Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Side 20
Sögujörðin Keldur á Rangárvöllum er nú komin í eigu ríkisins og vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Bærinn, sem er einstakar
menningarminjar, hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1943, sem hefur tryggt verndun hans.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Finn fyrir Sturlungaöldinni
N
ú er menningarlandslagið í
heild sinni í vörslu safnsins
sem er mikilvægur áfangi,
að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur
þjóðminjavarðar.
„Ríkið er búið að kaupa jörðina og
skiptir það miklu máli að þjóðin eigi
Keldur í heild, menningarminjarnar
og umhverfið í kring. Í dag, þegar við
erum að varðveita minjar, er náttúr-
an og umhverfið ekki síður hluti af
heildinni en sagan,“ segir Margrét.
Græn ferðaþjónusta
Margrét segir kaup ríkisins gera
Þjóðminjasafninu kleift að hlúa að
samhengi menningarminjanna og
náttúrunnar sem þær eru hluti af,
sem og byggja upp frekari innviði og
bæta aðgengi og þjónustu fyrir
ferðamenn.
„Keldur eru með merkustu sögu-
stöðum þjóðarinnar og hluti af ómet-
anlegum arfi sem torfhúsin eru.
Þessi kaup styrkja okkur í þeirri
vegferð að varðveita húsin og hand-
verkið og sinna minjavörslu, auk
þess að geta hvatt til rannsókna á
einstökum arfi torfhúsanna. Það á
við um sögu, byggingarlist og hand-
verk, sem er grundvöllur vandaðrar
varðveislu. En hlutverk okkar er
einnig á sviði ferðaþjónustu. Það
skiptir máli að hafa viðeigandi að-
gengi að svona stöðum fyrir bæði
innlenda og erlenda gesti. Nú þegar
við byggjum upp ferðaþjónustu eftir
heimsfaraldurinn er mjög mikilvægt
að leggja áherslu á hugmyndafræði
sjálfbærrar þróunar og græna ferða-
þjónustu. Ef einhver staður er í anda
þess er það torfhúsaarfurinn sem er
sprottinn úr umhverfinu á hverjum
stað og unninn úr þeim byggingar-
efnum sem þar eru aðgengileg, svo
sem hraungrýti úr Heklu og viði af
rekafjörum eins og á við um bæinn á
Keldum. Torfhúsin eru þannig í raun
sjálfbær og verða hluti af náttúrunni
aftur ef þau eru yfirgefin og ekki
haldið við. Það má kannski segja að
þau rétt svo skilji eftir sig bros-
hrukku í landslaginu, það er þústir
og hleðslur rústanna, fornleifar.“
Sagan ekki síður en fossar
Verið er að leggja niður hefðbundinn
búskap á Keldum og segir Margrét
að Keldnabændur muni áfram búa á
staðnum.
„Við erum búin að halda við þess-
um húsum um áratugaskeið í góðri
samvinnu við Keldnabændur en nú
eru fleiri hús undir okkar eigu sem
tilheyra heildinni,“ segir Margrét og
segir standa til að stækka bílastæði
og koma fyrir þjónustumiðstöð í
steinsteyptum útihúsum.
„Við fengum
styrk úr Lands-
áætlun um upp-
byggingu innviða
til verndar náttúru
og menningarsögu-
legum minjum og
stefnum að því að
þetta verði einn af
mikilvægustu
ferðamannastöðum á landinu. Ferða-
menn koma hingað til að kynnast
bæði landi og þjóð. Ekki síður sög-
unni en fossum. En þetta snýst ekki
um fjölda ferðamanna hjá okkur,
heldur frekar að fólk komi og njóti.“
Á pari við píramídana
Margrét segir byggingarnar á Keld-
um einstakar menningarminjar í al-
þjóðlegu samhengi, en húsin eru að
grunni til frá miðöldum.
„Maður finnur fyrir Sturlungaöld-
inni. Torfhús eru í eðli sínu þannig að
það þarf að halda þeim við því þau
eru byggð úr náttúruefnum úr sínu
umhverfi. Þessi efni, rekaviður og
torf, voru forsenda þess að hægt
væri að búa hér á landi. Það tala
margir um torfkofa, sem fer mjög í
taugarnar á mér því þetta eru gríðar-
lega merkileg mannvirki og mikil
verkfræði sem býr að baki, auk hug-
vits og þekkingar. Torfhús eru á pari
við píramídana.“
Hugvit og handlagni
Meðal húsa húsasafns Þjóðminja-
safnsins eru allir stærstu og merk-
ustu torfbæir landsins og torf-
kirkjur.
„Þau torfhús sem eru til í dag
væru ekki til nema vegna þess að
Þjóðminjasafnið hefur varðveitt þau.
Þetta eru viðkvæmar minjar ef þeim
er ekki haldið við og fjármagnið tak-
markað,“ segir Margrét og segir
nokkra bæi á bið eftir að verða gerðir
upp, til að mynda Hóla í Eyjafirði.
„Það er um hundrað milljón króna
verkefni. Við erum að berjast við að
fá fjármagn í þennan bæ og fleiri sem
bíða. Við þyrftum tvöfalt fjármagn
miðað við það sem við fáum,“ segir
Margrét og segir marga ráðamenn
rugla saman húsafriðunarsjóði, sem
einstaklingar geta sótt fjármagn í, og
húsasafni Þjóðminjasafnsins.
„Í húsasafninu hafa fjárveitingar
ekki aukist í takt við fjárveitingar í
húsafriðunarsjóð,“ segir Margrét og
segist gjarnan vilja sjá aukið fé til
uppbyggingar torfbæja.
„Við eigum að vera stolt af þessum
arfi og bera virðingu fyrir torfbæjun-
um. Þeir eru til marks um gríðarlega
þrautseigju, hugvit og handlagni Ís-
lendinga.“
Gamla torfbænum á
Keldum hefur verið vel
viðhaldið í áratugi.
Ljósmyndir/Þjóðminjasafnið
Kirkjan á Keldum
er afar falleg.
Inni í torfbænum er allt eins og það var fyrr á öldum. Á baðstofulofti hafa eflaust verið sagðar margar sögur.
Margrét
Hallgrímsdóttir
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
SÖGUSLÓÐIR
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!