Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
LESBÓK
SPENNA Aðdáendur spennukóngsins Stephens Kings
sprikla sjálfsagt af gleði þessa dagana en nýir þættir í átta
hlutum, byggðir á bókinni sem King hefur sjálfur við-
urkennt að hann haldi mest upp á af verkum sínum, Lisey’s
Story, voru frumsýndir á efnisveitunni Apple TV+ á föstu-
daginn. Í forgrunni er Lisey Landon, sem Julianne Moore
leikur, sem verjast þarf ágangi fræðimanna og aðdá-
enda eiginmanns hennar heitins, sem var frægur rit-
höfundur. „Er meira efni til?“ grenja þeir af óþreyju.
Á sama tíma þarf Lisey að kljást við bældar minn-
ingar úr hjónabandi þeirra sem hún hefur vísvit-
andi lokað úti. Leikstjóri er Pablo Larraín frá Chile
en með önnur helstu hlutverk fara Clive Owen, Jo-
an Allen, Jennifer Jason Leigh og Dane DeHaan.
Uppáhaldssaga Kings
Julianne
Moore fer
með aðal-
hlutverkið.
AFP
NEGLA Bandarísku sjónvarpsþættirnir Mare of
Easttown hafa verið að fá glimrandi dóma beggja
vegna Atlantsála. Þannig gefur gagnrýnandi
breska blaðsins The Guardian, Lucy Mangan,
þeim fullt hús, fimm stjörnur. Á yfirborðinu
hverfist Mare of Easttown, sem er í sjö hlutum,
um morð sem lögreglukonan Mare Sheehan rann-
sakar en að sögn Mangan er snert á fjölmörgu
öðru, svo sem samskiptum kynslóðanna. Fyrst og
síðast segir hún að þættirnir séu stúdía í sorg, auk
þess sem þeir sýni okkur óvenjulega hlið á Banda-
ríkjunum, fjarri glys og glaumi Hollywood. Þá sé
um stjörnuleik að ræða, ekki síst hjá Kate Winslet,
sem fer með aðalhlutverkið.
Fyrst og síðast stúdía í sorg
Kate Winslet þykir sýna stjörnuleik.
AFP
Klaus Meine er enn í fullu fjöri.
Plata á leiðinni
ÓDREPANDI Þýska rokkbandið
Scorpions er hvergi af baki dottið
enda þótt máttarstólparnir Klaus
Meine og Rudolf Schenker séu
komnir á áttræðisaldurinn. Sá fyrr-
nefndi varð 73 ára á dögunum og
upplýsti af því tilefni á samfélags-
miðlum að bandið hefði nýtt tímann
vel í heimsfaraldrinum og að ný
breiðskífa væri hér um bil tilbúin.
Hún er sú tuttugasta í röðinni en
Scorpions var stofnuð í Hannover
árið 1965. „Við erum að hljóðblanda
hana í augnablikinu og getum ekki
beðið eftir því að koma plötunni í
umferð svo þið getið hlýtt á hana,“
skrifaði Meine og bætti við að hann
hlakkaði ekki síður til að komast í
tónleikaferðalag á næsta ári.
H
ún lét aldrei sjá sig öðruvísi
en með viðarkubb í fang-
inu; eins og hún tryði því
að hún myndi að öðrum kosti leysast
upp í frumeindir sínar. Þeir voru
margir furðulegir, fuglarnir í Twin
Peaks, enda skilgetin afkvæmi Dav-
ids Lynch, en Viðarkubbskonan (e.
Log lady) var líklega sérkennilegust
af þeim öllum. Næði hún ekki að
fanga athygli þína með viðar-
kubbnum, þá var starandi augnaráð-
ið næst á dagskrá og brygðist það
var komið að túrbótyggi-
gúmmskunni (Þuríður, er það ekki
örugglega orð?), það er að segja hún
tuggði tyggjóið sitt af svo mikilli
ákefð að undir tók í fjöllunum. Við-
arkubbskonan talaði í gátum og lét
eins og hún hefði engan áhuga á því
sem var á seyði á Tvídröngum en
innst inni var hún ljúfmenni sem
vildi engum illt. Því trúum við alla
vega. Hefði líklega bara þurft að
fara oftar úr húsi.
Önnur ógleymanleg týpa var
Svetlana í bandarísku útgáfunni af
spédramanu Shameless. Rússnesk
vændiskona sem upphaflega var
ráðin að hirðinni til að „lækna“
Mickey karlinn Milkovich af sam-
kynhneigðinni. Sú aðgerð fór út um
þúfur. Svetlana ílentist þó í suður-
hluta Chicago og bjó um tíma með
hjónunum V og Kevin, sem þriðja
hjólið eða „hjónið“. Fluggreind og
úrræðagóð kona sem sá tækifæri í
hverju horni til að skara eld að eigin
köku. „Losaði sig“ til að mynda sem
frægt var við föður sinn, afar ógeð-
felldan mann sem óvænt skaut upp
kollinum, eða var hann í reynd eig-
inmaður hennar?
Já, þeir eru margir eftirminnileg-
ir, furðufuglarnir í sjónvarpssög-
unni. Hver man til dæmis ekki eftir
John Cage, eða Kexinu, eins og hann
var kallaður í daglegu tali, málflutn-
ingsmanninum knáa í lagaspédram-
anu Ally McBeal? Hann bjó að
mörgum skrýtnum siðum, eins og að
hala alltaf niður í klósettinu með
fjarstýringu. Enda vildi okkar mað-
ur fyrir alla muni hafa skálina ferska
þegar hann bar að garði, burtséð frá
því hvort gera átti númer eitt eða
tvö. Þegar Kexið varð stressað, sem
gerðist ósjaldan, byrjaði nefið á hon-
um óforvarendis að blístra. Og það
voru engar serenöður í c-moll eftir
Schubert eða Brahms heldur hrein
og bein óhljóð. Þá hrjáði hann um
tíma samúðartúrett; það er þegar
kona á lögmannsstofunni með túrett
gaf frá sér undarleg og óstöðvandi
hljóð svaraði Kexið undir eins í sömu
mynt. Ókunnugir hefðu vísast getað
túlkað það sem hótfyndni og argasta
dónaskap – hver hermir eftir fólki
með túrett? – en við sem þekktum
Kexið vissum að þetta var alls ekki
illa meint. Aðeins ósjálfráð viðbrögð.
Meðeigandi Kexins á stofunni,
Richard Fish, var ekki síður kyn-
legur kvistur. Að vísu frakkari og
meira út á við en Kexið en einkenni-
legur samt sem áður. Var til að
mynda með ólæknandi blæti fyrir
krumpuðum kvenhálsum. Dagsatt.
Mátti ekkert slíkt sjá án þess að
Túrbótyggi-
gúmmska og
samúðartúrett
Sérviturt fólk er víða og sjónvarpið okkar er þar
engin undantekning. Hvernig líst ykkur á að rifja
upp nokkrar af sérkennilegustu persónum sem
fram hafa komið í sjónvarpssögunni?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Berta í Two and a Half Men.
Viðarkubbs-
konan í Twin
Peaks.
Kexið í Ally McBeal.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
BÍLA-SÉRBLAÐ
BÍLA
fylgir Morgunblaðinu
þriðjudaginn 15. júní 2021BLAÐ