Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Qupperneq 29
missa sig í erótíska dagdrauma. Svo
engu tauti varð við hann komið.
Ekki er gott að segja hvort þessir
kappar voru á skilgreindu rófi en
alls ekki hægt að útiloka það. Það
var frændi þeirra, Jerry Espenson, í
Boston Legal hins vegar án nokkurs
vafa. Sömu höfundar stóðu að þess-
um þáttum. Jerry karlinn hefur bor-
ið reglulega á góma hér í blaðinu
gegnum árin og kannski óþarfi að
fjölyrða um hann nú. En eins og við
munum þá bjó hann með uppblásinni
dúkku sem hann átti í grjóthörðu
platónsku sambandi við. Ekkert
meira og ekkert minna. Og allir sem
gáfu annað í skyn fengu dembuna
yfir sig.
Sheldon Cooper í The Big Bang
Theory var einnig á rófinu; nars-
isískur ofviti og fallisti í mannlegum
samskiptum. Reyndu menn að
hlamma sér í sætið hans í stofunni
sluppu þeir svo sem út með alla limi
jafnlanga en geðheilsan var farin
veg allrar veraldar. Ugglaust mesti
þverhaus sjónvarpssögunnar. Og
týpan sem hefur alltaf á réttu að
standa. Alltaf.
Talaði enga tæpitungu
Húshjálpin Berta í gamanþáttunum
Two and a Half Men kemur líka upp
í hugann. Ótrúlega föst fyrir og
hvergi bangin við að láta húsráð-
endur hafa það óþvegið enda þótt
hún ætti lífsviðurværi sitt undir
þeim. Upphaflega var hún aðeins í
litlu hlutverki en það óx jafnt og þétt
með árunum enda augljóst að hún
var orðin áhorfendum afar kær. Við
erum alltaf veik fyrir persónum sem
tala enga tæpitungu. Leikkonan sem
fór með hlutverk Bertu, Conchata
Ferrell, lést á síðasta ári. Blessuð sé
minning hennar!
Verðum við ekki líka að hafa
Phoebe í Friends á listanum; ég
meina, er ekki annar í Friends um
þessar mundir? Liðið komið saman
aftur. Gúgli maður lista yfir sérvitr-
inga í sjónvarpi ber hana líka iðulega
á góma. Skemmtilega skrýtin,
Phoebe, og alls ekkert að liggja á
skoðunum sínum og meiningu. Alltaf
passlega langt úti á túni en algjört
eðalmenni inn við beinið. Gekk til að
mynda með börn bróður síns. Fáar
persónur hafa líka verið eins djúp-
og grunnvitrar á víxl, jafnvel á sömu
mínútunni.
Cosmo Kramer úr Seinfeld á líka
fast sæti á flestum listum af þessu
tagi enda mörgum ógleymanlegur.
Skemmtilega víraður náungi, eins og
hann væri alltaf nýbúinn að fá raf-
stuð. Ekki síst þegar hann datt inn
úr dyrunum hjá Seinfeld nágranna
sínum. Eins og með Phoebe var ekki
alltaf gott að átta sig á því hvort
Kramer var í reynd klár eða al-
gjörlega úti á hinni víðáttumiklu
þekju. Enda akademískt, maðurinn
var nefnilega þeirrar gerðar að úti-
lokað var að láta sér líka illa við
hann. Kramer átti sér skýra fyrir-
mynd í veruleikanum; gamlan ná-
granna Larrys Davids, sem skóp
þættina ásamt Jerry Seinfeld.
Þetta er vitaskuld bara toppurinn
á ísjakanum. Af ótal mörgu er að
taka. En látum þetta duga í bili.
Kramer í Seinfeld. Phoebe í Friends.
Svetlana í Shameless.Sheldon í The Big Bang Theory.
6.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ÿ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ÿ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ÿ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
MYRKVA RÚLLUGARDÍNUR
NEI Þrassgoðin í Megadeth gera nú
dauðaleit að nýjum bassaleikara
eftir að David Ellefson var vikið úr
bandinu á dögunum. Jason New-
sted, sem í eina tíð var í Metallica,
mun þó ekki leysa hann af hólmi, að
því er eiginkona hans, Nicole, stað-
festi á samfélagsmiðlum í vikunni.
„Jason mun ekki ganga til liðs við
Megadeth. Friður sé með þeim.
Hlustið á málm.“ Svo mörg voru
þau orð. Í fyrra var upplýst að
Newsted glímdi við axlarmein og
gæti ekki spilað af fullum krafti.
Ekki á leið í Megadeth
Newsted mun ekki bjarga málum.
AFP
BÓKSALA Í MAÍ
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1
Undir 1000 kr. fyrir tvo
Áslaug Björg Harðardóttir
2
Rím og roms
Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
3
Nickel-strákarnir
Colson Whitehead
4
Tengdadóttirin III
– sæla sveitarinnar
Guðrún frá Lundi
5
Mávurinn
Ann Cleeves
6
Yfir hálfan hnöttinn
Ása Marin
7
Skollaleikur
Ármann Jakobsson
8
Færðu mér stjörnurnar
Jojo Moyes
9
Fleiri hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
10
Eikonomics
Eiríkur Ásþór Benediktsson
11
Að telja upp í milljón
Anna Hafþórsdóttir
12
Stjáni og stríðnispúkarnir 5
– partýpúkar
Zanna Davidson
13
Eldur í höfði
Karl Ágúst Úlfsson
14
Hittumst í paradís
Heine Bakkeid
15
Uppruni
Sasa Stanisic
16
Handbók fyrir ofurhetjur,
sjötti hluti – vonlaust
Elias og AgnesVåhlund
17
Depill heimsækir
afa og ömmu
Eric Hill
18
Litlir lærdómshestar – stafir
Elisabeth Golding
19
Depill í leikskólanum
Eric Hill
20
Etna og Enok
ferðast um Ísland
Sigríður Etna Marinósdóttir
Allar bækur
Það er kannski skrítið að byrja
bókaspjall á þjóðvegi eitt í Húna-
vatnssýslu á leið í Skagafjörð. Og
þó. Það er að vísu ekki mælt með
því að lesa und-
ir stýri en ég
læt lesa fyrir
mig í staðinn.
Og þannig var
það fyrir viku,
vorstemning í
lofti og Þor-
steinn frá
Hamri las fyrir
mig ljóð frá Staðarskála langleið-
ina á Blönduós. Ég á disk með
upplestri skáldsins og fyrir nokkr-
um árum tók ég hann með norð-
ur af rælni og síðan er það regla
að ef ég er einn á ferð hlusta ég á
Þorstein meðan ég flýg í gegnum
Húnavatnssýslurnar. Þetta er orð-
in lítil helgistund; tilfinningarnar
fara á flug, sumar ljóðlínurnar
orðnar mér tamar og ég tauta
þær með skáldinu. Ef ég missi ein-
beitinguna, mæti strollu af vöru-
flutningabílum, nú eða sólarlagið
heillar eða minningar um veiði-
skap í Vatnsdal
trufla, þá hlusta
ég á ljóðið aftur
og það ratar til
mín. Ef þið rekist
á þennan disk þá
grípið hann glóð-
volgan. Og svo
er maður kom-
inn á heimaslóð-
ir norður í Blönduhlíð. Þar er nóg
af bókum, ég gramsa í hillunum
og gríp eitthvað gómsætt. Og það
var viðeigandi í sauðburðarlok að
kíkja í Kindasögur eftir Aðalstein
Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jón-
asson og alveg upplagt að lesa
kaflann um Herdísarvíkur-Surtlu,
en sú skepna hefði nú ekki látið
sér bregða þótt upp kæmi eldgos
í nágrenninu. Síðan greip ég úr
skápnum hjá
pabba bók
sem heitir Í
barnsminni
eftir Krist-
mund
Bjarnason,
minninga-
slitur frá
bernskuárum. Þessi bók kom út
2019 í tilefni 100 ára afmælis
Kristmundar. Ég hafði heyrt um
hana en ekki lesið. Þessi bók heill-
aði mig strax. Þarna er drengur
að segja frá at-
burðum úr æsku
sinni á Mælifelli
en hann var tek-
inn sex mánaða í
fóstur af prests-
hjónunum.
Þarna birtast
ljóslifandi atvik
stór og smá úr
æskunni og fólki
er lýst eins og það kom barninu
fyrir sjónir. Það er góð hvíld í
Kristmundi frá Dægradvöl Grön-
dals sem ég er
að berjast í líka.
Seðlabankastjóri
sagði að maður
yrði að lesa
hana. Nú svo var
magnað að lesa
Eldana eftir Sig-
ríði Hagalín. Ég
keypti hana þeg-
ar lætin byrjuðu á Reykjanesinu.
Og þau læti eru víst ekki búin seg-
ir Ármann.
EYÞÓR ÁRNASON ER AÐ LESA
Lesið undir stýri
Eyþór Árnason
er sviðsstjóri í
Hörpu og ljóð-
skáld.