Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 18
S
túdentsprófið er í höfn hjá
Arnari Frey Hjartarsyni eins
og þúsundum ungmenna sem
útskrifuðust á síðustu vikum.
Arnar Freyr fór ekki alveg
dæmigerða leið því hann tók sitt
stúdentspróf í fata- og textílhönnun
frá listnámsbraut Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ. Arnar er nú kom-
inn í sumarvinnuna, en hann
vinnur í 17 í Kringlunni þar sem
vit hans á tísku kemur í góðar
þarfir.
„Ég hef alltaf haft skoðun á því
hvernig ég klæði mig, allt frá því að
ég var lítið barn. En tískuáhuginn
kviknaði líklega í sjöunda, áttunda
bekk. Í tíunda bekk ákvað ég að feta
þessa braut,“ segir Arnar.
„Ég kunni í raun ekkert nema rétt það sem
maður lærir í grunnskóla í textíl og þurfti því
að læra allt frá grunni; að sauma, handavinnu,
að sníða og hanna. Að auki var ég í bóklegum
fögum,“ segir Arnar og segist strax hafa fund-
ið að námið ætti vel við sig.
„Ég hef aldrei litið til baka eða séð
eftir neinu.“
Flóknara en stærðfræði
Arnar er einn fjögurra nemenda
sem útskrifuðust af þessari braut í
ár.
„Skemmtilegast var að hanna
eitthvað og fá svo að búa það til. Að
fá að skapa eitthvað sem maður hafði
í höndunum. Það var mikið frelsi til
sköpunar í náminu; við fengum verkefni
en höfðum svo frjálsar hendur við útfærslu
hugmynda okkar, á meðan það féll innan
ramma verkefnisins. Það hjálpaði mikið og í
FG er mikil áhersla lögð á hönnunar-
hlutann,“ segir hann og segist líta á námið
sem listnám frekar en aðeins að búa til föt.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í tískuheim-
inum?
„Það er langur listi. Það eru margir sem
standa upp úr. Hvað varðar hönnun hef ég
mjög gaman af japönskum hönnuðum eins og
Rei Kawakubo, líka Dries Van Noten og Ann
Demeulemeester frá Belgíu. Tom Brown
stendur upp úr. Ég hef gaman af þessum „av-
ant-garde“-heimi,“ segir Arnar og segist hafa
kafað djúpt í tískufræðin eftir að hann byrjaði í
náminu fyrir þremur árum.
„Eftir að ég byrjaði í þessu hefur í raun lífið
snúist um föt; vinnan, áhugamál, nám. Þetta er
mitt helsta áhugamál og ég les mikið greinar
um tísku og horfi á tískusýningar.“
Hvað fannst fjölskyldu og vinum um að þú
færir á þessa braut?
„Þetta kom foreldrum mínum svolítið á
óvart því ég hafði aldrei saumað neitt og ekki
Arnar hefur mikið
verið að hanna herra-
föt og notar gjarnan
ullarefni og jarðliti.
Nýstúdentinn Arnar Freyr Hjartarson fór aðrar leiðir en
vinirnir en hann útskrifaðist um síðustu helgi af fata-
hönnunarbraut frá Fjölbraut í Garðabæ. Arnar lifir og
hrærist í tískunni, sem hann segir sitt helsta áhugamál.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Arnar hannaði jakka
og pils, en hug-
myndin er sótt til
klæðskiptinga í New
York árið 1920.
Rei Kawakubo er
hönnuður sem Arnar
heldur mikið upp á.
Fatahönnuðurinn Ann De-
meulemeester er ein þeirra
sem Arnar lítur upp til.
Yfirhafnir hafa
verið í uppáhaldi
hjá Arnari.
Lífið snýst um föt
AFP
AFP
Tristan Alejandro Castañeda, Brynjar
Logi Halldórsson, Ólafur Arnar Jónsson
og Mía Luly Johansen voru módel hjá
Arnari Frey, sem stendur fyrir miðju.
Kjóllinn er einn
sá fyrsti sem
Arnar hannar af
kvenfatnaði.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
HÖNNUN