Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Page 15
2.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 marga dóma. Í dag birtast sumir dómar sem hann hefur hlotið inni á dómaskrá; það hefur verið lagað eftir á,“ segir hún. „Eftir að það kom fram í fréttum að hann væri góðkunningi lögreglunnar voru viðbrögð frá fólki stundum: „Næst leigir þú ekki glæpa- manni!“ Ég skil að samfélagið vilji trúa því að það myndi ekki lenda í svona atviki og leitar leiða til að finna lógíska orsök svo ég tek svona ummæli ekki nærri mér en velti fyrir mér hverjar afleiðingar upplýsingagjafar geta verið gagnvart brotaþola og hans bataferli.“ Af hverju gekk hann laus? Fréttir þú seinna að lögreglan hafi verið að fylgjast með honum? „Já, en það var ekki fyrr en í réttarsal. Það er margt sem tefur svo fyrir minni úrvinnslu á þessu áfalli því ég er alltaf að hnjóta um upp- lýsingar sem koma mér á óvart. Þá fer maður að hugsa, ég hefði getað dáið. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir árásina. Hér er ég borgari í þessu samfélagi þar sem helsta hlut- verk ríkisins er að vernda almenna borgara.“ Eins og fyrr segir var árásarmaðurinn í geð- rofi vegna vímuefnaneyslu, og það ekki í fyrsta sinn. „Hann á sögu um að fara í geðrof eftir mikla neyslu og hann var virkur í neyslu, það var vit- að á þessari stundu. Hann var búinn að sitja inni áður fyrir líkamsárásir. Tveimur mán- uðum áður en hann réðst á mig, hafði hann tek- ið mann í gíslingu í sautján klukkutíma og bar- ið hann með kúbeini. Lögreglan kom að honum í verknaðinum. Enginn veit hvernig það hefði annars endað.“ Af hverju var hann ekki í fangelsi fyrir það brot? „Það er það sem truflar mig!“ Herdís segir að í réttarsal hafi komið fram í vitnisburði lögreglu að hún hafi lengi vitað hvar hann hélt til. Vissi lögreglan þá að hann bjó hjá þér? „Já, mér skilst það,“ segir Herdís. „Ég veit að fólk er saklaust þar til sekt er sönnuð. En þegar fólk er orðið hættulegt sam- félagi sínu, og lögreglan sjálf stendur mann að svo alvarlegum verknaði eins og að svipta mann frelsi og lemja með kúbeini, þá skilur maður ekki að seinlæti í kerfinu geri það að verkum að hann gangi laus. Það var ítrekað bú- ið að taka hann undir stýri undir áhrifum am- fetamíns og kókaíns og í hálfgerðu geðrofi. Er það ekki nóg til að stoppa hann? Og hann var á skilorði. Eru þetta ekki nógu mörg atriði til að fangelsa hann vegna almenningshagsmuna, þótt ekki hafi verið fallinn dómur? Hver ber ábyrgð á því að hann gekk laus, og ekki bara vegna okkar almennings heldur líka gerandans vegna? Það er ekkert gaman að vakna upp úr vímu og vera búinn að drepa konuna á efri hæðinni.“ Að vara fólk við Herdís segir að eftir að hafa hnotið um margt í réttarkerfinu sem henni hafi þótt sérkennilegt, sé það þó tvennt sem standi upp úr. „Annað er staða brotaþola, hún er ekki nógu góð. Ég veit að dómsmálaráðherra var að leggja fram frumvarp til að breyta henni. Það er vel, en það er ekki gengið nógu langt. Brota- þoli á ekki aðild að máli og hefur enga aðkomu að uppbyggingu málsins. Ég get sett skaða- bótakröfu inn í málið, en það er allt og sumt. Ég hef til dæmis enga stjórn á því hvort málinu sé áfrýjað eða ekki. Í dómsal sit ég úti í sal sem áhorfandi en ekki með lögmanni mínum. Ég er bara vitni í málinu,“ segir hún og segist vera það „heppin“ að hennar mál hafi verið það aug- ljóst að enginn vafi lék á sekt gerandans. Þó hafi verjandi reynt að véfengja framburð Her- dísar og meðal annars sagt að þar sem gerandi væri svo stór og sterkur að ef hann hefði ætlað að drepa hana hefði hann alltaf getað gert það. „Þeir hafa aldrei heyrt söguna um Davíð og Golíat?“ segir Herdís. „Það er rosalega sérstakt að sitja undir þessu þar sem augljóst er að öll högg beindust að höfði, hálsi og búk,“ segir hún og bætir við að „ferðalaginu“ í gegnum dómskerfið sé ekki lokið. Árásarmaðurinn var dæmdur í sex og hálfs ár í fangelsi fyrir tilraun til manndráps, alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu. Málið á eftir að fara fyrir Landsrétt. Herdís segir einnig hafa verið sérstakt að gerandinn hafi ekki þurft að mæta fyrir dóm- ara heldur hafi vitnisburður farið fram í gegn- um fjarfundabúnað vegna Covid og þar af leið- andi hafi þeim hluta af réttarhöldunum verið varpað á skjá í litlum réttarsal. „Þar stóð max fimm á hurðinni en það er grundvallarregla í okkar samfélagi að réttarhöld skuli vera opin,“ segir hún. „Hann var bara í bómullarmeðferð í boði rík- isins út af Covid! Við vitnin vorum í stórum sal og sátum því ekki við sama borð. Fjölmiðlar áttu að geta hlustað á mig en ekki hann,“ segir hún og segist hafa mótmælt þessum vinnu- brögðum. „Ég mætti með dætur mínar tvær í dóms- húsið og einnig var þar fjölmiðlakona sem ætl- aði að hverfa frá en ég benti henni á að hún ætti rétt á að vera viðstödd, og á endanum fengu þær að fara inn,“ segir hún. „Hitt sem stendur upp úr er það að hann skyldi ganga laus. Ef það var ekki hægt með lögum þessa lands að taka hann fyrr úr umferð þá þurfa að vera úrræði til þess að vara sam- félagið við hættunni sem stafar af honum. Ég veit að það er til nokkuð sem heitir persónu- réttur, en hvenær ertu búinn að fyrirgera þér þeim rétti? Hann ógnaði öryggi samborgara ítrekað og meiddi fólk. Ítrekað. Og breytti ekki hegðun sinni. Það eru lög sem var hægt að beita, en var ekki gert; þarna þarf að skoða verklagið hjá ákæruvaldinu,“ segir Herdís. „Þetta hefði ekki þurft að gerast.“ Kerfið sem brást Hefurðu hitt hann eftir árásina? „Nei. Það hafa aldrei verið nein samskipti okkar á milli, enda þekkti ég hann ekkert.“ Hann hefur ekkert beðið þig fyrirgefningar? „Nei, nei, nei. Alls ekki. Frekar hefur hann sagt að ég væri að plata. Það er ítrekað verið að halda því fram að ég hafi ekki verið lífs- hættulega slösuð. Já, hverjum var það að þakka? Ég var ekki í lífshættu af því ég komst fljótt undir hendur lækna og það tókst að stöðva blæðingar. Ég veit ekki hvernig hefði farið ef ég hefði ekki getað hringt.“ Hvernig hugsar þú til hans núna? „Ég hugsa ekkert sérstaklega til hans; hann er bara veikur einstaklingur. Hann er ákveðið fórnarlamb aðstæðna og tekur rangar ákvarð- anir í lífinu. Við erum okkar gæfu smiðir. En ég hugsa til kerfisins sem brást, og brást hon- um líka og líklega alveg frá æsku,“ segir Her- dís. „En fyrst ég er ekki algjörlega buguð verð ég að reyna að nýta reynsluna til að ávarpa þessi atriði og tilkynna að þarna séu frávik og það þurfi að breyta verklagi. Það sem mér finnst vanta er að spyrja hver hafi verið ábyrg- ur. Hver vissi, eða mátti vita, að þessi ein- staklingur væri svona veikur og hættulegur? Ég sakna þess að fá viðbrögð frá kerfinu, mér þætti eðlilegra að þaðan kæmi ósk um fyr- irgefningu,“ segir hún. „Sumir hafa spurt mig af hverju ég gleymi þessu ekki bara og fari að einbeita mér að öðru. Ég held að þá yrði ég endanlega brjáluð. Ég vil laga þetta ferli og mín heilun liggur í því að byrgja þennan brunn.“ Ofurhetja með leynivopn Hvernig horfir þú til framtíðar? Verður þú allt- af með þetta á bakinu? „Já, ég held ég geti ekkert strokað þetta út. Ég er líkamlega minnt á þetta alla daga. En ég set einn fótinn fram fyrir hinn og held áfram. Það er miklu eðlilegra að viðurkenna það að þetta hafi áhrif heldur en að vera í afneitun. Það koma tímabil þar sem ég er mjög leið og kvíðin og finnst allt erfitt, en þetta snýst um af- stöðu. Við höfum öll okkar sögu og hún mótar okkur, þótt við hefðum valið að hún væri ein- hvern veginn öðruvísi þá höfum við val um hvernig hún mótar okkur. Ég get ekki búið til nýja sögu; ég breyti ekki fortíðinni, en ég vel að standa uppi sem sigurvegari,“ segir Herdís. „Ég get litið á þessa lífsreynslu sem valdefl- andi, að hafa staðið árásina af mér og komist út úr aðstæðum með útsjónarsemi og áræðni. Þá veit ég úr hverju ég er gerð. Það sé þarna tæki- færi til að vera sterk fyrirmynd. Ég upplifði til dæmis um daginn að vera allt í einu orðin hetja í augum stórs stúlknahóps hér úr hverfinu. Þær hafa mikinn áhuga á að fylgjast með mér í framkvæmdum mínum við húsið, og hafa tamið sér að kíkja við í ævintýrahöllina eins og þær kalla húsið mitt. Þær sungu fyrir mig á ösku- dag og spurðu svo í framhaldi hvernig ég hefði eiginlega sloppið frá vonda kallinum. „Lamd- irðu hann ekki með Gucci-töskunni þinni Dísa?“ skaut þá ein þeirra inn,“ segir hún og brosir. „Það er frábær tilfinning að vera allt í einu orðin ofurhetja með leynivopn, þótt ég eigi ekki Gucci-tösku. Í þeirra augum eru mér eng- in takmörk sett og vonandi þeim þá ekki held- ur.“ Herdís segist horfa jákvæð til framtíðar og langar aftur í prófkjör en Herdís er varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norð- ur. „Mig langar að láta gott af mér leiða.“ Þú ert greinilega baráttukona. „Ég veit það nú ekki, en það er seigla í mér og ég þarf alltaf að vera að skapa eitthvað eða laga,“ segir hún og hugsar sig um stutta stund. „Jú, ætli ég sé ekki baráttukona!“ „Ég get litið á þessa lífsreynslu sem valdeflandi, að hafa staðið árásina af mér og komist út úr aðstæðum með útsjónarsemi og áræðni. Þá veit ég úr hverju ég er gerð. Það sé þarna tæki- færi til að vera sterk fyrirmynd.“ Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.