Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
HLAUP
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Glærir ruslapokar
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
695
1.995
Strákústar
á tannbursta verði
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá999
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
Greinaklippur
frá 595
Burstar framan
á borvél 3 stk.
Mikið úrval af
garðstömpum
jafn súr í löppunum daginn eftir,“
segir Hlynur en það veldur því að
hlauparar geta æft meira sem skilar
sér í hraða.
„Vanalega get ég ekki labbað eftir
10.000 metra en ég var fínn eftir
hlaupið um daginn,“
segir Hlynur sem
setti Íslandsmet í
10.000 metra hlaupi
fyrir tveimur vik-
um.
Hlynur Andrésson reyndi við ól-
ympíulágmark í maraþoni fyrir
leikana í Tókýó í mars en þrátt
fyrir glæsilegt Íslandsmet náði
hann ekki lágmarki. Lágmarkið
var sett mjög lágt fyrir þessa
leika, var 2:11:30 nú en 2:19:00
fyrir leikana í Ríó. Átti staða á
heimslista að tryggja fleirum
sæti en mun fleiri hafi hlaupið
undir lágmarkinu en gert var
ráð fyrir.
„Ég er viss um að ég hefði get-
að hlaupið undir þessu lágmarki
ef ég hefði lent í aðeins betri
veðuraðstæðum,“ segir Hlynur.
„En maður fær bara einn séns og
það þarf allt að ganga upp.“
Hlynur býr yfir meiri reynslu í
hálfmarþoni, lenti í 52. sæti á
heimsmeistaramótinu í grein-
inni. Það er hans sterkasta grein,
í bili að minnsta kosti.
Hlynur segir raunhæft að
stefna á að hlaupa maraþon und-
ir tveimur klukkutímum og tíu
mínútum. „Núna er ég að reyna
að bæta tímana mína í braut-
arhlaupunum en svo langar mig
að hlaupa maraþon í Valencia í
desember og reyna þar við lág-
mark fyrir heimsmeistaramótið
í Oregon á næsta ári,“ segir
Hlynur en lágmarkið er það
sama fyrir HM og var fyrir Ól-
ympíuleikana. Stóra markmið
Hlyns eru þó Ólympíuleikarnir í
París sem haldnir verða eftir
þrjú ár.
Hlynur ræddi það í hlaðvarps-
þætti Snorra Björnssonar hve
erfitt geti verið að ná endum
saman sem afreksmaður í hlaup-
um. Vinna þurfi oft meira en
æskilegt getur talist miðað við
það æfingaálag sem íþróttafólk
er undir.
„Ég ætlaði að skoða stöðuna
ef ég myndi ekki ná lágmarki fyr-
ir Ólympíuleikana því þetta hef-
ur verið mjög erfitt fjárhagslega
séð. En eftir þáttinn hafa nokkur
fyrirtæki haft samband og boðist
til að aðstoða mig fram að Ól-
ympíuleikunum 2024. Það kom
mörgum svolítið á óvart hve erf-
ið staða íslensks afreks-
íþróttafólks er. En það eru aðilar
sem geta hjálpað okkur og það
er frábært að fá aðstoð.“
Hlynur á fjöl-
mörg Íslands-
met í lang-
hlaupum.
Stefnir
á París
S
jötta júní síðastliðinn hljóp Hol-
lendingurinn Sifan Hassan
10.000 metra á 29 mínútum og
6,82 sekúndum og setti þar með
heimsmet, bætti það gamla um næst-
um 11 sekúndur og sinn besta árang-
ur um tæpar 30 sekúndur.
Tveimur dögum síðar, á sömu
braut í Hengelo í Hollandi bætti
Letesenbet Gidey frá Ethópíu metið
um tæpar sjö sekúndur, hljóp á 29
mínútum og 1,03 sekúndum. Á tveim-
ur sólarhringum hafði því met sem
sett var á Ólympíuleikunum í Ríó árið
2016 og enginn komist nálægt síðan
verið bætt tvisvar, samtals um 16
sekúndur.
Gidey á nú metið í bæði 10.000
metra hlaupi og 5000 metra. Metið í
5000 metra hlaupi setti hún í október
í fyrra þar sem hún hljóp á 14 mín-
útum og 6,62 sekúndum og bætti 12
ára gamal met um fjóra og hálfa sek-
úndu. Sama dag bætti Úgandamað-
urinn Joshua Cheptegei 15 ára gam-
alt heimsmet í 10.000 metra hlaupi en
tveimur mánuðum áður hafði hann
bætt ári eldra met í 5000 metra
hlaupi.
Þessi bylgja heimsmeta í löngum
brautarhlaupum hefur vakið athygli
og vísar til svipaðrar þróunar sem fór
af stað í götuhlaupum fyrir um þrem-
ur árum. Sú byrjaði með því að Ke-
níumaðurinn Eliud Kipchoge bætti
heimsmetið í maraþoni karla um 78
sekúndur í september 2018 er hann
hljóp vegalengdina á tveimur klukku-
stundum, einni mínútu og 39 sek-
úndum. Var það stærsta bæting á
metinu í meira en 50 ár.
Ári seinna var það landa hans, Bri-
gid Kosgei, sem bætti 16 ára gamalt
heimsmet í maraþoni kvenna degi um
heila 81 sekúndu. Svipaða sögu má
segja af heimsmetum í hálfmaraþoni
beggja kynja og 10 kílómetra hlaupi
karla.
Hlaupið á gormi?
Helsta skýringin fyrir þessari þróun í
götuhlaupunum er sú að ný tegund
skópara frá Nike hafa gert hlaup-
urum auðveldara fyrir að hlaupa
hraðar. Skórnir, sem komu fyrst á
sjónarsviðið árið 2016, voru búnir
koltrefjaplötu og einkar þykkum mið-
sóla svo þeir virkuðu eins og hálf-
gerður gormur. Nike hélt áfram að
þróa skónna og ekki leið að löngu þar
til keppinautar fyrirtækisins fóru af
stað með þróun sinna eigin skópara
sem byggðu á tækninni.
Í úttekt New York Times frá árinu
2018 sést greinilega að skór Nike,
sem þá kölluðust Nike Zoom Va-
porfly 4%, gáfu hlaupurum forskot á
götunni. Fólk af svipaðri getu hljóp
maraþon 3 til 4% hraðar í skónnum
en sambærilegum skóm og meira en
1% hraðar en í næst hröðustu skón-
um.
Til að sporna við því að þróunin
færi úr böndunum setti Alþjóða
frjálsíþróttasambandið í upphafi árs
2020 skorður á hversu þykkur sólinn
á skónum mætti vera. Þá er aðeins
ein koltrefjaplata leyfð í skónum en
talið var að Nike væri að þróa skó
með þremur plötum. Þá má ekki nota
skó nema þeir hafi verið í boði fyrir
almenning í að minnsta kosti fjóra
mánuði.
Nú hafa gaddaskór sem byggja á
svipaðri tækni skotið upp kollinum,
bæði frá Nike og öðrum framleið-
endum. Heimsmetin nefnd í upphafi
voru sett í þessum skóm og vilja ein-
hverjir meina þeir eigi stóran þátt í
heimsmetaflóðinu. Settar voru skorð-
ur á þykkt sóla skónna nýlega en það
virðist ekki hafa stöðvað þróunina.
Hraðari endurheimt
Hlynur Andrésson, margfaldur ís-
landsmethafi í langhlaupum, bæði á
götu og braut, segir ljóst að skórnir
hjálpi hlaupurum. „Það sem skórnir
gefa manni aðallega er að ef þú ert að
taka erfiðar æfingar nærðu end-
urheimt miklu hraðar. Þú ert ekki
Hlynur segir að þessi nýja tegund
gaddaskóa hafi ekki jafn mikið að
segja og götuskórnir. Strangari
reglna sé því ekki þörf þar. „Þeir
hefðu átt að grípa inn í með götu-
hlaupin þar sem allir eru að hlaupa
töluvert hraðar þar en með braut-
arhlaupin held ég að þetta sé allt í
lagi.“
Þá segir hann að hlaupararnir
sjálfir hafi meira að segja en gadda-
skórnir nýju. „Þessar tvær sem settu
met í 10.000 metrum eru báðar með
þeim hæfileikaríkustu sem komið
hafa fram í hlaupum kvenna,“ segir
Hlynur og bendir á að Hassan var
einni og hálfri mínútu á undan næsta
keppenda þegar hún setti sitt met.
„Ef þetta væru bara skórnir væru all-
ir að hlaupa svona hratt.“
Hann segir þó marga hlaupara
eiga möguleika á því að setja met á
Ólympíuleikunum í Tókýó. „Við gæt-
um séð þónokkur met falla.“
Hlynur hefur sett hvert Íslands-
metið á fætur öðru undanfarin miss-
eri, þar af í bæði 3000 og 10.000 metra
brautarhlaupum. Hann stórbætti svo
met Kára Steins Karlssonar í mara-
þoni í Dresden í Þýskalandi í mars við
nokkuð slæmar aðstæður, hljóp á 2
klukkustundum, 13 mínútum og 37
sekúndum.
Spurður hvort skórnir hafi haft
eitthvað að segja þarna. „Í götu-
hlaupunum alveg klárlega en ég veit
ekki hvort þetta hjálpi mér á braut-
inni varðandi hraða. En þetta
hefur hjálpað mér með end-
urheimt og ég hef því
náð að æfa
meira.“
Með þeim hæfi-
leikaríkustu
Bylgja heimsmeta í löngum brautarhlaupum virð-
ist farin af stað og svipar til þróunar í götuhlaup-
um fyrir um þremur árum. Einhverjir segja nýja
skó bera ábyrgð en Hlynur Andrésson, okkar
fremsti langhlaupari, gengur ekki svo langt.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
Letesenbet Gidey setur
heimsmet sitt í 5000 metra
hlaupi í október í fyrra.
Ljósmynd/ÍSÍ