Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 12
H
vernig myndir þú lýsa eigin fatastíl?
„Það er ekkert eitt ráðandi trend en mér hefur
samt alltaf liðið vel í sportý-stíl, sem sagt íþrótta-
peysum og hlaupastrigaskóm og svo framvegis. Ég
geng í raun oft í svipuðum fötum núna og þegar ég
var kannski 13 til 14 ára. Annars er þetta frekar klassískt bara,
ég geng í Levi’s 501 og Dr Martens-skóm.“
Ertu sammála því að föt og það hvernig einstaklingur ber sig –
segi mikið til um persónuleika hans?
„Ég er ekkert endilega svo viss um það. Sumir fá útrás fyrir
sköpunargleði sína gegnum tísku og stíl, aðrir ekki. Skemmtileg-
asti maður sem ég þekki gæti alveg eins búið í tunnu eins og
Díógenes og hefur engan áhuga á tísku. Svo eru aðrir sem kaupa
sér strigaskó fyrir hundrað þúsund kall og eru alltaf á leiðinni í
eða nýkomnir úr klippingu.“
Með krosseyrnalokk og klúbbastrípur
Hvaða áhrif hafði það á þig að búa í Berlín?
„Ég var ekki búinn að búa lengi í Berlín þegar ég leit einn dag-
inn í spegil og var kominn með krosseyrnalokk og klúbbastrípur.
Maður er í sífelldri mótun. Ég trúi á hina eilífu endurnýjun.“
Klæðumst við öðruvísi ástfangin en í ástarsorg?
„Hamlet Danaprins klæðist svörtum sorgarklæðum í sam-
nefndu leikriti Shakespeares. Ég hef klæðst svörtu yfir löng
tímabil. Hvað ætli það sé við svörtu fötin? Ætli það sé ekki ein-
hver hluti af okkur sem vill hverfa og verða að engu þegar við
syrgjum.“
Hvað væri gaman að prófa tengt fatnaði og stíl – fyrir þá sem
eru að bugast á ástandinu?
„Er ekki stóra baráttan alltaf við mann sjálfan? Það getur ver-
ið snúið að átta sig á því hvað maður nákvæmlega vill. Ég hvet
fólk bara til þess að storka sjálfu sér og láta ekki umhverfið aftra
sér frá því að klæða sig eins og það vill. Það eru engin raunveru-
leg hlutverk. Við erum okkar eigin sköpunarverk.“
Ef þú mættir gefa eitt gott tískuráð, hvað væri það?
„Kannski bara að hafa þetta í huga með að það eru engin raun-
veruleg hlutverk í heiminum. Það er ekkert eitt svar til um okk-
ur, engin ein lausn, enginn einn stíll sem hæfir okkur. Hið eina
sanna frelsi er að enduruppgötva sjálfan sig í sífellu og leyfa sér
að verða að einhverju nýju.“
Hamingjusamasta fólkið eigi eiginlega engin föt
Þarf maður að eiga mikið af fötum til að vera ham-
ingjusamur?
„Vitur maður sagði mér einu sinni að stundum
sé ein ný peysa allt sem maður þarf til að líða
ferskum. Stundum þurfum við bara eitthvað
nýtt inn í líf okkar. Ég get alveg ímyndað
mér að hamingjusamasta fólk í heimi eigi
eiginlega engin föt. En ég held að það sé
rosalega erfitt að ná slíkum andlegum
þroska.“
Hver eru bestu fatakaupin sem þú hef-
ur gert?
„Bleiki gallajakkinn minn. Franskur
sirkúslistamaður gaf mér hann árið 2005
eftir að ég hafði hrósað honum. Þegar hann
klæddi sig úr honum sagði hann með ramm-
frönskum hreim: „I don’t care about material
things.“
Af hvernig klæddum konum og körlum
heillast þú?
„Það er dálítið erfitt að svara því. Svolítið eins og
að reyna að útskýra af hverju brandari er fyndinn eða
sólarlag fallegt. Sumt fólk er bara svo glæsilegt og töfrandi.
Þetta liggur í fasi og og fínhreyfingum, hinu næma auga. Sumir
geta gert allt töff og aðlaðandi bara með því að vera þeir sjálfir.“
Ertu með fordóma fyrir einhverri tegund af klæðnaði?
„Ég held ekki. Það kemur í það minnsta ekkert upp í hugann.
Ég fer aldrei í jakkaföt en ég veit ekki alveg af hverju. Finn mig
bara ekki í þeim.“
Erfitt að finna almennilega neon-græna strigaskó
Hvað með skó – skipta þeir máli?
„Skór geta alveg verið vandmeðfarnir. Það tók mig þrjá mán-
uði að finna mér almennilega neon-græna strigaskó. Að því
sögðu er ég meðvitaður um að Þórbergur Þórðarson gat lengi vel
ekki farið út úr kvistherberginu sínu á Hringbraut því hann átti
bara eitt par af skóm sem var götótt. Hann gat skrifað vel þrátt
fyrir það svo skór skipta kannski ekki beinlínis sköpum í lífinu.“
Finnst þér þrengri rammi settur utan um karlmenn en konur
þegar kemur að tískunni?
„Nei, er hann ekki einmitt víðari?“
Hvernig finnst þér karlar með eyrnalokka og jafnvel nagla-
lökk?
„Ég er sjálfur með tvo eyrnalokka. Mig hafði dreymt um
þetta í mörg ár að fá mér svona stóran hring í eyrað eins og
George Michael var með þegar hann var mest töff. Vera svo
mikið í víðum, ljósbláum gallabuxum og skjannahvítum bol. Síð-
an smitaði ég frænda minn af þessu og hann kýldi einhvern tím-
ann á þetta eftir tvo bjóra í Brussel. Það var sparkið í rassinn
sem ég þurfti og núna er ég búinn að taka fram úr honum með
mína tvo. Vinir mínir eru oft með naglalakk en ég finn mig ekki
alveg með það.“
Er eitthvað í tískunni núna í dag sem þú ert sérstaklega hrif-
inn af?
„Hafandi verið unglingur í lok næntís og byrjun aldarinnar er
ég alveg mjög hrifinn af þessum aldamótastraumi í tískunni í
dag. Að einhverju leyti er ég meira næntís núna en ég var í nænt-
ís.“
Hetjur lifa fyrir aðra
Oscar Wilde skrifaði eitt sinn: „You don’t love someone for
their looks, or their clothes, or for their fancy car, but because
they sing a song only you can hear.“ – Ertu sammála því?
„Það er auðvitað á sinn hátt alveg rétt hjá Wilde. Hins vegar er
það þannig að þegar þú elskar einhvern, þá ferðu að elska allt í
fari hans, hvort sem það eru smáatriði í útliti, fatastíll eða þess
vegna bíltegund. Svo ég myndi segja að auðvitað elskarðu ekki
fólk út af útliti eða fötum, en þegar þú elskar aðra manneskju þá
er útlit hennar og stíll hluti af þessum söng sem þú einn heyrir og
elskar.“
„Það var sparkið í rassinn sem ég þurfti“
Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur er
alltaf flottur til fara en dæmir engan út frá
klæðaburði. Skemmtilegasti maður sem hann
þekkir gæti alveg eins búið í tunnu eins og
Díógenes og haft engan áhuga á tísku.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Halldór Armand
er alltaf smart til fara.
Kannski bara að hafa þetta í huga með að
það eru engin raunveruleg hlutverk í
heiminum. Það er ekkert eitt svar til um
okkur, engin ein lausn, enginn einn stíll sem
hæfir okkur. Hið eina sanna frelsi er að
enduruppgötva sjálfan sig í sífellu og leyfa sér
að verða að einhverju nýju.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rithöfundur segir óvíst hvort hægt sé að
dæma fólk af því hvernig það klæðist.
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021