Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021 Ég held að ég hafi verið fimm ára þegarég fór í fyrsta sinn á slysavarðstof-una. Þá var ég nýfluttur í Hlíð- argerðið, var að leika við krakka í götunni og tókst að handleggsbrjóta mig. Það var reyndar ekki alslæmt því það þótti býsna svalt á þeim árum að mæta í gifsi fyrsta skóladaginn. Þetta er ein af fyrstu minningum mínum frá þessu nýja hverfi. Reyndar eru mjög margar minningar mínar frá þessum árum af heimsóknum á slysavarðstofuna. Eða slysó eins og hún er yfirleitt kölluð. Þangað mætti ég reglulega með allt frá gati á hausnum yfir í fótbrot. Mamma talaði stundum um að hún ætti að fá afslátt af því ég væri svo tíður gestur. Örlögin háttuðu því svo til að ein dóttir mín tók upp á þessu líka og hún sýndi jafn- vel meira hugmyndaflug í meiðslum sínum sem náðu hámarki þegar hún hoppaði á kjöthitamæli. Það hlýtur eiginlega að vera einhvers konar met. Ég endurnýjaði kynnin um daginn. Datt eins og bjáni í sundi, af öllum stöðum. Og var aftur mættur á slysó. Að bíða. Og þar sem ég sit þarna og bíð í hátt í þrjá tíma þá rifjast það upp fyrir mér að svona hefur þetta alltaf verið. Nánast hver einasta ferð hefur kostað nokkurra klukkutíma bið. Og þá hefur engu máli skipt á hvaða tíma sól- arhrings maður mætir. Svo gerist það, nokkrum vikum seinna, að dóttir mín (ekki kjöthitamælahopparinn) fer upp á slysó og bíður þar í sex klukkutíma. Og það var ekki fyrr en þá að ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri alveg eðlilegt fyrirkomulag í tæplega hálfa öld og mögulega lengur. Þetta var reyndar eðlilegra hér á árum áður. Þá var vel sloppið ef árleg skoðun á bílnum tók bara hálfan dag hjá Bifreiðaeft- irliti ríkisins. Þá þótti eðlilegt að þurfa að bíða í röðum eftir öllu mögulegu og sækja um leyfi einhverra stofnana fyrir innflutn- ingi á einföldustu hlutum. Nú vil ég taka það fram að ég hef alltaf fengið afbragðsþjónustu (svona fyrir utan biðina) á slysó. Þar er fólk sem vill allt fyrir mann gera og alveg bullandi fagmennska. En ég skil bara ekki alveg af hverju þetta þarf að vera svona. Og maður verður að fara varlega í að gagnrýna heilbrigðiskerfið. Það er inn- prentuð í okkur virðing fyrir þessari stétt sem læknar og lagar okkur. Og skýringin sem við fáum er örugglega fjárskortur. Eins og venjulega. En getur það verið að það hafi haldist óbreytt í 50 ár? Getur verið að kerfið sé kannski eitthvað aðeins of mikið kerfi? Eins og við heyrðum um í vikunni þegar barn fær ekki aðstoð talmeinafræð- ings vegna þess að hann útskrif- aðist. Það er nefnilega alveg jafn brjálað og það hljómar. Sjö ára stúlka á Austurlandi fær ekki nið- urgreidda þjónustu talmeinafræðingsins sem hún hefur verið hjá vegna þess að sá er að útskrifast. Og reglurnar segja að tal- meinafræðingar þurfi að vinna í tvö ár eftir útskrift til að sjúkratryggingar fáist til að greiða fyrir þjónustu þeirra! Þannig að að- eins þeir sem eiga pening geta nýtt sér þjónustu þeirra þessi tvö ár. Þetta er náttúrulega jafn gáfulegt og að ríkið telji betra að fólk bíði verkjað og frá vinnu mánuðum saman eftir því fá að skipta um hné- og mjaðmarliði. Þegar til er fyrir- tæki í Reykjavík sem einmitt sérhæfir sig í slíkum aðgerðum en fær ekki niðurgreiðslu frá ríkinu. Því það má ekki skipta við einka- fyrirtæki í íslenska heilbrigðiskerfinu. Þess vegna er fólk sem bíður of lengi sent í rándýrt ferðalag til Svíþjóðar til að framkvæma þessar aðgerðir hjá sænsku einkafyrirtæki. Er þetta skynsamlegt? Maður spyr sig … ’ Og þar sem ég sit þarna og bíð í hátt í þrjá tíma þá rifjast það upp fyrir mér að svona hefur þetta alltaf verið. Nánast hver einasta ferð hefur kostað nokk- urra klukkutíma bið. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Biðin langa Starfi stjórnmálamannsins þurfaað fylgja tilfinningar umábyrgð, auðmýkt, þakklæti, bjartsýni og óbilandi metnað fyrir hönd síns fólks og heildarhagsmuna Íslands. Allar þessar tilfinningar fylgja mér á hverjum degi í störfum mínum en sjaldan eins sterkt og núna, þegar ég óska eftir umboði Sjálfstæð- isfólks í Norðvesturkjördæmi til að leiða sterkan hóp frambjóðenda flokksins okkar í kosningunum í haust. Enginn getur gengið að slíku um- boði vísu. Það þarf að verðskulda. Ég gleðst yfir þeim árangri sem náðst hef- ur á kjörtímabilinu í þágu byggðanna út um landið. Við erum á réttri leið. Hraðbraut inn í framtíðina – og út á land Nýsköpun er landsbyggðarmál. Eins og Tryggvi Hjaltason vinur minn benti á í grein í vikunni virkar nýsköpun eins og hraðbraut inn í framtíðina – en líka eins og hraðbraut út um landið, sem gerir fólki kleift að starfa hvar sem er. Nýsköpun á stóran þátt í að „lands- byggðin er að kalla fólkið sitt heim“, eins og Tryggvi orðar það svo vel. Og frumkvöðla- starfsemi dafnar þar sem aldrei fyrr. Ég horfi á allt það sem er að gerast úti um land og gleðst yfir því að sýn okkar er að raungerast, hugarfarsbreyting hefur átt sér stað og verkfærin sem við höfum smíðað virka. Líklega hefur enginn málaflokkur tekið eins miklum stakkaskiptum á kjörtímabilinu og jarðvegur nýsköp- unar. Aukinn stuðningur við stafræn- ar smiðjur úti um landið, frumkvöðla- setur, þekkingarsmiðjur og atvinnu- hraðla, nýr nýsköpunarsjóður fyrir landsbyggðina (Lóa) sem er sá fyrsti sinnar tegundar, nýr hvatasjóður (Kría) sem stóreflir fjármögnunar- umhverfi nýsköpunar, aukin framlög til Tækniþróunarsjóðs og hækkaðar endurgreiðslur til rannsókna og þró- unar, svo dæmi séu tekin. Allt er þetta á grundvelli nýrrar Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland, því það skiptir máli að setja skýran kúrs til framtíðar. Efling ferðaþjónustu um allt land Ríkisstjórnin hefur staðið frammi fyrir því erfiða verkefni í heimsfaraldri að koma til móts við ferðaþjónustuna, okkar mikilvægustu uppsprettu gjald- eyristekna. Það hefur í stórum drátt- um tekist vel. Á sama tíma höfum við styrkt stoð- irnar og lagt grunn að öflugri við- spyrnu. Skömmu eftir að faraldurinn braust út var þannig byrjað að leggja drög að stærstu markaðsherferð í þágu íslenskrar ferðaþjónustu sem dæmi eru um. Við höfum staðið vörð um stefnuramma greinarinnar til 2030 með áherslu á hverju greinin skilar en ekki fjölda ferðamanna og áhersla er á sjálfbæra þróun. Sú ákvörðun að opna landið, fyrr en aðrir, fyrir bólusetta ferðamenn utan Schengen hefur skilað miklum efnahagslegum árangri. Sjóðurinn gegnir einna stærstu hlutverki við að efla áfangastaði um allt land til að laða fleiri ferðamenn þangað. Verkefnið við Þrístapa á veg- um Húnavatnshrepps, við Svöðufoss á vegum Snæfellsbæjar, Guðlaug á Akranesi og útsýnispallur á Bolafjalli þar sem Bolungarvík fékk 160 millj- ónir til uppbyggingar eru dæmi um uppbyggingu með stuðningi sjóðsins sem breytir stöðunni. Og sjóðurinn tekur nú í fyrsta sinn mið af áætlunum heimafólks á hverju svæði um uppbyggingu ferðaþjónustu. Ný orkutengd verkefni í röðum Sjaldan hefur verið eins mikil gerjun í nýjum og fjölbreyttum orkutengdum tækifærum og nú. Sú þróun endur- speglast hvergi skýrar en á Grundar- tanga. Í vikunni var skrifað undir þrjá samninga um spennandi verkefni á Grundartanga. Elkem og Þróunar- félagið eru aðilar að öllum en verkefnin eru: 1) Föngun og förgun kolefnis í samstarfi við CarbFix. 2) Framleiðsla á rafeldsneyti í samstarfi við Lands- virkjun og CRI. 3) Nýting glatvarma til hitaveitu og raforkuframleiðslu í samstarfi við Veitur. Svipuð tæki- færi eru til staðar víðar um landið og þau ætlum við að sækja. Þá tilkynnti ég fyrir nokkrum dögum um gerð Vegvísis um vetni- og rafelds- neyti, en þar gætu legið mjög dýrmæt tækifæri fyrir Ísland í gjör- breyttum kolefnisfælnum heimi. Við sjáum líka fram á vöxt hjá gagnaverum, m.a. vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að fjármagna nýjan gagnastreng. Full jöfnun dreifikostnaðar raforku á milli þéttbýlis og dreifbýlis hefur ver- ið tryggð frá og með næsta hausti og þrífösun og jarðstrengjavæðingu hefur verið flýtt. Nýsamþykktar breytingar á raforkulögum munu síðan stuðla að lækkun bæði flutnings- og dreifikostn- aðar raforku. Allt er þetta í samræmi við nýja langtímaorkustefnu fyrir Ísland og að- gerðaáætlun hennar sem ég lagði mikla áherslu á að láta vinna, vegna þess að það skiptir máli að setja skýr- an kúrs til framtíðar. Forysta um nýjar lausnir Góð verk eru afrakstur samvinnu og það á við um allt ofangreint. Ég vil þakka þeim hundruðum einstaklinga sem hafa lagt hönd á plóg til að gera þau að veruleika. Ég er full bjartsýni og tilhlökkunar yfir næstu skrefum. Tækifærin eru óþrjótandi, ekki síst á landsbyggðinni. Við höfum séð að flest störf má vinna hvar sem er. Æ fleiri vilja flytja aftur heim á sínar heimaslóðir og byggja upp. Það hefur aldrei verið auðveldara og við eigum að styðja við þá þróun, meðal annars með því að efla sam- göngur, fjarnám, atvinnutækifæri m.a. í orkutengdum verkefnum og á vegum hins opinbera, byggja áfram upp áfangastaði ferðamanna og styðja við þá hraðbraut til framtíðar sem felst í nýsköpun. Framboð mitt til forystu í Norðvest- urkjördæmi byggir á því að ég treysti mér, sem venjuleg landsbyggðarstelpa og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, til að leiða þessa þróun, fyrir okkur öll. Tækifærin eru okkar Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Framboð mitt til forystu í Norðvesturkjördæmi byggir á því að ég treysti mér, sem venjuleg lands- byggðarstelpa og varafor- maður Sjálfstæðisflokks- ins, til að leiða þessa þróun, fyrir okkur öll. Fæst í Apótekum og Krónunni. Stop & Protect Allergy Response Náttúruleg saltvatnslausn sem er hraðvirk vörn gegn einkennum ofnæmiskvefs og áhrifarík vernd gegn frekari ofnæmisviðbrögðum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.