Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.5. 2021
Þ
að er eiginlega of gott til að vera satt
að litlu samrýmdu systurflokkarnir,
sem fylkja sér saman og eiga sér ekki
viðreisnar von, ætli sér enn að söngla
sinn þreytta eintóna söng um ESB,
allra meina bót, þegar hvarvetna sést
að íbúar þar innanborðs eru óðum að týna galdra-
trúnni.
Þeim er vorkunn
En það eykur vandræðin að systurflokkarnir fyrr-
nefndu eiga engan annan kost. Þeir telja sig verða að
veifa þessu tré fremur en öngvu. En þar með veifa
þeir öngvu!
Einsmálstilveran tryggir að einstigið sem jafnframt
er einstefna er aðalbraut hennar og reyndar sú eina.
Það var því sjálfgefið að systurflokkarnir myndu enda
eins og rolla í sjálfheldu og þar sýnast þeir staddir nú.
Frá þeim stað geta þeir hvorki komið né farið. Enginn
annar vill deila með þeim sama stað og þeir verða að
láta eins og syllan sú sé þúsund hektarar af grænu
grasi sem eigi sér engan annan stað líkan. En almenn-
ingur er ekki þar. Og hann trúir því seint að syllan sú
sé fyrirheitna landið. Og systurflokkunum kemur ekki
lengur við hvað það er sem skiptir íslenskan almenn-
ing helst máli, bæði nú og í næstu framtíð. Þeir sitja
eftir á syllunni og tala saman á belgísku og eru þeir
einu í heiminum sem gera það.
Hvers vegna í ósköpunum ætti nokkur kjósandi að
reima á sig skó og skokka á kjörstað til að kjósa þá
syllumenn? Þeir sameina hið ómögulega að vera í
sjálfheldu á syllu og þrátt fyrir það algjörlega úti að
aka.
Og talandi um það, þá hatast þetta sama lið reyndar
út í alla sem „eru úti að aka“ á sínum bíl, hvort sem er
til vinnu, með börn sín til skóla eða tómstunda eða í
öðrum þeim erindum, smáum og stórum, þar sem
einkabíllinn gegnir lykilhlutverki.
Og svo eru syllumenn hækjur
skattpíningar
Og fyrrnefndir systurflokkar eru einmitt helstu hækj-
ur borgarstjórans, sem kjósendur höfðu í raun í tvenn-
um kosningum í röð reynt að reka af höndum sér. En
hækjurnar gerðu sitt til að eyðileggja vilja kjósenda
og komu í veg fyrir að mjaka mætti borginni úr þeirri
ömurlegu stöðnun sem hefur þjakað hana nú um skeið.
Þegar rekstur og framkvæmdageta borgarinnar var
sem öflugust var borgin framarlega í röð þeirra sveit-
arfélaga sem sýndu mesta aðgát í nýtingu skattheim-
ilda sinna. Með núverandi stjórnendum og því hug-
arfari sem þeir lúta er hver einasti gjaldstofn
borgarinnar, stór sem smár, þaninn upp í hæstu hæð-
ir! Fasteignamat bygginga hefur, vegna þrenginga í
lóðamálum og vesaldar borgaryfirvalda í skipulags-
málum, hækkað stórlega þar sem eftirspurn eftir hús-
næði sprengir nú framboðið.
Þá hefði það verið sjálfgefin sanngirni og eðlileg til-
litssemi við íbúa borgarinnar að slá verulega af gjald-
stofnunum. Borgin hefði þó verið jafnvel sett eftir sem
áður. Væru borgaryfirvöld vinir og samherjar borgar-
búa hefðu þau hagað sér þannig. En því var ekki að
heilsa heldur var „tækifærið“ nýtt til að þrengja að
fólkinu. Það var þó í senn réttlætismál og skylda gagn-
vart fjárhagslega aðþrengdum borgarbúum að bregð-
ast þeim ekki. Og eins og fyrr sagði yrði hagur borg-
arsjóðs jafngóður og árin á undan!
Borgarstjóranum einum er ekki um að kenna. Syst-
urflokkarnir bentu ekki á að sjálfsögð krafa væri að
setja sanngirni og réttlæti í fyrsta sæti. Þeir þögðu og
tryggðu framgang óréttlætisins með atkvæði sínu.
Þvert á allt sem boðað var
Þetta er myndin sem blasir við af þessum mistæku
smáflokkum í stjórnarandstöðu á landsvísu og hlaupa-
Loforðin á ódýra
markaðnum endast illa
Reykjavíkurbréf30.04.21