Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Side 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
Þ
eir þykja fagurlimaðastir allra, ávallt óaðfinnanlega til hafðir, verjast
sem einn maður og nú hafa þeir meira að segja tekið upp á þeim
ósköpum að raða inn mörkum. Eigi að síður hef ég aldrei borið taugar
til Ítala á velli, hvað þá haldið með þeim og vonað að þeir rífi bikarinn á loft í
lok stórmóts á borð við EM og HM. Hvurju sætir þetta eiginlega, lagsi?
spurði ég mig á dögunum. Rétt sísona.
Svo mikið er víst að það hefur ekkert með Ítalíu sem slíka að gera; ég hef
verið þar nokkrum sinnum og landið er bráðfallegt og fólkið yndislegt. Ef við
skönnum álfuna með hraði þá er
gestrisnara fólk líklega aðeins að
finna á Grikklandi, þar sem ég hef
þó raunar spriklað mun sjaldnar.
Svo rak ástæðan mér skyndilega
kinnhest. Ég hef aldrei getað fyr-
irgefið Ítölum að slá Zico, Sókrates
og hina Brassana mína úr leik á HM
1982. Ég var á viðkvæmum aldri á
þeim tíma og tók þetta tilræði við
fallegasta leik í heimi ákaflega nærri
mér. Ég meina, hver gerði það ekki?
Knattspyrnan dó hér um bil þennan
dag, 5. júlí 1982, á Sarrià-vellinum sáluga í Barselónu. Gott ef Don gamli
McLean var ekki mættur á Römbluna með gítarinn og tilbrigði við hið fræga
stef sitt úr Amerísku bökunni, „the day the soccer died“.
Við upphaf móts hélt ég raunar með allt annarri þjóð en ekki varð hjá því
komist að heillast af sambabolta Brassanna – slíkar og þvílíkar fótmenntir
höfðu ungmenni á Akureyri ekki í annan tíma séð. Og það í þráðbeinni í sjón-
varpinu, þangað til stofnunin fór í sumarfrí. Maður og mús. Sammi baðvörð-
ur í Glerárskóla henti meira að segja upp trémarki á túninu heima svo við
pjakkarnir gætum leikið listirnar eftir – eða í öllu falli reynt það.
Ég er alla jafna ekki langrækinn maður en þessu ódæðisverki Ítala get ég
hvorki gleymt né fyrirgefið. Þess vegna verð ég á bandi Austurríkismanna í
sextán liða úrslitunum um helgina. Áfram Unsere Burschen!
Zicológískur skellur
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Knattspyrnan dó hér
um bil þennan dag, 5.
júlí 1982, á Sarrià-vell-
inum sáluga í Barselónu.
Þorbjörg Guðmundsdóttir
Það er ekkert sérstakt planað.
SPURNING
DAGSINS
Hvað á að
gera um
helgina í
tilefni þess
að sam-
komutak-
markanir
hafa verið
afnumdar? Sæmundur Einarsson
Örugglega bara að hitta vinina, fara
út og spila fótbolta og hafa gaman.
Hólmfríður Árnadóttir
Ég ætla að gera eitthvað skemmti-
legt, því það er loksins komið sumar.
Rafael Máni Þrastarson
Ég er að fara til Þorlákshafnar.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Unnur Karen
KRÓLI
SITUR FYRIR SVÖRUM
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
JóiPé og Króli héldu á fimmtudag í ferðalag í kringum landið ásamt hljómsveit.
Þeir spila í 14 bæjarfélögum, þar á meðal í Hafinu á Höfn í kvöld og enda í
Bæjarbíói í Hafnarfirði 10. júli.
Hver var aðdragandinn að þessu tónleikaferðalagi?
Ætli það hafi ekki verið spenna sem hefur kraumað í okkur öllum í
hljómsveitinni í þessum heimsfaraldri. Löngun til þess að spila og spila
mikið er svona drifkrafturinn á bak við það að við ákváðum að keyra
þetta í gegn. Það var ekki langur aðdragandi að þessu, um það bil
mánuður síðan við ákváðum að láta verða af þessu. Við hittum á staði
sem voru með lausar dagsetningar í runu og vorum nokkuð heppnir
með það.
Við hverju má fólk búast á tónleikunum á
ferðalaginu?
Þetta er í fyrsta skipti sem við förum hringinn og í fyrsta skipti sem
við höldum svona marga tónleika með bandinu okkar. Við höfum verið
að æfa stíft með bandinu síðan faraldurinn skall á enda ætluðum við að
fylgja eftir plötunni okkar, sem við gáfum út í apríl í fyrra. Fólk má því bú-
ast við vel æfðri hljómsveit sem er spennt fyrir því að spila og alls konar
stemningu; nánd en á sama tíma miklu stuði.
Verður framhald á því að þið Jói verðið með hljómsveit
með ykkur?
Já, það má segja að þetta sé orðið JóaPé og Króla vörumerkið. Núna erum við
þessir sjö einstaklingar sem gerum tónlistina saman. Þetta var svona spari hjá
okkur til að byrja með, en núna erum við á því að þetta sé mun betra og
skemmtilegra.
Hvernig er tilfinningin að geta farið að halda tónleika á ný,
er þetta mikill léttir?
Jú, auðvitað er þetta það. En maður er orðinn forritaður þannig núna að maður
er alltaf hræddur við stöðuna. Maður fer á covid.is og athugar hvort það sé nokk-
uð einhver hópsýking sem hefur komið upp. Maður er mjög var um sig en þetta
virðist vera að ganga mjög vel eins og er. Maður krossar fingur og bankar í við.
Er eitthvað annað á döfinni hjá ykkur?
Nei, í rauninni ekki. Við ætlum bara að fylgja eftir þessari plötu og ég býst ekki
við að fólk muni bóka okkur á tónleika eftir þetta þar sem við verðum úti um allt.
Það er því um að gera að næla sér í miða.
Alls konar stemning
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífimínu
Ég lifði af
TILBOÐ Í SÓL
MELÍA BENIDORM
BENIDORM, SPÁNN
TVÍBÝLI MEÐ HÁLFU FÆÐI VIÐ LEVANTE STRÖNDINA
WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS
01. - 08. JÚLÍ
VERÐ FRÁ:117.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
HÁLFT
FÆÐI
INNIFALIÐ FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, HANDFARANGUR OG INNRITAÐUR FARANGUR