Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
Verið velkomin
í heimsókn
Mikið úrval
hvíldarstóla
fyrir alla
Hvíldin
byrjar í LÚR
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Það er að lifna yfir málmheimum, eins og öðrum heimum, eftir
kórónuveirufaraldurinn. Tröllin skríða nú eitt af öðru úr fylgsn-
um sínum og í vikunni greindi tónlistartímaritið Rolling Stone
frá því að Íslandsvinirnir í Guns N’ Roses myndu hefja frest-
aðan Ameríkutúr sinn í Hershey í Pennsylvaniu, eftir tæpa tvo
mánuði, 31. júlí. Goðin stóðu síðast saman á sviði á Laugardals-
vellinum fyrir þremur árum. Fyrirhugaðir eru 25 tónleikar fram
í byrjun október og mun nýja bandið hans Wolfgangs Edw-
ardssonar Van Halens hita upp, Mammoth WVH.
Annað risastórt tónleikaband, Metallica, mun slá í klárinn að-
eins síðar, en fyrstu tvö gigg þess verða á Louder Than Life-
hátíðinni í Louisville 24. og 26. september. Þar má einnig sjá
Korn, Nine Inch Nails, Judas Priest, Anthrax og fleiri. Metallica
verður einnig í Sacramento í október og Daytona Beach í nóv-
ember. Nú er bara að drífa sig í bólusetningu og panta far.
Guns N’ Roses tróðu
seinast upp á Íslandi.
Morgunblaðið/Valli
Taka senn til málms
James Hetfield og hin skrímslin í Metallica hugsa
sér nú til hreyfings eftir langvarandi kyrrsetu.
AFP
Tvö af stærstu tónleikaböndum heims,
Guns N’ Roses og Metallica, aftur á túr.
„Afbrot og allskonar misferli
unglinga hjer í bæ færðust í vöxt
árið sem leið og segir í skýrslu
barnaverndarnefndar Reykjavík-
ur, að nefndin hafi fengið þriðj-
ungi fleiri mál til meðferðar á
árinu, en næsta ár á undan.“
Á þessum orðum hófst frétt í
Morgunblaðinu fyrir sjötíu ár-
um, 6. júní 1951. Helstu ástæð-
ur fyrir afbrotum unglinga í
bænum taldi nefndin vera
drykkjuskap og var ekki óal-
gengt að unglingar byrjuðu að
neyta áfengis 14 ára, bæði piltar
og stúlkur. „Af þessu leiðir alls-
konar óreglu, lauslæti, flæking,
þjófnað og margskonar
skemmdarverk,“ stóð í skýrsl-
unni.
Einnig virtist drykkjuskapur
foreldra hafa farið nokkuð í
vöxt frá ári til árs, því alltaf voru
að verða meiri og meiri brögð
að því, að nefndin hefði þurft að
taka börn af heimilum vegna
slíkra mála.
„Nefndin reynir að fjarlægja
þessi börn úr umhverfi sínu,
með því að koma þeim fyrir í
sveit. Stundum lánast það vel,
en oftast illa. Unglingarnir tolla
ekki í hinu nýja umhverfi sínu,
enda er sjaldnast aðstaða til að
halda þeim kyrrum. Þeir koma
svo í bæinn á ný í sitt gamla um-
hverfi og taka til við sömu iðju
og fyrr,“ sagði í fréttinni.
GAMLA FRÉTTIN
Misferli
unglinga
Íslendingar skvettu ótæpilega í sig fyrir sjötíu árum, börn og foreldrar.
Reuters
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Andy Warhol
listamaður
Sr. Pálmi Matthíasson
sóknarprestur
Sven
snussali