Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021 H átt í þrjátíu farþegaflug- vélar komu til landsins um liðna helgi og hafa annir á Keflavíkurflugvelli aldrei verið jafn- miklar frá upphafi kórónuveiru- faraldursins. Starfsfólki við sýna- töku í flugstöðinni hefur verið fjölgað verulega, en allt að tuttugu flugfélög fyrirhuga starfsemi á vell- inum í sumar. Vandræði heilbrigðiskerfisins halda áfram að aukast, en fresta hefur þurft skurðaðgerðum á Landspít- alanum vegna manneklu, sem meðal annars má rekja til vanhugsaðrar styttingar vinnuvikunnar. Minning Páls Ólafssonar skálds og Ragnhildar Björnsdóttur, konu hans og helsta yrkisefnis, var heiðr- uð í Hólavallakirkjugarði, m.a. með því að væta gröfina með viskídreitli. Rifjast þá upp Morgunbæn skáldins: Nóttin hefur níðst á mér, nú eru augun þrútin. Snemma því á fætur fer og flýti mér í kútinn. Við það augun verða hörð, við það batnar manni strax. Það er betra en bænargjörð brennivín, að morgni dags. Guðrún Hafsteinsdóttir varð hlut- skörpust í fjölmennu prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi, en í Norðausturkjördæmi hreppti Njáll Trausti Friðbertsson efsta sætið. Keppinautur hans um það, Gauti Jó- hannesson, lenti hins vegar í þriðja sæti og ákvað að taka því ekki. Samherji baðst opinberlega afsök- unar á framgöngu starfsmanna sinna í viðbrögðum við fjölmiðla- umræðu, sem birtust í ýmsum net- samskiptum þeirra, sem Stundin og Kjarninn komust yfir með ein- hverjum ráðum. Þrátt fyrir afsök- unarbeiðnina bólaði ekki á fyrirgefn- ingu. Farið var að boða fólk í bólusetn- ingu með útdrætti kynjaskiptra ár- ganga. Á netinu fannst fólk sem tók andköf og saup hveljur yfir því að kynin væru aðgreind með bleikum miðum og bláum við dráttinn og fannst sem ekkert hefði miðað í jafn- réttismálum frá miðöldum. Útsýnishóll í Geldingadölum var rýmdur og lokaður af áður en hraun næði að umkringja hann. Sagðar voru fréttir af því að 31.265 Íslendingar hefðu ekki nýtt „ferða- gjöfina“. Það gerðu hins vegar 215.828 manns. Flestir nýttu ferða- gjöfina í Flyover Iceland. Gjöfin virðist ekki mikið hafa verið nýtt til ferðalaga, en talsvert í flatbökur og bensín. . . . Íslensk stjórnvöld grennsluðust fyr- ir um það hvort Íslendingar hefðu verið meðal þeirra, sem bandarísk njósnastofnun hleraði með aðstoð Dana. Niðurstaðan var sú að enginn hlustaði á Íslendinga og leyndu von- brigði þjóðarinnar sér ekki. Samkvæmt frumvarpi til fjárauka- laga aukast ríkisútgjöld á árinu um 14,6 milljarða frá því sem fjárlög heimila. Það er að langmestu leyti vegna aðgerða vegna heimsfarald- ursins, einkum á vinnumarkaði. Fjárlagahallinn eykst af þessum sökum um átta milljarða króna. Samtök fyrirtækja í velferðarþjón- ustu fögnuðu því að ríkið hefði hækkað fjárframlög til hjúkrunar- heimila um einn milljarð króna, en sögðu þó að það hrykki engan veg- inn til. Þjóðarútgjöld eru annars tekin að vaxa á ný eftir nokkurt hlé og spáir Landsbankinn 4,9% hagvexti í ár. Fasteignamat Þjóðskrárinnar fyrir næsta ár hækkaði í heildina um 7,4%. Því var mismikið fagnað, enda viðbúið að fasteignaskattar hækki víðast hvar sem því nemur, þótt stöku sveitarfélag hyggist raunar lækka skatthlutfallið sem því nemur. Skuldir heimila hækkuðu um 9,4% á liðnu ári. Eignir og tekjur jukust hins vegar nokkuð og fasteigna- eigendum fjölgaði um 3.722. 30.433 fjölskyldur eru nú með skuldir um- fram eignir og fækkaði þeim um tvö þúsund frá fyrra ári. Hörður Áskelsson organisti lét af störfum í Hallgrímskirkju eftir deil- ur við sóknarnefndina. Mótettu- kórinn undir hans stjórn er því heimilislaus. Mannanafnanefnd hóf sinn stóra stimpil á loft í liðinni viku og heim- ilaði nafnið Gosa. . . . Á síðasta ári fengu tæp 16% 10-14 ára drengja ávísuð ADHD-lyf, en notkun lyfja við athyglisbresti og ofvirkni jókst um 19,4%. Frá árinu 2016 hefur notkun lyfja í þessum flokki aukist um 42%. Reykjanesvirkjun er á hálfum snún- ingi vegna bilunar í öðrum af tveim- ur hverflum hennar. Tjón HS orku vegna þessa er tilfinnanlegt, en stærsti raforkukaupandi fyrir- tækisins er álverið á Grundartanga. Vegagerðin telur tímabært að huga að endurnýjun Kjalvegar, en henni reiknast til að veggjaldið þyrfti að vera á bilinu 10-20 þúsund krónur til þess að greiða framkvæmdina niður á tuttugu árum. Vorpróf í Menntaskólanum í Reykjavík (MR) reyndust nem- endum á fyrsta ári erfið. Skólahald á liðnum vetri var óvenjulegt vegna heimsfaraldursins, en þrátt fyrir að fjarnám hafi að mestu gengið vel eru nemendurnir reynslulausir þegar kemur að prófum. Sumir skólar hafa aukið símat á námsframvindu yfir veturinn, en aðrir, ekki síst MR, leggja enn mikið upp úr prófum. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra settist upp í gröfu og tók fyrstu skóflustunguna að 20 þúsund m² viðbyggingu við Leifsstöð, sem taka á í notkun 2024. Áætlaður kostnaður er 21 milljarður króna, þrefalt meiri en upphaflega var ráð- gert. Makrílkvótinn á þessu ári verður 141 þúsund tonn. . . . Raforkuverð hefur hækkað veru- lega við að Landsvirkjun hækkaði verðskrá sína á heildsölumarkaði um 7,5-15%. Hún kemur í kjölfar bilunar í Reykjanesvirkjun, en auk þess er vatnshæð í helstu uppistöðulónum Landsvirkjunar með lakasta móti. Um 40% íbúa á höfuðborgarsvæðinu líst vel á borgarlínuna, en 34% líst illa á fyrirætlanirnar. Aðeins þriðj- ungur telur borgarlínuna líklega til þess að draga úr umferðartöfum. At- hyglisvert er að íbúum í miðborginni líst best á fyrirtækið en efasemd- irnar aukast eftir því sem fjær dreg- ur, einmitt meðal þeirra sem borg- arlínan á helst að vera fyrir. Í sömu könnun kom fram að and- staða er við fækkun akreina á Suð- urlandsbraut til þess að rýma fyrir borgarlínunni. Meirihluti svarenda telur bætur á stofnbrautum líklegri til þess að minnka tafir. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hyggst óska eftir framkvæmdaleyfi frá Reykjavíkur- borg til þess að endurbæta og stækka flugskýli Landhelgisgæsl- unnar og aðra aðstöðu á Reykjavík- urflugvelli. Ráðherrann segir það enga bið þola og ljóst að Reykja- víkurflugvöllur sé ekkert að fara næstu árin. Rífa á húsið, sem brann við Bræðra- borgarstíg. Rústirnar hafa staðið óhreyfðar mánuðum saman. Meirihlutinn í borgarstjórn felldi til- lögu sjálfstæðismanna og Miðflokks um að bjóða út raforkukaup borgar- innar, þrátt fyrir að fyrir liggi úr- skurðir um að borgin brjóti lög með því að gera það ekki. Mörg erlend skipafélög hafa af- bókað skipakomur til Faxaflóahafna í sumar og allt útlit er fyrir að engin risaskip komi til Reykjavíkur í sum- ar. Útgerð skemmtiferðaskipa varð fyrir miklu höggi í heimsfar- aldrinum og óvíst hversu hratt hún tekur við sér. *** Utanríkisráðherra sakaði dóms- málaráðherra um að svindla í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, en kjörstjórn úrskurðaði að hann færi með staðlausa stafi. Ekki fer neinum sögum af viðskiptum þeirra á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Landskönnun á mataræði Íslend- inga bendir til þess að ávaxta- og grænmetisneysla sé talsvert undir ráðleggingum landlæknis. Hins veg- ar hefur neysla orkudrykkja ungvið- isins margfaldast án þess að mælt hafi verið með henni. Domus Medica við Egilsgötu verð- ur lokað um næstu áramót, en or- sökin er m.a. erfitt rekstrarumhverfi sérfræðilækna, sem framkvæmda- stjórinn rekur m.a. til ríkisvæðingarstefnu ríkisstjórn- arinnar. Sérfræðingur á bílaleigumarkaði telur að Ísland „verði uppselt“ í ágúst og september hvað bíla- leigubíla áhrærir. Erfitt sé að bregðast við því þar sem að- fangakeðjur bílaframleiðenda séu enn í lamasessi vegna heimsfarald- ursins. Brennuvargurinn við Bræðraborg- arstíg, Marek Moszynski, var dæmdur ósakhæfur og sendur á réttargeðdeild í fangelsinu á Hólms- heiði. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra greindi frá því að frí- verslunarsamningur við Breta væri svo gott sem kominn í höfn. Erfið próf og prófkjör Eldgosið í Geldingadölum mallar áfram og breiðir hraunið þaðan úr sér jafnt og þétt. Um hríð var óttast að vinsæll útsýnishóll kynni að lokast af og var hann því rýmdur. Það gerðist þó ekki. Ekki að sinni. Morgunblaðið/Einar Falur 30.5.-4.6. Andrés Magnússon andres@mbl.is Í BACH OG FYRIR GE IRÞRÚÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTT IR Johann Sebastian Bach • Sex einleikssvítur fyrir selló VINAMINNI Á AKRANESI TÓNLISTARSKÓLI ÍSAFJARÐAR MENNINGARHÚSIÐ BERG Á DALVÍK HOF Á AKUREYRI GAMLA KAUPFÉLAGIÐ Í BREIÐDALSVÍK NORÐURLJÓS Í HÖRPU 8. JÚNÍ, KL. 20 10. JÚNÍ, KL. 20 13. JÚNÍ, KL. 16 14. JÚNÍ, KL. 20 17. JÚNÍ, KL. 17 10. & 11. JÚLÍ, KL. 16

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.