Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Blaðsíða 20
Sögujörðin Keldur á Rangárvöllum er nú komin í eigu ríkisins og vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Bærinn, sem er einstakar menningarminjar, hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1943, sem hefur tryggt verndun hans. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Finn fyrir Sturlungaöldinni N ú er menningarlandslagið í heild sinni í vörslu safnsins sem er mikilvægur áfangi, að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar. „Ríkið er búið að kaupa jörðina og skiptir það miklu máli að þjóðin eigi Keldur í heild, menningarminjarnar og umhverfið í kring. Í dag, þegar við erum að varðveita minjar, er náttúr- an og umhverfið ekki síður hluti af heildinni en sagan,“ segir Margrét. Græn ferðaþjónusta Margrét segir kaup ríkisins gera Þjóðminjasafninu kleift að hlúa að samhengi menningarminjanna og náttúrunnar sem þær eru hluti af, sem og byggja upp frekari innviði og bæta aðgengi og þjónustu fyrir ferðamenn. „Keldur eru með merkustu sögu- stöðum þjóðarinnar og hluti af ómet- anlegum arfi sem torfhúsin eru. Þessi kaup styrkja okkur í þeirri vegferð að varðveita húsin og hand- verkið og sinna minjavörslu, auk þess að geta hvatt til rannsókna á einstökum arfi torfhúsanna. Það á við um sögu, byggingarlist og hand- verk, sem er grundvöllur vandaðrar varðveislu. En hlutverk okkar er einnig á sviði ferðaþjónustu. Það skiptir máli að hafa viðeigandi að- gengi að svona stöðum fyrir bæði innlenda og erlenda gesti. Nú þegar við byggjum upp ferðaþjónustu eftir heimsfaraldurinn er mjög mikilvægt að leggja áherslu á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og græna ferða- þjónustu. Ef einhver staður er í anda þess er það torfhúsaarfurinn sem er sprottinn úr umhverfinu á hverjum stað og unninn úr þeim byggingar- efnum sem þar eru aðgengileg, svo sem hraungrýti úr Heklu og viði af rekafjörum eins og á við um bæinn á Keldum. Torfhúsin eru þannig í raun sjálfbær og verða hluti af náttúrunni aftur ef þau eru yfirgefin og ekki haldið við. Það má kannski segja að þau rétt svo skilji eftir sig bros- hrukku í landslaginu, það er þústir og hleðslur rústanna, fornleifar.“ Sagan ekki síður en fossar Verið er að leggja niður hefðbundinn búskap á Keldum og segir Margrét að Keldnabændur muni áfram búa á staðnum. „Við erum búin að halda við þess- um húsum um áratugaskeið í góðri samvinnu við Keldnabændur en nú eru fleiri hús undir okkar eigu sem tilheyra heildinni,“ segir Margrét og segir standa til að stækka bílastæði og koma fyrir þjónustumiðstöð í steinsteyptum útihúsum. „Við fengum styrk úr Lands- áætlun um upp- byggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögu- legum minjum og stefnum að því að þetta verði einn af mikilvægustu ferðamannastöðum á landinu. Ferða- menn koma hingað til að kynnast bæði landi og þjóð. Ekki síður sög- unni en fossum. En þetta snýst ekki um fjölda ferðamanna hjá okkur, heldur frekar að fólk komi og njóti.“ Á pari við píramídana Margrét segir byggingarnar á Keld- um einstakar menningarminjar í al- þjóðlegu samhengi, en húsin eru að grunni til frá miðöldum. „Maður finnur fyrir Sturlungaöld- inni. Torfhús eru í eðli sínu þannig að það þarf að halda þeim við því þau eru byggð úr náttúruefnum úr sínu umhverfi. Þessi efni, rekaviður og torf, voru forsenda þess að hægt væri að búa hér á landi. Það tala margir um torfkofa, sem fer mjög í taugarnar á mér því þetta eru gríðar- lega merkileg mannvirki og mikil verkfræði sem býr að baki, auk hug- vits og þekkingar. Torfhús eru á pari við píramídana.“ Hugvit og handlagni Meðal húsa húsasafns Þjóðminja- safnsins eru allir stærstu og merk- ustu torfbæir landsins og torf- kirkjur. „Þau torfhús sem eru til í dag væru ekki til nema vegna þess að Þjóðminjasafnið hefur varðveitt þau. Þetta eru viðkvæmar minjar ef þeim er ekki haldið við og fjármagnið tak- markað,“ segir Margrét og segir nokkra bæi á bið eftir að verða gerðir upp, til að mynda Hóla í Eyjafirði. „Það er um hundrað milljón króna verkefni. Við erum að berjast við að fá fjármagn í þennan bæ og fleiri sem bíða. Við þyrftum tvöfalt fjármagn miðað við það sem við fáum,“ segir Margrét og segir marga ráðamenn rugla saman húsafriðunarsjóði, sem einstaklingar geta sótt fjármagn í, og húsasafni Þjóðminjasafnsins. „Í húsasafninu hafa fjárveitingar ekki aukist í takt við fjárveitingar í húsafriðunarsjóð,“ segir Margrét og segist gjarnan vilja sjá aukið fé til uppbyggingar torfbæja. „Við eigum að vera stolt af þessum arfi og bera virðingu fyrir torfbæjun- um. Þeir eru til marks um gríðarlega þrautseigju, hugvit og handlagni Ís- lendinga.“ Gamla torfbænum á Keldum hefur verið vel viðhaldið í áratugi. Ljósmyndir/Þjóðminjasafnið Kirkjan á Keldum er afar falleg. Inni í torfbænum er allt eins og það var fyrr á öldum. Á baðstofulofti hafa eflaust verið sagðar margar sögur. Margrét Hallgrímsdóttir 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021 SÖGUSLÓÐIR Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.