Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
H
átt í þrjátíu farþegaflug-
vélar komu til landsins um
liðna helgi og hafa annir á
Keflavíkurflugvelli aldrei verið jafn-
miklar frá upphafi kórónuveiru-
faraldursins. Starfsfólki við sýna-
töku í flugstöðinni hefur verið
fjölgað verulega, en allt að tuttugu
flugfélög fyrirhuga starfsemi á vell-
inum í sumar.
Vandræði heilbrigðiskerfisins halda
áfram að aukast, en fresta hefur
þurft skurðaðgerðum á Landspít-
alanum vegna manneklu, sem meðal
annars má rekja til vanhugsaðrar
styttingar vinnuvikunnar.
Minning Páls Ólafssonar skálds og
Ragnhildar Björnsdóttur, konu
hans og helsta yrkisefnis, var heiðr-
uð í Hólavallakirkjugarði, m.a. með
því að væta gröfina með viskídreitli.
Rifjast þá upp Morgunbæn skáldins:
Nóttin hefur níðst á mér,
nú eru augun þrútin.
Snemma því á fætur fer
og flýti mér í kútinn.
Við það augun verða hörð,
við það batnar manni strax.
Það er betra en bænargjörð
brennivín, að morgni dags.
Guðrún Hafsteinsdóttir varð hlut-
skörpust í fjölmennu prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi, en
í Norðausturkjördæmi hreppti Njáll
Trausti Friðbertsson efsta sætið.
Keppinautur hans um það, Gauti Jó-
hannesson, lenti hins vegar í þriðja
sæti og ákvað að taka því ekki.
Samherji baðst opinberlega afsök-
unar á framgöngu starfsmanna
sinna í viðbrögðum við fjölmiðla-
umræðu, sem birtust í ýmsum net-
samskiptum þeirra, sem Stundin og
Kjarninn komust yfir með ein-
hverjum ráðum. Þrátt fyrir afsök-
unarbeiðnina bólaði ekki á fyrirgefn-
ingu.
Farið var að boða fólk í bólusetn-
ingu með útdrætti kynjaskiptra ár-
ganga. Á netinu fannst fólk sem tók
andköf og saup hveljur yfir því að
kynin væru aðgreind með bleikum
miðum og bláum við dráttinn og
fannst sem ekkert hefði miðað í jafn-
réttismálum frá miðöldum.
Útsýnishóll í Geldingadölum var
rýmdur og lokaður af áður en hraun
næði að umkringja hann.
Sagðar voru fréttir af því að 31.265
Íslendingar hefðu ekki nýtt „ferða-
gjöfina“. Það gerðu hins vegar
215.828 manns. Flestir nýttu ferða-
gjöfina í Flyover Iceland. Gjöfin
virðist ekki mikið hafa verið nýtt til
ferðalaga, en talsvert í flatbökur og
bensín.
. . .
Íslensk stjórnvöld grennsluðust fyr-
ir um það hvort Íslendingar hefðu
verið meðal þeirra, sem bandarísk
njósnastofnun hleraði með aðstoð
Dana. Niðurstaðan var sú að enginn
hlustaði á Íslendinga og leyndu von-
brigði þjóðarinnar sér ekki.
Samkvæmt frumvarpi til fjárauka-
laga aukast ríkisútgjöld á árinu um
14,6 milljarða frá því sem fjárlög
heimila. Það er að langmestu leyti
vegna aðgerða vegna heimsfarald-
ursins, einkum á vinnumarkaði.
Fjárlagahallinn eykst af þessum
sökum um átta milljarða króna.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjón-
ustu fögnuðu því að ríkið hefði
hækkað fjárframlög til hjúkrunar-
heimila um einn milljarð króna, en
sögðu þó að það hrykki engan veg-
inn til.
Þjóðarútgjöld eru annars tekin að
vaxa á ný eftir nokkurt hlé og spáir
Landsbankinn 4,9% hagvexti í ár.
Fasteignamat Þjóðskrárinnar fyrir
næsta ár hækkaði í heildina um
7,4%. Því var mismikið fagnað, enda
viðbúið að fasteignaskattar hækki
víðast hvar sem því nemur, þótt
stöku sveitarfélag hyggist raunar
lækka skatthlutfallið sem því nemur.
Skuldir heimila hækkuðu um 9,4% á
liðnu ári. Eignir og tekjur jukust
hins vegar nokkuð og fasteigna-
eigendum fjölgaði um 3.722. 30.433
fjölskyldur eru nú með skuldir um-
fram eignir og fækkaði þeim um tvö
þúsund frá fyrra ári.
Hörður Áskelsson organisti lét af
störfum í Hallgrímskirkju eftir deil-
ur við sóknarnefndina. Mótettu-
kórinn undir hans stjórn er því
heimilislaus.
Mannanafnanefnd hóf sinn stóra
stimpil á loft í liðinni viku og heim-
ilaði nafnið Gosa.
. . .
Á síðasta ári fengu tæp 16% 10-14
ára drengja ávísuð ADHD-lyf, en
notkun lyfja við athyglisbresti og
ofvirkni jókst um 19,4%. Frá árinu
2016 hefur notkun lyfja í þessum
flokki aukist um 42%.
Reykjanesvirkjun er á hálfum snún-
ingi vegna bilunar í öðrum af tveim-
ur hverflum hennar. Tjón HS orku
vegna þessa er tilfinnanlegt, en
stærsti raforkukaupandi fyrir-
tækisins er álverið á Grundartanga.
Vegagerðin telur tímabært að huga
að endurnýjun Kjalvegar, en henni
reiknast til að veggjaldið þyrfti að
vera á bilinu 10-20 þúsund krónur til
þess að greiða framkvæmdina niður
á tuttugu árum.
Vorpróf í Menntaskólanum í
Reykjavík (MR) reyndust nem-
endum á fyrsta ári erfið. Skólahald á
liðnum vetri var óvenjulegt vegna
heimsfaraldursins, en þrátt fyrir að
fjarnám hafi að mestu gengið vel eru
nemendurnir reynslulausir þegar
kemur að prófum. Sumir skólar
hafa aukið símat á námsframvindu
yfir veturinn, en aðrir, ekki síst MR,
leggja enn mikið upp úr prófum.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra settist upp í gröfu og tók
fyrstu skóflustunguna að 20 þúsund
m² viðbyggingu við Leifsstöð, sem
taka á í notkun 2024. Áætlaður
kostnaður er 21 milljarður króna,
þrefalt meiri en upphaflega var ráð-
gert.
Makrílkvótinn á þessu ári verður
141 þúsund tonn.
. . .
Raforkuverð hefur hækkað veru-
lega við að Landsvirkjun hækkaði
verðskrá sína á heildsölumarkaði um
7,5-15%. Hún kemur í kjölfar bilunar
í Reykjanesvirkjun, en auk þess er
vatnshæð í helstu uppistöðulónum
Landsvirkjunar með lakasta móti.
Um 40% íbúa á höfuðborgarsvæðinu
líst vel á borgarlínuna, en 34% líst
illa á fyrirætlanirnar. Aðeins þriðj-
ungur telur borgarlínuna líklega til
þess að draga úr umferðartöfum. At-
hyglisvert er að íbúum í miðborginni
líst best á fyrirtækið en efasemd-
irnar aukast eftir því sem fjær dreg-
ur, einmitt meðal þeirra sem borg-
arlínan á helst að vera fyrir.
Í sömu könnun kom fram að and-
staða er við fækkun akreina á Suð-
urlandsbraut til þess að rýma fyrir
borgarlínunni. Meirihluti svarenda
telur bætur á stofnbrautum líklegri
til þess að minnka tafir.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra hyggst óska eftir
framkvæmdaleyfi frá Reykjavíkur-
borg til þess að endurbæta og
stækka flugskýli Landhelgisgæsl-
unnar og aðra aðstöðu á Reykjavík-
urflugvelli. Ráðherrann segir það
enga bið þola og ljóst að Reykja-
víkurflugvöllur sé ekkert að fara
næstu árin.
Rífa á húsið, sem brann við Bræðra-
borgarstíg. Rústirnar hafa staðið
óhreyfðar mánuðum saman.
Meirihlutinn í borgarstjórn felldi til-
lögu sjálfstæðismanna og Miðflokks
um að bjóða út raforkukaup borgar-
innar, þrátt fyrir að fyrir liggi úr-
skurðir um að borgin brjóti lög með
því að gera það ekki.
Mörg erlend skipafélög hafa af-
bókað skipakomur til Faxaflóahafna
í sumar og allt útlit er fyrir að engin
risaskip komi til Reykjavíkur í sum-
ar. Útgerð skemmtiferðaskipa
varð fyrir miklu höggi í heimsfar-
aldrinum og óvíst hversu hratt hún
tekur við sér.
***
Utanríkisráðherra sakaði dóms-
málaráðherra um að svindla í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík,
en kjörstjórn úrskurðaði að hann
færi með staðlausa stafi. Ekki fer
neinum sögum af viðskiptum þeirra
á ríkisstjórnarfundi á föstudag.
Landskönnun á mataræði Íslend-
inga bendir til þess að ávaxta- og
grænmetisneysla sé talsvert undir
ráðleggingum landlæknis. Hins veg-
ar hefur neysla orkudrykkja ungvið-
isins margfaldast án þess að mælt
hafi verið með henni.
Domus Medica við Egilsgötu verð-
ur lokað um næstu áramót, en or-
sökin er m.a. erfitt rekstrarumhverfi
sérfræðilækna, sem framkvæmda-
stjórinn rekur m.a. til
ríkisvæðingarstefnu ríkisstjórn-
arinnar.
Sérfræðingur á bílaleigumarkaði
telur að Ísland „verði uppselt“ í
ágúst og september hvað bíla-
leigubíla áhrærir. Erfitt sé að
bregðast við því þar sem að-
fangakeðjur bílaframleiðenda séu
enn í lamasessi vegna heimsfarald-
ursins.
Brennuvargurinn við Bræðraborg-
arstíg, Marek Moszynski, var
dæmdur ósakhæfur og sendur á
réttargeðdeild í fangelsinu á Hólms-
heiði.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra greindi frá því að frí-
verslunarsamningur við Breta væri
svo gott sem kominn í höfn.
Erfið próf
og prófkjör
Eldgosið í Geldingadölum mallar áfram og breiðir hraunið þaðan úr sér jafnt og þétt. Um hríð var óttast að vinsæll
útsýnishóll kynni að lokast af og var hann því rýmdur. Það gerðist þó ekki. Ekki að sinni.
Morgunblaðið/Einar Falur
30.5.-4.6.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Í BACH OG FYRIR
GE IRÞRÚÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTT IR
Johann Sebastian Bach • Sex einleikssvítur fyrir selló
VINAMINNI
Á AKRANESI
TÓNLISTARSKÓLI ÍSAFJARÐAR
MENNINGARHÚSIÐ BERG
Á DALVÍK
HOF Á AKUREYRI
GAMLA KAUPFÉLAGIÐ
Í BREIÐDALSVÍK
NORÐURLJÓS Í HÖRPU
8. JÚNÍ, KL. 20
10. JÚNÍ, KL. 20
13. JÚNÍ, KL. 16
14. JÚNÍ, KL. 20
17. JÚNÍ, KL. 17
10. & 11. JÚLÍ, KL. 16