Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 2
Hvers vegna ákvaðst þú að opna kaffihús í
Kaupmannahöfn sem sérhæfir sig í
íslenskum mat?
Ég fór á flakk fyrir þremur árum og var að vinna
sem ráðskona rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Þeg-
ar kom að lokum á því tímabili velti ég fyrir mér
hvað ég ætti að gera næst. Ég átti kaffihús á
Laugaveginum með frænku minni fyrir
nokkrum árum og það var það skemmtileg-
asta sem ég hef gert. Ég vildi vera minn
eigin herra og fannst Kaupmannahöfn
svo upplögð fyrir þetta. Hér búa svo
margir Íslendingar og margir koma
hingað í heimsókn. Ég þekki marga
slíka og hugsaði að ég gæti þá hitt
fólk, sem mér finnst svo gaman. Ég
kann ekki að gera neitt nema íslenskt,
það eru kaffihús hér úti um allt og ég vildi
skera mig úr.
Hverjir koma á kaffihúsið?
Flestir eru Íslendingar. En alls konar Íslendingar.
Ég fjárfesti í íslenskum fána og þeir sem eru ekki á
samfélagsmiðlum þar sem ég hef verið að auglýsa
hafa séð hann og litið inn. Eins hafa Danir sem
þekkja Íslending eða verið á Íslandi verið duglegir
að koma.
Hvað er vinsælast?
Flatkökur með hangikjöti. Engin spurning. Meira að
segja kemur mikið af ungu fólki og biður um flatkökur
með hangikjöti.
Hvernig gekk reksturinn þá mánuði sem
bannað var að bjóða gestum inn á kaffihúsið?
Þetta gekk en var mjög erfitt. Ég var svo nýbúin að opna
þegar lokað var í byrjun desember og féll því ekki undir það
að fá styrk ef ég myndi loka. Ég ákvað því að hafa opið
áfram. Í apríl bauð ég fólki að kaupa gjafabréf til að hjálpa
mér upp síðustu brekkuna og það voru ofboðslega góð við-
brögð við því. Þetta er enn bras á meðan lítið af ferðamönn-
um kemur til landsins. En ég ætla að halda þessu áfram.
GUÐRÚN ÞÓREY
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
Í fyrrahaust sagði ég loks skilið við hótel mömmu eftir 26 ára samfelldaveru þar í góðu yfirlæti. Ég fluttist raunar alla leið til Kaupmannahafn-ar þar sem ég hugðist leggja stund á háskólanám. Fljótlega kom í ljós
að veturinn yrði enginn venjulegur vetur og í byrjun nóvember var ég
mættur aftur í gamla herbergið mitt. Seinni hlutann í janúar gerði ég aðra
tilraun til að fullorðnast. Í fyrri tilrauninni leigði ég íbúð með nokkrum öðr-
um, sem reyndist vægast sagt ekki minn tebolli. En nú taldi ég mig eiga
meiri möguleika en áður enda hafði ég gert samning um að leigja rúmgóða
kjallaraíbúð á góðum stað í úthverfi
Kaupmannahafnar.
Allt gekk eins og í sögu til að
byrja með. Frelsið og sjálfstæðið
sem ég hafði séð í hillingum sumarið
áður varð loks að veruleika. Loksins
andaði enginn ofan í hálsmálið á
mér og ég naut hverrar mínútu.
Námið var alfarið á netinu, sem
virtist henta mér vel, ég hugleiddi á
hverjum degi, vann úr því sem
angraði mig og æfði úti flesta daga
vikunnar. En eins og hjá Phil Con-
nors í Groundhog day var hver dag-
ur nákvæmlega eins og næsti á und-
an, sem á endanum tók sinn toll og
fljótlega fór að halla undan fæti.
Það varð bókstaflega sársaukafullt að sitja fyrir framan tölvuna og læra, tíu
mínútna hugleiðsla varð óbærileg og hver ein og einasta manneskja sem ég
mætti úti á hlaupum fór í taugarnar á mér fyrir það eitt að vera til. Mér
fannst ég fastur og vildi ekkert frekar en að sleppa burt.
Áhrif þess að læra heima allan daginn og eyða flestum kvöldum einn
vegna samkomubanns og þess að búa í nýju landi, fjarri fjölskyldu og vin-
um, höfðu læðst að mér. Sem einkar innhverfur einstaklingur fæ ég sjaldan
nóg af því í daglegu lífi að vera einn. Það var alltaf gleðistund þegar ég fékk
heimilið fyrir mig sjálfan heila helgi eða jafnvel viku. En þegar tómt heimili
varð daglegt brauð gaf það mér ekkert. Allt varð flatt. Mér leið aldrei sér-
staklega illa en gleðin fjaraði smám saman úr lífinu. Það sem ég missti var
annað og meira en að geta eytt tíma með fólki. Ég var ekki lengur hluti af
samfélagi. Mér fannst ég ekki tilheyra neinu lengur, flaut bara um í hafi
ókunnugra og gat lítið gert í því. En ég ákvað að láta ekki sjá mig heima
strax, þetta væri hindrun til að yfirstíga. Einhvern veginn komst ég í gegn-
um þetta og í dag flýg ég loks til Íslands. Ég geri svo þriðju tilraunina til að
fullorðnast í haust.
Allt er þegar
þrennt er
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’
Fljótlega kom í ljós að
veturinn yrði enginn
venjulegur vetur og í byrj-
un nóvember var ég mætt-
ur aftur í gamla herbergið
mitt. Seinni hlutann í jan-
úar gerði ég aðra tilraun.
Sigurbjörg Ósk Friðleifsdóttir
Vinna og ferðast innanlands.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
ætlarðu að
gera í
sumar?
Kristján Þór Ásmundsson
Ég er í fríi í allt sumar og ætla að
ferðast um landið og njóta lífsins.
Anna Lydía Hallgrímsdóttir
Ferðast aðallega innanlands og fara
í bústaði á Hólmavík og Þingvöllum.
Ívar Bjarki Lárusson
Bara vinna og nýta helgarnar með
fjölskyldunni.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Lilja Jónsdóttir
Guðrún Þórey Gunnarsdóttir
rekur kaffihúsið Gudrun’s
Goodies sem býður upp á ís-
lenskt góðgæti í miðbæ
Kaupmannahafnar. Staðurinn
var opnaður í september síð-
astliðnum, skömmu áður en
strangt samkomubann tók
gildi í Danmörku.
Vildi vera minn eigin herra
Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is
Honeywell gæða viftur
Margar gerðir – Láttu gusta umþig!
Vissir þú
að mbl.is
4%
11%
13%
31%
41%
er með hærra hlutfall
(%) flettinga en aðrir
miðlar *
mbl.is visir.is dv.is
ruv.is frettabladid.is
31%
fleiri flettingar en hjá
helsta samkeppnisaðila *
Notendur + flettingar = árangur
*
G
a
llu
p
to
p
p
lis
ti
Q
1
2
0
2
1