Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 19
Arnar Freyr Hjartarson veit fátt skemmtilegra en að hanna föt og stefn- ir á frekara nám í fatahönnun. Tíska á hug hans allan og það verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. sýnt tísku áhuga, nema bara með því að kaupa föt. En þau studdu mig alla leið og ég fékk mik- ið hrós. Fólk vissi að það var ekki algengt að fara í fatahönnun en öllum fannst þetta flott hugmynd,“ segir Arnar. „Vinum mínum leist líka vel á þetta en það var enginn sem elti mig. Ég fékk stundum skot að þetta væri „rennibraut“, eða léttara nám en þeir væru í, þegar ég var að sauma en þeir að læra náttúrufræði eða stærðfræði,“ segir hann og segist oft hafa þurft að leysa flókin verkefni. „Að finna út hvernig maður sníður skyrtu og saumar er að mínu mati miklu flóknara en að læra stærðfræði.“ Menningarkimi frá 1920 Hvað finnst þér skemmtilegast að hanna? „Mér finnst alltaf mesti karakterinn og fjöl- breytileiki í yfirhöfnum, eins og jökkum og frökkum. Ég lít oft til fínni klæðnaðar, eins og jakkafata og fínni frakka. En áhuginn er sí- breytilegur,“ segir Arnar og segist ekki vita í hvaða átt hann ætli nú eftir útskrift úr mennta- skóla. „Ég sótti um í klæðskeranum en er ekki al- veg viss með það; mögulega tek ég mér frí frá skóla í eitt ár og fer svo kannski utan í nám. Ég er heillaður af Belgíu, en margir góðir hönn- uðir koma þaðan,“ segir Arnar og segist ætla að vinna við tísku í framtíðinni. „Ég er opinn fyrir öllu og veit ekki hvort mig langar að vinna sjálfstætt eða fyrir fyrirtæki. Það fer svolítið eftir tækifærum.“ Lokaverkefni Arnars var afar krefjandi, en hann hannaði og saumaði fjóra alklæðnaði. „Aðallega var ég að fjalla um menningar- kima sem myndaðist í New York árið 1920, en það var hópur „kross-dressera“. Ég fjallaði um hvernig þau þurftu að lifa í raun tvöföldu lífi og fela hvernig þau voru. Í dag telst þetta miklu eðlilegra. Ef þú sérð karlmann í kvenmannsfötum úti á götu í dag þykir það í lagi en árið 1920 var sá í lífshættu. Ég lærði um þetta í hönn- unarsögunni og fannst það áhugavert,“ segir Arnar en hann ákvað þá að nýta sér söguna og hanna línuna, sem hann nefndi Proteus, fyrir lokaverkefnið. Að finna lausnir á vanda Hvaða litir og efni höfða mest til þín? „Í þessari línu vann ég með ull en allar flík- urnar eru úr einhvers konar ull. Ég er mjög hrifin af grófari efnum og eins litum eins og jarðlitum. Dekkri litir, grár og brúnn, eru þeir litir sem ég leita oftast í,“ segir hann og segist oftast hanna föt sem hann sjálfur myndi vilja ganga í. „Það er kostur og ókostur því það er auðvit- að gaman að ganga í því sem maður hefur sjálf- ur hannað og saumað, en það takmarkar líka það sem maður vill gera og ég er að reyna að venja mig af því. Ég hef verið mikið í karlaföt- um en var núna í fyrsta skipti að prufa mig áfram með kvenföt. Ég saumaði fyrsta kjólinn minn fyrir lokaverkefnið, sem var mjög erfitt, en hann stendur upp úr og ég fékk mesta hrós- ið fyrir hann.“ Var eitthvað sem kom þér á óvart við námið? „Það má segja að það hafi verið erfiðara en ég bjóst við. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu flókið þetta gat verið. En svo var þetta líka miklu skemmtilegra en ég hefði getað ímyndað mér og ég hef eignast fjölmarga nýja vini. Ég gerði auðvitað fullt af mistökum en lærði bara af þeim. Ég hef aldrei gert flík sem er 100% fullkomin en þá reyni ég bara að gera betur næst,“ segir Arnar. „Verstu mistökin voru kannski þegar ég var að gera frakka fyrir lokaverkefnið. Ég klúðraði báðum vösunum, á mismunandi hátt. Ég saum- aði annan öfugan á og hinn á hvolfi! En það er það skemmtilega; að finna lausn á vanda- málum.“ ’ Eftir að ég byrjaði í þessu hefur í raun lífið snúist um föt; vinnan, áhugamál, nám. Þetta er mitt helsta áhugamál og ég les mikið greinar um tísku og horfi á tískusýningar. Morgunblaðið/Ásdís 6.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 L undúnatvíæringurinn í hönnun var sett- ur 1. maí. Tvíæringnum er ætlað að ýta undir alþjóðlegt samstarf í hönnun og undirstrika þá þýðingu sem greinin hefur um heim allan. Á sýningin að bera vitni „metnaði til að búa til altæk svör við vandamálum, sem varða okkur öll“, segir í kynningartexta á vef- síðu tvíæringsins. Stjórnandi tvíæringsins er Es Devlin, sem hefur komið víða við í verkum sínum. Hún er sennilega þekktust fyrir sviðsskúlptúra, sem hún hefur gert fyrir Beyoncé, U2, The Weeknd, Adele og Kanye West. Devlin hannar jafnframt burðarverk tvíær- ingsins, „Skóg breytinga“, innsetningu með 400 trjám í portinu fyrir framan Somerset House þar sem tvíæringurinn er haldinn. Devlin rifjaði upp í viðtali við breska blaðið The Guardian að fyrir mörgum árum þegar verið var að sýna henni Somerset House hefði henni verið sagt að í portinu mættu ekki vera nein tré. „Auðvitað var það fyrsta sem við vild- um gera þegar við fórum að íhuga tvíæringinn í ár að koma með þann mótleik gegn þessum hugmyndum um drottnun mannsins á nátt- úrunni að leyfa skógi að yfirtaka allt portið.“ Kvaðst hún einnig hafa haft í huga að skógar væru iðulega vettvangur umbreytinga í bók- menntum, hvort sem það væri Arden-skógur, sem kemur fyrir í Sem yður þóknast eftir Shakespeare, eða álagaskógar í Grimms- ævintýrum. Í skóginum eru 23 trjátegundir sem finna má á Bretlandi og í Norður-Evrópu. Þar er einnig rjóður þar sem gestir geta kynnt sér heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun, upprætingu fátæktar, baráttu gegn ójafnrétti og aðgerðir gegn loftslagsvá. Trén verða svo fjarlægð og gróðursett ann- ars staðar þegar tvíæringnum lýkur 27. júní. Es Devlin hannaði „Skóg breytinga“ við Somerset House í London í samvinnu við Project Every- one. Þar standa nú 400 tré og í rjóðri geta gestir kynnt sér heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. AFP Gildi hönnunar undir- strikað á tvíæringi Chrissa Amuah og Alice Asafu-Adjae hönnuðu skála Gana, sem nefnist „Amplify“. Hönnuðurinn Naomi McIntosh stillir sér upp í innsetningu sinni, „Kyrrláti garðurinn“. Hönnuðurinn Maria Adela Diaz gerði skála Gvatemala og ber hann heitið „Fortíðarþrá“.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.