Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
HREYFING
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Byggmjólk
Eina íslenska
jurtamjólkin
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi
Birgir er sportlega klæddur ískærlituðum íþróttabol ogstuttbuxum daginn sem blaða-
mann ber að garði. Þessi 74 ára gamli
fyrrverandi kennari lætur aldurinn
ekki aftra sér en hann stundar hjól-
reiðar af ýmsum toga af kappi.
„Ég kenndi lengst af í Fjölbraut í
Breiðholti en þar var ég í þrjátíu ár
og var það yndislegur tími. Ég hætti
að kenna 64 ára gamall og hef síðan
stundað ökukennslu en hef verið að
draga úr þeirri vinnu smátt og smátt
og er við það að hætta. Svo hef ég
einnig tekið að mér smá smíðaverk-
efni fyrir vini og vandamenn.“
Heilsan það dýrmætasta
Birgir hefur gert ýmislegt fleira því
hann stundar hjólreiðar og segist lengi
hafa verið duglegur að hreyfa sig.
„Ég hef verið liðtækur í íþróttum
allt frá barnæsku. Ég var alltaf best-
ur í leikfimi,“ segir hann og brosir.
„Ég var í fótbolta um tvítugt en svo
tók lífsbaráttan við og þá var maður
lítið að pæla í íþróttum fyrr en ég var
35 ára, 1982. Þá álpaðist ég inn á
fyrstu líkamsræktarstöðina sem var
opnuð í kjallara Kjörgarðs. Þá byrjaði
áhuginn á líkamsrækt og ég hef stund-
að hana alla götur síðan, með smá
hléum. Það eru þá komin um fjörutíu
ár,“ segir Birgir og segist viss um að
hreyfingin hafi stuðlað að góðri heilsu.
„Það er ekki sjálfgefið að vera með
svona góða heilsu, né að ná þessum
aldri. Heilsan er það dýrmætasta sem
maður á og maður þarf að hlúa að
heilsunni. Það er aldrei of seint að
byrja, en því fyrr því betra. Heilsa
mín skiptir ekki bara máli fyrir mig,
heldur alla fjölskylduna,“ segir Birgir
en hann á fjögur börn, tíu barnabörn
og átta langafabörn.
„Ég er ríkur maður.“
Fyrsta hjólið um fimmtugt
Birgir segir börn sín öll hafa haft
áhuga á hreyfingu en það var þó að-
allega Heiða, elsta dóttir hans, sem
smitaði pabba sinn af hjólabakteríunni.
„Ég eignaðist aldrei hjól sem
strákur, en var með afnot af hjóli þeg-
ar ég var um tólf ára,“ segir hann.
„Ég keypti fyrst hjól um fimmtugt,
forláta hjól, Gary Fisher. Þessi hjól
voru bara svo flókin þannig að þetta
heillaði mig ekkert rosalega. Svo var
það fyrir svona sjö átta árum að Heiða
kaupir sér hjól og ég fer að skoða
þetta aftur. Í dag er þetta allt önnur
tækni en áður og það er gríðarleg þró-
un í þessu. Til þess að hafa gaman af
sportinu þarf maður að hafa þokkalegt
tæki,“ segir Birgir og segist hafa byrj-
að á því að kaupa sér götuhjól.
„Svo keypti ég mér fjallahjól, létt
og skemmtilegt. Næst fékk ég mér
Racer. Fyrir fimm árum fékk ég mér
svo fulldempað fjallahjól.“
Gott að hjóla einn
Hvað er skemmtilegast?
„Þetta er allt skemmtilegt, en gjör-
ólíkt. Það að hjóla á malbiki er önnur
hreyfing heldur en að hjóla á fjalla-
hjóli,“ segir Birgir og segist nota öll
þrjú hjólin í bland.
„Ég nota þetta fulldempaða fjalla-
hjól þegar ég fer út í hraunið, en ég
fer ekki mikið í brekkur. Ég er ekki
búinn að ná þeirri tækni.“
Birgir segist oftast fara einn út að
hjóla.
„Mér finnst gott að fara einn; þá
stjórnar maður tímanum. Ég fer oft
hér í kring, upp að Hvaleyrarvatni og
víðar, en það eru óteljandi mögu-
leikar,“ segir Birgir en hann býr í
Hvammahverfi í Hafnarfirði og því
stutt að fara út í náttúruna.
Fimmtíu kílómetra hringur
Birgir hjólar einnig á malbikinu og þá
lengri vegalengdir en á fjallahjólinu.
„Strákurinn minn á Racer og við
hjólum stundum saman, til dæmis út
á Gróttu. Það eru um fimmtíu kíló-
metrar; góður hringur,“ segir Birgir
en hann segist hjóla að minnsta kosti
klukkutíma á dag.
„Uppáhaldshringurinn minn er
héðan og út í Kaldársel og þaðan upp
í Búrfell og þaðan niður að Vífils-
staðavatni. Það er vinna að halda sér í
þokkalegu formi!“ segir Birgir og
segist sjá alltaf fleiri og fleiri á sínum
aldri á hjólum. Margir sem eru í eldri
kantinum nýta sér rafmagnshjólin.
„Það fer stundum í taugarnar á
mér þegar einhver gamlingi fer fram
úr mér á rafhjóli,“ segir Birgir og
skellihlær.
Átti ekki hjól sem strákur
Morgunblaðið/Ásdís
Stundum þarf að bera
hjól upp brekkuna!
Birgir Bjarnason,
kennari á eftirlaunum,
veit fátt skemmtilegra
en að hjóla. Hann á hjól
fyrir malbikið, annað
fyrir mölina og þriðja
fyrir fjöllin.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Birgir Bjarnason nýtur þess að
halda heilsunni við nú þegar
hann er kominn á eftirlaun með
því að hjóla út um allar trissur.
Birgir er vel-
útbúinn á
fjallahjólinu.
Birgir og dóttir hans Heiða
stunda fjallahjólamennsku.
Hún kom honum á bragðið.