Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 29
íþróttaskór einnig í fyrsta skipti á yfir eina milljón dollara.“ Skórnir eru svartir og ná upp fyr- ir ökkla. West var í skónum þegar Grammy-verðlaunin voru veitt árið 2008 og hann flutti lögin „Hey Mama“ og „Stronger“. Hlutabréf í gömlum skóm Skórnir voru afrakstur samvinnu framleiðandans Nike og West og parið sem söngvarinn klæddist á há- tíðinni var prufa. Skórnir fóru síðan á markað í apríl árið eftir, 2009. Kaupandi skónna nefnist RARES og er í fréttum skilgreint sem mark- aðstorg fjárfestinga í íþróttaskóm. Fyrirtækið gefur viðskiptavinum sínum kost á að kaupa hlut í fóta- búnaði íþróttamanna rétt eins og fjárfestar kaupa hlutafé í fyr- irtækjum. Gerome Sapp, sem í eina tíð var atvinnumaður í bandarískum fótbolta, stofnaði fyrirtækið í mars og keypti skóparið af Air Yeezy 1 af Ryan Chang, sem er safnari og lítur á sérstaka og fágæta íþróttaskó sem listaverk. Chang hefur sagt að hann hafi heillast af íþróttaskóm. Hann líti á þá sem listmuni, þeir séu eins og strigi, blendingur af málverki og myndastyttu. Það sé sér sérstök ánægja að þeirra menningarlegi tími sé runninn upp og þeir séu að fóta sig í listheiminum. Sotheby’s hafði metið að skórnir myndu fara á eina milljón dollara, en annað kom á daginn. Upphafið að æðinu fyrir íþrótta- skóm má að stórum hluta eigna Michaels Jordans. Árið 1984 gerði hann samning við framleiðandann NIKE um hálfa milljón dollara á ári og var það þrefalt meira en nokkur annar leikmaður í NBA fékk þá greitt fyrir skósamning. Jordan var sannkallaður konungur háloftanna þegar hann tókst á loft við körfuna og skórnir voru kallaðir Air Jordan. Fyrsta árið eftir að þeir voru settir á markað seldust þeir fyrir 100 millj- ónir dollara. Talið er að Nike hafi frá því að fyrsti samningurinn var und- irritaður greitt Jordan 1,3 milljónir dollara, samkvæmt útreikningum Forbes. Jordan hefur vissulega hagnast á viðskiptunum, en Nike ekki síður. Á sínum tíma var NIKE lítilmagni á íþróttavörumarkaðnum en er nú eitt þekktasta og verðmæt- asta vörumerki heims. Sapp sagði að hann hefði náð í hnoss allra hnossa þegar hann keypti skóna. Þeir yrðu settir a markað hjá RARES 16. júní og yrði hluturinn seldur á 15 til 20 dollara. Þrjú eða fjögur skópör yrðu sett á markaðinn fyrir þann tíma, þar á meðal par af Nike Air Force 1, sem hannað var í samvinnu við rapp- arann Jay-Z. Air Yeezy 1 voru settir á markað í takmörkuðu upplagi 2009 og Air Yeezy 2 fylgdu í kjölfarið 2012. Air Yeezy-skór seljast fyrir 2.000 til 4.000 dollara parið eftir gerð þeirra. Til vitnis um arfleifð West West átti í upphafi samstarf við Nike, en skipti svo yfir til Adidas til að gera sína eigin línu af skóm. Brahm Wachter, sem er yfir sölu- deild hversdagsfatnaðar og nýrra söfnunargripa hjá Sotheby’s, sagði að verðið fyrir skóna segði „sína sögu um arfleifð Kanyes sem einn af áhrifamestu hönnuðum okkar tíma á fatnaði og íþróttaskóm og Yeezy- skóna, sem hann byggði upp og orðnir eru að risa í greininni“. Tekjur af Yeezy-skóm náðu tæp- lega 1,7 milljörðum bandaríkjadoll- ara í fyrra að því er kom fram í greiningu hjá UBS-bankanum og Bloomberg greindi frá. Samkvæmt fjármálafyrirtækinu Cowen gæti veltan á endursölu- markaði fyrir íþróttaskó náð 30 milljörðum dollara árið 2030. Michael Jordan klæddist Air Jordan 1-skónum, sem Christie’s seldi í ágúst, í sýningarleik á Ítalíu 1985 þegar hann tróð boltanum af slíkum krafti að spjaldið splundr- aðist. Með þeirri sölu var slegið met frá því í maí 2020 þegar par af Air Jord- an 1 seldist á 560 þúsund dollara. Frekari tíðinda er að vænta af endursölumarkaðinum fyrir íþróttaskó innan tíðar. Sotheby’s í Genf í Sviss tilkynnti á mánudag að í vændum væri uppboð á nokkrum pörum af skóm, sem stórstjörnur körfuboltans hefðu klæðst, þar á meðal Jordan, Kareem Abdul Jabb- ar og Stephen Curry. Salan stendur frá 1. til 12. maí og er búist við að mest athygli muni beinast að skó- pari, sem Jordan klæddist fyrsta tímabilið sitt í NBA veturinn 1984 til 1985, einmitt þegar æðið fyrir íþróttaskóm fór af stað. Dýrasta skótau sög- unnar, Nike Air Yeezy 1, fór á kvartmilljarð hjá Sotheby’s. AFP 2.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Langveik Breska söngkonan Mari- anne Faithfull óttast að hún muni ekki syngja framar eftir erfiða við- ureign við kórónuveiruna. Hún deyr þó ekki ráðalaus og hefur gef- ið út plötu með ljóðum, sem hún les við undirleik Nick Cave og Brian Eno. „Ég veiktist hastarlega og var næstum dáin og nú er ég með það sem þeir kalla langvinnt Covid,“ sagði hún við blaðamann AFP. „Ég er ekki með veiruna en mér líður aldeilis þannig. Þetta er í lungunum í mér svo ég get ekki talað lengi.“ Óttast að geta ekki sungið Les ljóð í stað þess að syngja. AFP BÓKSALA 21.-27. APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Rím og roms Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn 2 Uppruni Saša Stanišic 3 Bál tímans Arndís Þórarinsdóttir 4 Bjarmalönd Valur Gunnarsson 5 Handbók fyrir Ofurhetjur 6 – vonlaust Elias/AgnesVahlund 6 Depill heimsækir afa og ömmu Eric Hill 7 Herra Fnykur David Walliams 8 Stafavísur Ýmsir höfundar 9 Brandarar gátur og þrautir Ýmsir höfundar 10 Stríð og kliður Sverrir Norland 1 Eldarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir 2 Dvergurinn frá Normandí Lars-Henrik Olsen 3 Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir 4 Undir Yggdrasil Vilborg Davíðsdóttir 5 Á heimsenda Dagný Maggýjar 6 Mæður geimfara Sigurbjörg Þrastardóttir 7 Næturskuggar Eva Björg Ægisdóttir 8 Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir 9 Yfir bænum heima Kristín Steinsdóttir 10 Við erum ekki morðingjar Dagur Hjartarson Allar bækur Innbundin skáldverk Ég er einn af þeim sem safna upp bókum á náttborðinu. Það skýrist ef til vill af því að ég hef mjög gaman af því að kaupa mér bæk- ur en kemst síðan ekki yfir það að lesa þær allar. Ég læt mér þá oft nægja að glugga í þær eða lesa útvalda kafla, þá sérstaklega í fræðibókmenntunum en það virkar ekki alltaf eins vel með aðrar bókmenntir. Ég hef ætíð haft mikinn áhuga á flestu sem tengist sálfræði, tónlist eða kvikmyndum og oftar en ekki reyni ég að sækja mér inn- blástur í mín störf í gegnum áhugaverðar bækur. Efst á listan- um er líklega bókin Creativity Inc. eftir Ed Catmull. Hún gefur einstaklega góða innsýn í sköp- unarferli hins magnaða fyrir- tækis Pixar. Þá hef ég alltaf haft gaman af því að skyggn- ast inn í heim frumkvöðla samhliða sköpuninni og fannst mér bókin How Google Works einkar áhugaverð í því samhengi. Fróð- legt að sjá hvernig þau hjá Google hugsa hlutina. Get einnig mælt með bókunum Blink og Tipp- ing Point eftir Malcolm Glad- well fyrir þá örfáu sem hafa ekki lesið þær enda mjög vin- sælar. Lét loks- ins verða að því að lesa þær en Malcolm er góður penni sem kemur fræðilegu efni vel frá sér. Þegar kemur að skáldsögum þá hef ég ekki verið eins duglegur. En ég las bók- ina hans Dóra DNA, Kokkáll , um daginn. Mæli eindregið með henni og hlakka til að lesa fleiri bæk- ur frá honum. Skemmtilega fersk. Kvikmyndatónlistin hefur spil- að stórt hlutverk í mínu lífi síð- ustu ár og hefur John Williams haft mikil áhrif á mig, eins og líklega öll tón- skáld sem ól- ust upp við kvikmyndir með tónlistinni hans. Fyrir þá sem kunna að meta hann þá mæli ég með bókinni John Williams’ Film Mu- sic . Hún gefur mjög góða innsýn í hans tónsmíðar. HÉÐINN UNNSTEINSSON Innblástur í bókum Héðinn er stefnumót- unarsérfræð- ingur í forsæt- isráðuneytinu og formaður Geðhjálpar. „Ég upplifi engin eymsli í dag g njóta þess að styðja við heilsu mína með hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“ Kristófer Valdimarsson. Öflugur liðstyrkur! Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. o 2-3ja mánaða skammtur í hverju glasi Sífellt bætist í hóp þeirra Íslendinga sem hafa náð frábærum árangri með NUTRILENK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.