Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Side 29
Óskar Ólafsson. Með helstu hlutverk fara dönsku leikararnir Ulrich Thomsen og Maria Rich ásamt hin- um færeyska Olaf Johannessen. Barfoed leikstýrir fyrri þáttunum þremur en Davíð Óskar seinni þrem- ur og lauk tökum í Færeyjum á föstu- daginn. „Þetta er fyrsta alvöruserían sem byggð er á færeysku efni en töluð er færeyska og danska í þáttunum og smávegis enska,“ segir Davíð Óskar gegnum símann frá Þórhöfn. „Það eru allir mjög spenntir fyrir þessu verkefni hér í Færeyjum og um leið og maður nefnir Trom þá vill fólk allt fyrir mann gera. Færeyingar eru yndislegt fólk og mjög hjálplegir að upplagi. Manni er tekið sem inn- fæddum.“ Lýkur lofsorði á leikarana Barfoed er svokallaður konsept- leikstjóri sem þýðir að hann leggur línurnar en Davíð Óskar kveðst þó hafa mikið frelsi við sína vinnu. Hann kom til Færeyja fyrir tveimur mán- uðum og fór þá vandlega yfir sviðið með Barfoed, sem þá var að ljúka við tökur á sínum þáttum. Síðan hvarf hann á braut en þeir hafa vitaskuld verið í góðu sambandi. Davíð Óskar hafði ekki unnið með neinum af leik- urunum áður en þekkti vel til Thom- sens og Rich enda uppalinn í Dan- mörku. „Við Ulrich höfum náð vel saman og ekki spillti fyrir að móðir mín klippti eina af frægustu mynd- unum hans, Festen,“ segir Davíð Óskar en hann er sonur Valdísar Óskarsdóttur, sem einnig klippir Trom. „Maria er líka yndisleg og Olaf æðislegur.“ Íslendingar eiga raunar drjúgan þátt í verkefninu en um þrjátíu manns héðan koma að gerð þáttanna með einum eða öðrum hætti. Það er norræna efnisveitan Via- play sem er á bak við þættina og seg- ir Davíð Óskar búið að selja þá víða. „Ég má ekki nafngreina þau strax en þessir þættir munu fara til margra landa. Sjónvarp Símans hefur tryggt sér réttinn heima og ætli þættirnir verði ekki sýndir seint á þessu ári þar, eins og víða annars staðar. Eft- irvinnslan hefst í næstu viku og ætti að ljúka í október eða byrjun nóv- ember. Fljótlega eftir það ætti efnið að koma inn í veiturnar.“ – Hvernig kom það til að þú varst fenginn til að leikstýra? „Ég sat bara heima í janúar í miðjum heimsfaraldri þegar ég fékk símtal þess efnis hvort ég hefði áhuga á að leikstýra Trom. Ég hef unnið mikið með Truenorth sem sér um framleiðsluna og svo hefur það ábyggilega ekki spillt fyrir að ég tala reiprennandi dönsku. Ég var víst einn af mörgum sem komu til greina en fékk verkefnið. Ég er svakalega ánægður með það enda kom þetta þannig lagað upp úr þurru. Þetta hef- ur verið frábært tækifæri fyrir mig til að vinna með nýju fólki og taka skrefið inn á alþjóðlegan markað. Það er mikilvægt að sýna að maður geti leikstýrt á öðru tungumáli en ís- lensku.“ Náttúran í stóru hlutverki Davíð Óskar hefur ekki í annan tíma komið til Færeyja en segir sér hafa gengið ljómandi vel að skilja fær- eyskuna og örugglega betur en danska leikstjóranum; Danir skilji alla jafna lítið í því ágæta máli. Hann segir Færeyjar henta vel fyrir glæpaseríur, rétt eins og Ísland. „Landslagið er fallegt og dramatískt en náttúran leikur stórt hlutverk í þáttunum og gefur svolítið auka, eins og heima.“ Honum hefur liðið ákaflega vel þessa tvo mánuði og tíminn hefur flogið. „Mér finnst ég nýkominn en er að fara heim á mánudaginn. Fær- eyjar eru ótrúlega fallegt land og yndislegt að fá að taka þátt í því að sýna heiminum það í fyrsta skipti. Það er í raun mikill heiður,“ segir hann en þess má geta að Færeyjar koma einnig lítillega við sögu í nýj- ustu James Bond-myndinni sem enn á eftir að frumsýna. – Trom ætti að verða mikil land- kynning fyrir Færeyjar. „Það er viðbúið, alveg eins og Brot var fyrir okkur og núna Katla en báð- ar seríur eru á Netflix. Færeyingar eru mjög stoltir af þessu verkefni og vilja að því vegni sem best. Þetta er líka kjörið tækifæri til að byggja upp kvikmyndaiðnaðinn hér.“ – Verður framhald á Trom? „Það finnst mér líklegt, í öllu falli er búið að gefa grænt ljós á seríu tvö og byrjað að vinna í hugmyndinni.“ Davíð Óskar Ólafsson við tökur á Trom í Færeyjum. Ljósmynd/Metusalem Björnsson 13.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri MEÐMÆLI Breska ríkisútvarpið, BBC, mælir sérstaklega með Kötlu, nýju þáttunum úr smiðju Baltasars Kormáks, á vefsíðu sinni, en þeir koma í heild sinni, átta talsins, inn á efnisveituna Netflix á fimmtudag- inn kemur, 17. júní. Tekið er fram að þetta sé fyrsta íslenska serían sem Netflix framleiðir að fullu og að bakgrunnurinn sé eldgos í Kötlu sem staðið hafi í heilt ár. Af öðru efni sem mælt er með í júní má nefna frönsku þættina Lupin á Net- flix og Loka á Disney+. Mælir sérstaklega með Kötlu BBC hefur greinilega trú á Kötlu. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir BÓKSALA 2.-8. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Palli PlaystationGunnar Helgason 2 DauðahliðiðLee Child 3 Fjölskylda fyrir byrjendurSarah Morgan 4 Meistari JakobEmelie Schepp 5 Þorri og Þura – tjaldferðalagið Agnes Wild/Bergrún Íris 6 Bekkurinn minn 3 – lús!Yrsa Þöll Gylfadóttir/IðunnArna 7 Færðu mér stjörnurnarJojo Moyes 8 KaldaslóðKim Faber/Janni Pedersen 9 Morðið við HulduklettaStella Blómkvist 10 ÁstAlejandro Palomas 1 Palli PlaystationGunnar Helgason 2 Þorri og Þura – tjaldferðalagið Agnes Wild/Bergrún Íris 3 Bekkurinn minn 3 – lús!Yrsa Þöll Gylfadóttir/IðunnArna 4 Rím og romsÞórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn 5 Sumarið í sveitinni Guðjón Ragnar Jónasson/ Harpa Rún Kristjánsdóttir 6 Ja, þessi EmilAstrid Lindgren 7 Gírafína og Pellinn og égRoald Dahl 8 Siggi sítrónaGunnar Helgason 9 MömmustrákurGuðni Kolbeinsson 10 Veran í vatninuHjalti Halldórsson Allar bækur Barnabækur Ég elska allt við bækur; að snerta pappírinn, horfa á hönnunina, finna vigtina í hendi, tilhlökkunina að opna nýja bók. Ég held hins vegar stöðugt fram hjá því ég er yfirleitt með margar bækur í tak- inu í einu. Allir mínir dagar enda á yndislestri eða yndishlustun því ég er nýlega farin að hlaða upp góðu safni í gegnum audible-smáfor- ritið. Núna eru tvær bækur efstar í bunkanum– afar ólíkar en báðar heillandi. Önnur er How The World Thinks eftir Julian Baggini. Þetta er saga hugmynda og heim- speki sem gerir atrennu að því að kortleggja helstu heimspekistefn- ur heimsins auk þess að varpa áhugaverðu ljósi á samspil og mis- mun ólíkra menn- ingarheilda, svæða og tímabila í sög- unni. Ég bað son minn um að velja eina bók handa mér þegar hann var á leið heim frá Bretlandi um daginn og hann hefði ekki getað valið girnilegri konfektkassa af hugmyndum, pælingum og innsæi. Hin bókin í kvöldlestri er Upp- reisn Jóns Arasonar eftir Ásgeir Jónsson. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þessari litríku persónu sem var bæði afar óvenjulegur maður og mætti að auki þessum dramatísku örlögum. Ásgeir er svo einstaklega fróður og flinkur sögumaður. Eftir því sem líður á lífið eykst áhugi minn á ljóðum. Ég er ein- lægur aðdáandi listaskáldsins Gerðar Kristnýjar og hef ljóða- safnið hennar við höndina til að næra andann. Önnur skáldkona sem ég var að uppgötva svo seint að skömm er frá að segja er Mary Oliver. Náttúru- stemmningar, tær- leiki og andlegur tónn í verkum henn- ar heilla mig upp úr skónum. Þetta er úr bókinni Blue Hor- ses. Fyrirgefðu mér Englar eru dásamlegir en þeir eru svo, sko, fjarlægir. Það er frekar það sem ég skynja í drullunni og rótum trjánna, eða brunninum, eða hlöðunni, eða grjótinu með sitt skærgula landakort skófa sem fær fætur mínar til að staldra við og kveikir blik í augum mínum, þegar ég finn nærveru einhvers anda, einhvers lítils guðs, sem leynist þar. Ef ég væri fullkomin manneskja myndi ég stöðugt vera að hneigja mig. Ég er það ekki, en ég staldra við í hvert sinn sem ég finn fyrir þessum heilagleika, sem er ástæða þess að ég er oft svo sein til baka þaðan sem ég fer. Fyrirgefðu mér. (Þýðing Melkorka Ólafsdóttir) Önnur bók sem liggur alltaf á stofuborðinu hjá mér er Year of Wonder – Classical Music for Every Day eftir Clemency Burton- Hill. Nældi mér í hana í þeim dá- semdarstað Foyles í London fyrir nokkrum árum og gæti ekki án hennar verið. Uppspretta dag- legrar gleði með hjálp Spotify og bætir þekkinguna á klassískri tón- list þar eð hver dagur á sitt til- tekna verk sem sett er í áhugavert samhengi. SVANHILDUR KONRÁÐSD. ER AÐ LESA Elska allt við bækur Svanhildur Konráðsdóttir er forstjóri Hörpu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.