Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021 L ýðræðið er vegsamað og í hávegum haft, nema hvað? Reglulega og ótt og títt er þó bent á annmarka þess og galla. Orðheppnir menn og gjör- kunnugir öllum innviðum stjórnskip- unar að fornu, og nýju taka undir óvægið mat, en sanngjarnt, á leikreglum lýðræðis, sem sýni að það sé, þrátt fyrir mjúkt heiti sitt, mein- gallað kerfi sem virki illa, sem lokaorð í stjórnskip- uninni. Þessir og aðrir snillingar tefla fram óhrekjanlegum dæmum og sláandi, og í þúsundatali, til að undir- strika og sanna hversu óheppilegt og sleipt þetta form hafi sannarlega reynst. En þeir hafa þó ekki sleppt síðasta orðinu fyrr en þeir jesúsa sig og segjast eigi að síður verða að árétta, að fyrrnefndar óhrekjanlegu staðreyndir breyti engu um hitt, að ekkert annað kerfi taki þó lýð- ræðinu fram, hversu ömurlegt og illt sem það kunni að reynast í svo mörgum efnum. Það sé nefnilega verkurinn að öll önnur kerfi, sem standa ein og sér, séu lakari, eða verri og jafnvel stórkostlega hættuleg fyrir þorra þjóða og það sýni margföld og stundum hrikaleg reynsla svo um það verði varla lengur deilt. Ætla mætti af þessum inngangskafla að Ragnar Reykás í mörgum eintökum hafi haft umræðustjórn- ina með höndum. En Reykás var ekki eins vitlaus og honum var borgað fyrir að vera, eins og hann tók sjálfur gjarnan fram, og „hitti naglann oftar á höfuðið en á aðra líkamshluta,“ eins og hann benti Þórði Breiðfjörð á, þegar þeir hittust á förnum vegi forðum og varð það samtal ekki lengra. Gott, en ekki allra meina bót Um þessa helgi heldur Sjálfstæðisflokkurinn próf- kjör en flokkurinn hafði á sínum tíma forystu um slíkt nýmæli og er vafalaust að það varð honum til fram- dráttar að minnsta kosti um sinn. Um það var rætt þá að flokkurinn hefði með því stigið stórt skref í lýðræðisátt og bréfritari var einn þeirra sem í þeirri fornöld vatt sér margoft galvaskur í slíka orrustu. Alla pólitíska ævi síðan vegnaði hon- um vel í prófkjörum, en það segir að sjálfsögðu ekk- ert um það hvort þau sem slík voru í sínu eðli góð eða vond. Í byrjun „brenndi“ flokkurinn sig reyndar á próf- kjörunum. Þau höfðu ekki verið hugsuð til enda. Knú- ið var á um að merkt væri með X við þau nöfn sem menn vildu kjósa. X-ið var jú þekkt aðferð úr kosn- ingum, þar sem þau nýttust vel við að gera upp á milli flokka. En þau áttu illa við þegar sett var X við marga frambjóðendur. Þá voru flokksmenn í rauninni að merkja við þá sem þeir þekktu eða könnuðust við en ekki að velja á milli flokksmanna um forystu. Kjós- endur sögðu gjarnan sem svo, þegar út var komið, að þeir hefðu krossað fyrst við sinn mann og svo nokkra sem þeim leist ekki illa á. En „ég setti seinast X við hann þennan sem ég vissi að fengi lítið“. Aukaverkanir Eins var knúið á um að hafa prófkjörið ekki „lokað“ eins og það var kallað, sem var vafasöm skilgreining. Þarna var flokkurinn að velja sína frambjóðendur og ástæðulaust með öllu að bjóða utanaðkomandi að hafa áhrif á uppstillingu hans. Þótt prófkjörum hefði í upp- hafi verið fagnað sem „lýðræðislegu“ framtaki áttuðu menn sig fljótlega á því að það væri fullt eins lýðræð- islegt að flokkurinn sem slíkur stillti upp sínu fram- boði til að taka þátt í lýðræðislegri kosningu. En þeg- ar frá leið tóku almennir flokksmenn sem og leiðtogar hans að skynja að prófkjör gátu, þegar verst tókst til, verið beggja handa járn fyrir flokkinn. Stundum stóð svo á að þörfin fyrir mannabreytingar var minni en endranær. Með prófkjöri yrði ekki annað gert en að ýta undir að bræður berðust. Enda dæmin þekkt um að sár opnuðust og endaði með sundrungu og hatri. Einnig var áberandi að fylkingar sem „urðu undir“ í prófkjöri dugðu stundum sínum flokki verr en ætla mátti í þeim kosningum sem úrslitum réðu um mik- ilvæg málefni þjóðarinnar eða einstakra sveitarfé- laga. Og stundum létu menn undan kvaki „utan úr bæ“ og tóku að leiðrétta prófkjörin. Það endaði sjald- an vel. Mikil þátttaka í prófkjöri var ekki endilega ávísun á að flokkurinn væri á mikilli siglingu og þess mundi sjá stað í kosningunum í kjölfarið. Og stundum leiddu prófkjör beinlínis til klofnings með óbætanlegum af- leiðingum fyrir flokkinn. Og af því að flokkurinn fann auðvitað til sín eins og aðrir flokkar, og stundum rúmlega það vegna stærðar sinnar, töldu menn þar á bæ að skaðinn hefði verið víðtækur fyrir land og þjóð. Skaðinn fyrir flokkshags- munina var sjálfsagt sjáanlegri þar sem hann kom fyrir vikið veikari til næsta þáttar stjórnmálabarátt- unnar. Ekki má lengra ganga Velviljaðir menn hafa stundum talið það sjálfsagt skref í þágu lýðræðisins að almennir flokksmenn kjósi helstu leiðtoga flokksins en ekki Landsfundur hans. Því miður hefur borið á því að gert sé minna með það en áður var, sem fokksmenn samþykkja á Landsfundi. Það hefur þýtt að vigt hans hefur snar- minnkað svo verulegur skaði er af. Ef það bættist svo við þetta virðingarleysi að landsfundarmenn kæmu ekki beint að kosningu flokksforystu væri fátt eftir og minni vegur þætti vera af mætingu til Landsfundar. Verkamannaflokkurinn breski er í mikilli niðurlæg- ingu um þessar undir. Stjórnmálaskýrendur telja flestir skýringuna vera að Ed Miliband, þá leiðtogi flokksins, beitti sér fyrir því að „almennir flokks- menn“ fengju úrslitavald í leiðtogakjöri og þing- flokkur og aðrir áhrifahópar misstu sitt vægi. Breyt- ingin varð til þess að Jeremy Corbyn var kosinn og kom hann flokknum í rúst á fáeinum árum. En var þetta ekki augljóst lýðræðislegt skref, gæti einhver spurt. En svarið er ekki eins augljóst og ætla mætti í fyrstu. Þeir, sem áður höfðu haft mikið vægi við leið- togakjör, þekktu vel til sjónarmiða hinna almennu kjósenda flokksins. En það gerðu þeir alls ekki, nýlið- arnir sem flykktust í flokkinn, því að nú kostaði það lítið sem ekkert lengur að eiga aðild að honum. Af- leiðingin var sú að kjósendur í fjölda kjördæma sem höfðu kosið Verkmannaflokkinn í kosningum áratug- um saman og höfðu áður ekki getað hugsað sér að Lýðræðislegi þráðurinn verður að halda Reykjavíkurbréf04.06.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.