
hátíðarinnar. Milli Húsavíkur og
Hollywood eru liðlega 7.000 km.
Skagfirðingurinn Bjarni Jónsson
bar sigurorð af Lilju Rafneyju
Magnúsdóttur frá Súganda í forvali
Vinstri grænna í Norðvest-
urkjördæmi. Hún er eini þingmaður
flokksins í kjördæminu.
. . .
Það varð sumarlegra á höfuðborgar-
svæðinu þegar sólin lét sér kræla í
hlýju og fallegu hæglætisveðri. Sól-
gleraugnaþurrðar gætti á sumum
bensínstöðvum.
Varðskipið Þór fékk heiðursheima-
höfn á Þórshöfn á Langanesi og
verður framvegis ekki krafið um
hafnargjöld þar eystra.
Aðalmeðferð hófst í réttarhöldum yf-
ir Marek Moszcynski, sem ákærður
er fyrir íkveikju á horni Bræðra-
borgarstígs og Vesturgötu síðastliðið
sumar, en þar létust þrír og lífi fjölda
annarra var stefnt í hættu.
Stytting vinnuviku hjá hinu op-
inbera heldur áfram en vaktavinna á
níunda þúsund starfsmanna á 700
vinnustöðum styttist nú um mán-
aðamótin. Á sama tíma hefur kaup
opinberra starfsmanna hækkað
verulega. Enginn virðist hins vegar
vita hvaða afleiðingar þetta hafi fyrir
þjónustu eða útgjöld hins opinbera.
Gagnrýni kom fram á smáhýsastefnu
Reykjavíkurborgar fyrir heimilis-
laust fólk, að smáhýsin væru lítið
annað en eftirlitslaus neyslurými.
Skúli Magnússon, dómstjóri við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur, var kjörinn
umboðsmaður Alþingis til næstu
fjögurra ára.
. . .
Afléttingaráætlun stjórnvalda var
kynnt, en hún er nátengd árangri við
bólusetningar. Útlit er fyrir öra
rýmkun samkomubanns og fjölda-
takmarkana á næstunni, þannig að
allt að þúsund manns megi hittast í
lok maí til þess að fíla Grøn án þess að
sóttvarnalæknir fýli grön.
Fyrstu íbúarnir eru að koma sér fyrir
í munaðaríbúðum við Austurhöfn,
þar sem meðal annars má kaupa fok-
helda íbúð á hálfan milljarð króna.
Greint var frá því að nýja flugfélagið
Play myndi fara í sitt fyrsta farþega-
flug hinn 24. júní. Mikil leynd hvílir
yfir áfangastaðnum þó sennilegast sé
hann í Evrópu. Gert er ráð fyrir því
að félagið fái senn flugrekstrarleyfi
og hafi þrjár Airbus A321-NEO á sín-
um snærum.
Íslenska landsliðið í handbolta sigr-
aði Ísrael og fóru helstu handbolta-
sérfræðingar landsins nærri því að
djinxa liðið með því að segja sæti þess
á Evrópumeistaramóti vera forms-
atriði.
Eldsumbrot við Geldingadali héldu
áfram og nær hraunið nú yfir 1,13
ferkílómetra. Gusur úr helsta gígnum
hafa líka gengið hærra og mátti víða
sjá gosið af höfuðborgarsvæðinu í
blíðviðrinu í vikunni.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir kostnað ríkisins vegna
styttingar vinnuviku vera metinn á
4,2 milljarða króna á ári. Er þar þó
ekki tekið tillit til þess hversu hátt
hlutfall starfsmanna ríkisins vinni og
hversu svefnsamt þeim sé í vinnunni.
Ríkislögreglustjóri undirbýr reglu-
gerð um notkun öryggismyndavéla,
en í ráði er að hafa eftirlitsmynda-
vélakerfi í öllum lögregluumdæmum
að kínverskri fyrirmynd. Lögreglu-
þjónar segjast ekki vita hversu mikl-
um upplýsingum sé sjálfsagt og eðli-
legt að safna og varðveita um
borgarana, sennilega geti heimspek-
ingar helst svarað því. Þeir munu þó
ekki hafa verið spurðir.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir,
fréttamaður á Rúv., var kjörin for-
maður Blaðamannafélagsins. Það er
óvenjulegt enda vinnur starfsfólk
Rúv. ekki samkvæmt kjarasamn-
ingum Blaðamannafélagsins.
. . .
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
fór í bólusetningu í Laugardalshöll og
var honum líkt og rokkstjörnu klapp-
að lof í lófa af öðrum bóluefnisþegum.
Hann tók sér stöðu með krepptan
hnefa á lofti og laut höfði, en tók þó
ekki um hnéð.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru al-
mennt bjartsýnni á sumarið en fyrir
nokkrum vikum, sem má bæði rekja
til aukinnar eftirspurnar erlendra
ferðamanna, einkum bólusettra
Bandaríkjamanna og Breta, og ríf-
andi gangs í bólusetningum hér á
landi. Er því vonast til að ferðaþjón-
ustan geti tekið við sér snemmsum-
ars fremur en síðsumars, en um það
mun mikið muna.
Landeigendur að Hrauni í Grindavík
hafa fengið fyrirspurnir um hvort
jörðin sé föl. Margir telja að eldgosið
þar geti orðið mjög langvinnt og eru
uppi getgátur um að ferðaþjónustu-
spekúlantar ásælist jörðina.
Leiðangur á vegum Náttúrufræði-
stofnunar lá á gægjum á Hornströnd-
um og fylgdist með tilhugalífi refa.
Mikil breyting hefur orðið í rekstri
dagvöruverslana þar sem sjálfsaf-
greiðsla hefur aukist hröðum skref-
um og er nú um 80% sölu þeirra, þar
sem mest er, en meðaltalið nær 70%.
Íbúar fjölbýlishúsa við Þorrasali í
Kópavogi eru sáróánægðir með áform
um nýjan veg og stokk sunnan við
húsin og telja slysahættu fyrir börn
þeirra snaraukast fyrir vikið fyrir ut-
an hávaða og ónæði.
. . .
Nýtt baðlón var opnað á Kársnesi í
Kópavogi, sem af einhverjum ástæð-
um er nefnt Sky Lagoon upp á ensku.
Verðbólga hefur aukist að undan-
förnu og mældist 12 mánaða verð-
bólga 4,6% í aprílmánuði. Seðlabank-
inn kann því að grípa til sinna ráða.
Verðbólgan er m.a. rakin til mikilla
launahækkana undanfarin misseri.
Vorið er komið eins og best sést á því
að í Vestmanneyjum heyrist vart
mannsins mál fyrir farfuglum en í
Reykjavík er erfitt að komast yfir
götu án þess að vera ekinn niður af
rafskutlum.
Viðtal við dr. Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóra vakti athygli, en þar
sagði hann hagsmunaöfl hafa óvenju-
mikil áhrif í landinu. Undir það tóku
vinstrimenn af mikilli velþóknun uns
seðlabankastjóri upplýsti að með því
hefði hann ekki síst átt við verkalýðs-
hreyfinguna.
Ársreikningur Reykjavíkurborgar
leit dagsins ljós með fréttatilkynningu
um að taprekstur mætti rekja til
minnkandi tekna í heimsfaraldrinum.
Sem er rangt, tekjurnar jukust enn,
bara minna en borgarstjóri vonaði.
Samt var í engu hróflað við rekstr-
inum og afkoman í fyrra 15 millj-
örðum verri en ráðgert var á meðan
skuldirnar hækkuð um 41 milljarð í
386 milljarða króna.
Böns af bóluefni
og bólusetningum
Tugþúsundir voru bólusettar í Laugardalshöll í vikunni og enn fleiri verða víst sprautaðir í komandi viku.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
25.4.-30.4.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is