Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Page 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.5. 2021 ÁLandspítalanum við Hring-braut tekur Hans TómasBjörnsson glaðlega á móti blaðamanni og býður inn á skrifstofu. Yfirlæknirinn Hans Tómas er sér- hæfður á ýmsum sviðum; hann er doktor í mannerfðafræði frá Johns Hopkins í Baltimore sem er afar virt- ur spítali vestra. Þar lauk hann einn- ig sérnámi í barnalækningum en lét sér það ekki nægja og sérhæfði sig einnig í klínískri erfðafræði. Hans er með ýmis verkefni á sinni könnu; hann sinnir sjúklingum, stundar mikla rannsóknarvinnu og kennir bæði við Háskóla Íslands og Johns Hopkins-spítalann. Á miðvikudaginn hlaut Hans verð- laun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði sem var stofnaður af læknunum Þórði Harðarsyni og Árna Krist- inssyni. Hans segir afar spennandi tíma fram undan í erfðafræðirann- sóknum. Hægt að skoða litningabrot Hans ákvað snemma að hann vildi sinna vísindavinnu meðfram klínískri læknisfræði. „Ég var alveg viss um það, þegar ég kláraði læknisfræðina, að mig langaði til að hafa eigin rannsókna- stofu. Því fannst mér tilvalið að taka fyrst doktorsprófið,“ segir Hans sem sinnir jöfnum höndum sjúklingum og rannsóknum. „Í klínískri erfðafræði er verið að greina og finna orsakir sjúkdóma,“ útskýrir Hans og nefnir sem dæmi að hann sinni börnum sem fæðast með heilkenni sem þarf svo að greina og meðhöndla. „Ég reyni líka að útskýra fyrir for- eldrum hvernig sjúkdómurinn eigi eftir að haga sér og í sumum tilvikum hjálpum við til með meðferð, sér- staklega ef um er að ræða efna- skiptasjúkdóma,“ segir hann og út- skýrir að í gamla daga var aðeins hægt að greina heilkenni eftir útlits- einkennum. Í dag eru til erfðapróf sem hjálpa til við slíkar greiningar. „Núna er tæknin svo ofboðslega öflug. Það er hægt að skoða litninga og lítil brot af litningum og einnig er- um við farin að geta raðgreint alveg niður að staka basa til að leita að stökkbreytingum sem valda ákveðnum erfðasjúkdómum,“ segir hann og nefnir að framfarirnar haldi áfram. „Í framtíðinni verða allir rað- greindir. Og það er ótrúlegt hvað er hægt að raðgreina í dag, sem hefur meðal annars nýst nú í faraldrinum með raðgreiningu á veirum. Þetta hefði ekki verið hægt fyrir tíu fimm- tán árum. Það eru spennandi tímar fram undan, líka í sambandi við CRISPR-Cas9. Það er aðferð til að breyta erfðaefni og ég held það verði önnur líftæknibylting sem fylgir henni,“ segir Hans sem einmitt talaði á nýafstaðinni ráðstefnu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar um framfarir í erfðafræðilegum rannsóknum. Pilarowski-Björnsson heilkenni „Það er hægt að gera hluti sem ekki var hægt áður. En enn er margt órannsakað. Það eru til tuttugu þús- und gen og það eru til sex þúsund þekktir erfðasjúkdómar en talið er að þeir verði fleiri á endanum. Nú er skemmtilegur tími því það er mikið verið að lýsa nýjum sjúkdómum. Hver einasti sjúkdómur kennir manni eitthvað. Og þótt við þekkjum núna sex þúsund sjúkdóma þurfum við helst öll púslin til að geta sett saman heildarmyndina. Þess vegna eru þetta svona spennandi tímar; við erum að finna fleiri og fleiri púsl,“ segir Hans og segist hafa tekið þátt í rannsóknum sem leiddu til þess að þau fundu áður ógreint heilkenni. „Við vorum með sex stelpur með stökkbreytingar í sama geni og tók- um eftir því að þær voru með sam- eiginleg einkenni,“ segir Hans og lýsir heilkenninu. „Þetta er meðfæddur genagalli sem kemur aðeins fram í stúlkum. Hann veldur vaxtarskerðingu, sein- þroska og ákveðnum útlits- einkennum. Sumar af stelpunum hafa ekki haft alvarleg einkenni, eða þau hafa lagast með árunum,“ segir Hans og segist hafa gert tilraunir á músum til að skoða betur sjúkdóm- inn. „Músin staðfesti að breytingin sem við fundum upphaflega sé sjúk- dómsvaldandi. Mýsnar fá sömu ein- kenni og börnin höfðu,“ segir Hans og segir hann þennan sjúkdóm heita nú Pilarowski-Björnsson, eftir sér og doktorsnema sínum. Breytileiki utangenaerfða Hans segir Pilarowski-Björnsson vera einn af þeim sjúkdómum sem tengjast utangenakerfinu. Utan- genaerfðir eru eiginleikar sem skráðir eru í erfðaefnið án þess að vera skrifaðir í DNA-röðina sjálfa. „Utangenakerfi hjálpar frumum að ákveða hvaða gen eru virk og hver eru ekki virk. Þegar ég byrjaði að vinna við þetta spurðu mig margir hvort utangenaerfðir væru í raun til, hvort þetta væri ekki bara kjaftæði. En síðustu ár hafa aðferðirnar til að greina þetta verið svo góðar að við skiljum þetta betur og utangenaerfð- ir hjálpa okkur meðal annars að finna svæði í erfðamenginu sem eru mikilvæg,“ segir Hans og útskýrir að truflun í utangenakerfinu fylgi oft þroskaskerðing og vaxtartruflanir. „Í doktorsnáminu var ég á rann- sóknastofu sem sérhæfði sig í mannarannsóknum og við vorum snemma í því að þróa aðferðir til að meta utangenaerfðir. Ég sýndi fram á, ásamt öðrum, að þessar utan- genaerfðir breytast töluvert þegar fólk eldist. Það var okkar helsta framlag á þeim tíma,“ segir Hans. „Svo í sérnáminu fór ég að hugsa um hve ótrúlegt það sé að til séu sjúkdómar þar sem fólk vantar hluta af þessu kerfi. Þá fannst mér áhuga- vert að rannsaka þann hóp. Þegar ég fékk stöðuna úti opnaði ég göngu- deild fyrir fólk með slík heilkenni; fólk sem hafði truflun í utangena- erfðum. Þannig gat ég lært meira um þessa sjúkdóma,“ segir Hans og seg- ir deildina enn virka og hann vinni þar að hluta. Virkar alltaf á mýs „Ég var búinn að sjá í doktorsnám- inu að það væri mikill breytileiki, jafnvel í heilbrigðu fólki, og þá lang- aði mig að sjá hvort hægt væri að meðhöndla sjúkdóma með því að breyta utangenaerfðunum. Og með því mögulega geta læknað einhvern sjúkdóm. Á þessum tíma var nýbúið að skilgreina sjúkdóm sem heitir Kabuki-heilkenni. Mér fannst sá sjúkdómur frábær til að prófa þessa tilgátu. Okkur tókst að sýna fram á að í músamódeli af Kabuki- heilkennin er truflun á fyrirbæri sem er mjög virkt eftir fæðingu; tauganý- myndun. Við einbeittum okkur að því að laga utangenagallann sem var til staðar til að sjá hvort svipgerðir eins og tauganýmyndun myndi lagast. Rannsóknir okkar benda til að það sé hægt, alla vega að hafa áhrif á þenn- an tauganýmyndunargalla,“ segir Hans en hann fékk yfir milljón doll- ara styrk árið 2013 frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) til rannsókna á Kabuki-heilkenninu. Hans segir rannsóknirnar hafi skilað góðum niðurstöðum. „Ég hugsa að við munum ekki geta haft áhrif á þætti eins og hjartagalla en mögulega á vaxtarskerðinguna og jafnvel á þroska heilans. Á þessu ári eru tvö lyfjapróf í gangi til að finna meðferð fyrir þennan hóp. Við höfum prófað þetta á músum og það virkar alltaf; en mýs eru náttúrulega ekki menn. Niðurstöðurnar eru samt ótrúlega skýrar og nóg til að færa yf- ir til sjúklinga.“ Lyf sem breyta sjúkdómum Hans segir að hingað til hafi ekki verið til margar meðferðir í erfða- fræði. „Ég held að flóðgáttirnar séu að opnast. Síðustu ár hafa komið á markað spennandi lyf sem eru ekki bara að hjálpa, heldur gjörbreyta sjúkdómum,“ segir hann og tekur dæmi af sjúkdómi sem heitir SMA, eða rauðvöðvasjúkdómur í hrygg. „Börn sem fæðast með alvarleg- asta form af SMA geta aðeins hreyft augun; ekkert annað. Einhver þróaði meðferð fyrir þennan sjúkdóm og það er byrjað að gefa lyf við þessum sjúkdómi hér á landi og víðar. Þessir krakkar sem fá meðferðina eru með allt aðrar lífslíkur en þau börn sem fá enga meðferð, sérstaklega ef byrjað er nógu snemma. Þau hlaupa um og hoppa og lyfið virðast alltaf gera eitt- hvert gagn sama hvenær lyfja- meðferð er hafin. Það hefur ekki enn verið prófað á fullorðnum, en þessi lyf eru mjög dýr,“ segir Hans og seg- ir einnig spennandi rannsóknir í gangi varðandi Duchenne-sjúkdóm- inn. „Fyrir þann sjúkdóm eru niður- stöðurnar samt ekki eins afgerandi. En það er gleðiefni að lyfjafyrir- tækin séu farin að hugsa um þessa sjaldgæfu sjúkdóma sem fæstir hugsuðu um áður.“ Mikill heiður Á miðvikudaginn voru Hans veitt ein merkilegustu vísindaverðlaun lækn- isfræðinnar hérlendis, úr Verðlauna- sjóði í læknisfræði, en þau eru nú veitt í tíunda sinn. „Það er ofsalega mikill heiður að fá þessi verðlaun. Verðlaunin eru sex milljónir sem ég hyggst nota til áframhaldandi rannsóknastarfa. Ég er með mjög öflugan hóp af ungu fólki sem er með mér í rannsóknum,“ segir Hans og segist vera spenntur fyrir rannsóknum sem hann og hans teymi vinnur að um þessar mundir. „Við erum að módela nokkra sjúk- dóma í músum, meðal annars Kabuki og Pilarowski-Björnsson. Svo er ég með stórt verkefni í samstarfi við er- lendan samstarfsmann þar sem við ætlum að skoða áhrif utangenaerfða á sérhæfingu taugafruma. Okkur langar að skilja þetta betur. Einnig er ég að skoða hvernig áhrifum um- hverfishitastigs er miðlað í spendýr- um. Þar erum við að reyna að skilja erfðaþættina á bak við hitastigs- viðbrögð í spendýrum en það verk- efni er gert í samvinnu við Kára Stef- ánsson hjá Íslenskri erfða- greiningu.“ Erum að finna fleiri og fleiri púsl Dr. Hans Tómas Björnsson segist sjá miklar framfarir í meðferðum við erfðasjúkdómum, enda fleygir tækninni ört fram. Í vikunni fékk hann virt vísindaverðlaun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís „Í framtíðinni verða allir raðgreindir. Og það er ótrúlegt hvað er hægt að raðgreina í dag, sem hefur meðal annars nýst nú í faraldrinum með raðgreiningu á veirum. Þetta hefði ekki verið hægt fyrir tíu fimmtán árum,“ segir Hans Tómas.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.