Fréttablaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 19. október 2021 Hjónin Vignir og Ólafía eru samheldin og hafa notið þess að vinna að byggingu pakkhússins frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Glæsilegur skandinavískur stíll Í Grindavík hefur risið fallegt pakkhús sem þegar er orðið eitt af fallegustu og mest áber- andi kennileitum bæjarins. Húsið er reisulegt, tvílyft, svart á litinn með hvítum gluggum. 2 Pakkhúsið minnir óneitanlega á verslunarhús frá 19. öld og er minnisvarði um liðna tíð og sögu okkar og verslunar. Húsið hýsir meðal annars handverkssölu, vinnustofu og smíðaverkstæði handverksmannsins Vignis Krist- inssonar sem er betur þekktur sem Kristinsson. Vignir og eiginkona hans Ólafía Kristín Jensdóttir og fjölskylda reistu húsið og tóku það í notkun á síðasta ári. „Húsið er hannað og byggt af okkur hjónunum og það má með sanni segja að ég þekki nánast hverja einustu fjöl,“ segir Vignir. Húsið er merkt Kristinsson Hand- made þar sem allir eru velkomnir að koma og kynna sér handverk Vignis. Vignir er fæddur og uppal- inn í Reykjavík til 14 ára aldurs en flutti þá til Grindavíkur en Ólafía er fædd og uppalin í Grindavík. „Ég hef frá unga aldri haft ástríðu fyrir smíðum og fallegu handverki og hef smíðað mér til ánægju og gefið heimilum sjarma af vönduðum innréttingum og húsgögnum úr gegnheilum viði af náttúrunnar hendi,“ segir Vignir. Hreindýrin mörkuðu tímamót Segðu okkur aðeins frá handverki þínum Vignir og hvernig þetta byrjaði allt saman. „Ég hef alltaf haft gaman af að smíða og fyrir tíu árum byrjaði ég á hreindýrunum og var svo heppinn að verslunin Mýrin tók þau í sölu. Í framhaldi bættust fleiri hönn- unarverslanir við,“ segir Vignir og það má með sanni segja að hreindýrin hafi komið Vigni á flug í handverksheiminum. Í pakkhúsinu er Vignir með handverkssölu sína, smíða- Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is  Finneas O’Connell og systir hans, Billie Eilish á frumsýningu Bond. elin@frettabladid.is Finneas O’Connell var að gefa út sína fyrstu stóru hljómplötu sem hann nefnir Optimist en hefur þó áður gefið út lög, til dæmis Blood Harmony sem kom út fyrir tveimur árum. Finneas hefur starfað með heimsfrægum tón- listarmönnum og ber þar helst að nefna systur hans, Billie Eilish. Finneas er bandarískur söngv- ari, lagasmiður, hljóðverkfræð- ingur og leikari. Hann hefur unnið átta Grammy-verðlaun. Finneas hefur unnið með Camilu Cabello, Selenu Gomez og John Legend svo einhverjir séu nefndir. Finneas er þekktur fyrir hlut- verk sitt sem Alistair í Fox, gaman- þáttaröðinni Glee og Modern Family. Hann hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem lagahöfundur og framleiðandi og þykir hafa sér- staka tónlistartjáningu. Laglínur hans þykja sterkar og segja sögur. Óhefðbundnar leiðir Finneas, sem er aðeins 24 ára, þykir fara óhefðbundnar leiðir í tónlist sinni. „Hann er í raun eins og málari eða skáld og hann fangar þessar miklu tilfinningar með því að ein- beita sér að smáatriðunum,“ er haft eftir samstarfskonu hans, Camilu Cabello, í New York Times. Önnur samstarfskona, Tove Lo, sænsk söngkona og lagahöfundur, vann með Finneas árið 2019. Hún segir í viðtali við NYT að Finneas sé góður í að finna „taugina“ í lagi. n Með eigin hljómplötu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.