Fréttablaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
skrifaði bókina Ilmreyr sem
kveðju til móður sinnar.
arnartomas@frettabladid.is
Ilmreyr er nýútgefin bók Ólínu Kjerúlf
Þorvarðardóttur sem hún skrifar sem
kveðju til móður sinnar, Magdalenu
Thoroddsen, sem lést árið 2018. Bókin er
um leið óður til formæðra og -feðra sem
háðu lífsstríð sitt á Vestfjörðum.
„Ég byrjaði að skrifa þessa bók við
banabeð móður minnar fyrir þremur
árum síðan,“ segir Ólína. „Þá reikaði
hugurinn aftur í tímann til minninganna
sem tengdust okkur báðum. Margt af því
eru sögur og ljóð sem hún miðlaði okkur
dætrum sínum – minningar hennar
sjálfrar, móður hennar og formæðra
sem hafa lifað í sögum og sögnum fjöl-
skyldunnar. Við skrifin má segja að ég
hafi gripið í ættarstrenginn, ef hann er
sambærilegur naflastrengnum, og fundið
æðasláttinn þar.“
Bókin er sjálfsævisöguleg að hluta.
Ólína fjallar meðal annars um bernsku
sína og ungdómsár, en segir einnig fjöl-
skyldusögu. Hún tvinnar saman þjóð-
fræði, sagnfræði og skáldskap í eina sam-
fellda heild sem að hluta er saga hennar
sjálfrar. „Ilmreyr er eiginlega samofin
saga úr ýmsum þáttum,“ segir hún.
Magdalena, móðir Ólínu, fæddist árið
1926 og ólst upp í Vatnsdal í Patreksfirði.
„Það var sagt um bát Vatnsdalsmanna
að hann þekktist á söngnum sem þaðan
barst þegar róið var á miðin,“ segir Ólína.
„Mamma var alin upp á mannmörgu
heimili í fjórtán systkina hópi. Lífsbar-
áttan var hörð en samt mikil menning
og oft glatt á hjalla. Til að mynda styrkti
afi stofugólfið svo hægt væri að dansa á
laugardögum.“
Strengur milli kynslóða
Magdalena var ein af fyrstu menntuðu
blaðamönnum Íslands. Hún sigldi til
Stokkhólms 22 ára gömul og sneri aftur
til Íslands með blaðamannapróf og vann
bæði á Morgunblaðinu og Tímanum.
„Hún var líka skáldmælt og góður rithöf-
undur þótt hún gæfi ekkert út eftir sig,“
segir Ólína. „Mig langaði að láta hana
sjálfa njóta sín í þessari bók – sögurnar
hennar og ljóðmælin sem varpa ljósi á líf
hennar og rætur. Um leið skýri ég sam-
band okkar og samskipti í gegnum tíðina
og spegla þannig sjálfa mig í uppruna
mínum.“
Ólína lýsir skrifum bókarinnar sem
vissu ferðalagi og að eftir á að hyggja hafi
hún verið ákveðin úrvinnsla, jafnvel upp-
gjör. „Það er einhver sameiginlegur þráð-
ur í lífi kvennanna í bókinni sem kom
mér aðeins á óvart,“ segir Ólína. „Þótt
samfélagið hafi mikið breyst á þeim tíma
sem bókin spannar þá eru konurnar í ætt-
inni, kynslóð fram af kynslóð, að kljást
við sameiginlegar áskoranir og hlutskipti.
Það er sérstakt að fara í svona leiðangur,
spegla sig í lífi formæðra sinna og finna
þannig fyrir strengnum sem tengir kyn-
slóðirnar.“ n
Gripið í ættarstrenginn
Ólína segir að það hafi verið visst ferðalag að skrifa bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristbjörg Inga
Magnúsdóttir
lést í faðmi ástvina sinna á
Droplaugarstöðum þann 4. október.
Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
21. október kl. 11.00. Hægt er að nálgast streymi frá
útförinni á www.skjaskot.is/kristbjorg
Laufey M. Jóhannesdóttir
Guðmann S. Jóhannesson Rósa F. Friðriksdóttir
Birgir S. Jóhannesson Anna M. Bragadóttir
Rósa Jóhannesdóttir
Hulda B. Jóhannesdóttir
börn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ríkey Guðmundsdóttir
Boðaþingi 8, Kópavogi,
lést 7. október.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 22. október kl. 13.
Oddný Vestmann Kristján Þorvaldsson
Elmar Guðmundsson Kulisara Tonan
Svala Guðmundsdóttir Steindór Karvelsson
Sandra Guðmundsdóttir Magnús Magnússon
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katrín Marteinsdóttir
verslunarkona,
lést sunnudaginn 3. október
á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn á
Seltjarnarnesi. Útförin fer fram frá
Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 20. október kl. 13.00.
Lilja Jónsdóttir Ragnar Daníel Stefánsson
Marteinn Jónsson Þórunn Björg Ásmundardóttir
Kristján Jónsson Kristín Ólöf Jansen
barnabörn og barnabarnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Okkar yndislegi sonur, barnabarn,
barnabarnabarn, frændi og vinur,
Theodór Máni Fannarsson
prakkari,
lést í fangi foreldra sinna umvafinn ást
og kærleik á heimili sínu þann 7. október. Útför fer fram
í Háteigskirkju fimmtudaginn 21. október klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær hið einstaka starfsfólk
Barnaspítala Hringsins, heimaþjónustu barna og
þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis.
Anna Gréta Oddsdóttir Fannar Guðmundsson
Rakel Kristjánsdóttir Guðmundur Haraldsson
Jóna Guðný Jónsdóttir
Oddur Hafsteinsson María Auður Steingrímsdóttir
fjölskyldur og vinir.
Hjartkær faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
Haukur Ingimarsson
bifreiðasmiður,
Boðaþingi 22, Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans
laugardaginn 18. september síðastliðinn.
Þökkum fjölskyldunni og vinum auðsýnda samúð og
hlýhug sem og starfsfólki Líknardeildarinnar fyrir góða og
elskulega umönnun. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
María Jóna Hauksdóttir Þorsteinn Sæmundsson
Haukur S. Þorsteinsson Ríkey Valdimarsdóttir
Steinn Ingi Þorsteinsson Kristín María Stefánsdóttir
Júníana Tinna, Eiríkur Ingimar, Hjálmar Freyr,
Agla María, Elín Amalía og nýfædd lítil stúlka
Okkar elskaði sonur og bróðir,
Snorri Harðarson
varð bráðkvaddur á heimili sínu
Asparfelli 8, Reykjavík.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 22. október kl. 14.00.
Sigríður Ása Einarsdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð samúð og hlýhug í veikindum
og við fráfall okkar ástkæra
Gunnlaugs V. Snævarr
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
gjörgæslunnar við Hringbraut.
Auður Adamsdóttir, Þórhildur Erla Pálsdóttir,
Jóna G. Snævarr, Ingibjörg A. Snævarr,
Stefanía Rósa Snævarr, Ingimar Einarsson,
Stefán Þór Ingimarsson, Anna Guðrún Birgisdóttir,
Inga Jóna Ingimarsdóttir, Gunnar Jakob Briem
Ástkær móðir okkar,
Hólmfríður Gestsdóttir
Sunnubraut 8, Kópavogi,
andaðist í Sunnuhlíð 15. október.
Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju mánudaginn
1. nóvember klukkan 15.00.
Gestur Jónsson
Helga Jónsdóttir
Skafti Jónsson
Gunnar Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Einar Vignir Sigurjónsson
Álfaskeiði 127, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn
20. október kl. 13.00.
Elín S. Hallgrímsdóttir Sigurjón E. Einarsson
Hrafnhildur Elínardóttir
Íris Sigurjónsdóttir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 19. október 2021 ÞRIÐJUDAGUR