Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
H
ún sló í gegn tíu ára; í gam-
anþáttunum All That í sjón-
varpi. Hún var skjávæn og
hvers manns hugljúfi og hver þátt-
urinn rak annan. Þrettán ára var hún
komin með sinn eigin þátt, The Am-
anda Show, sem gekk í þrjú ár, eða til
ársins 2002. Þá tók við ferill í kvik-
myndum, Big Fat Liar, What a Girl
Wants, Love Wrecked og Hairspray,
svo dæmi séu tekin. Amanda Bynes
hafði lagt heiminn að fótum sér og
framtíðin virtist björt og brosandi.
En þá fór eitthvað úrskeiðis. Frétt-
ir af undarlegri hegðun leikkonunnar
fóru að berast um heimsbyggðina og
ljóst var að ekki var allt með felldu.
Árið 2010 fékk Bynes prýðilega
dóma fyrir framgöngu sína í mynd-
inni Easy A en eftir það fór hún í
sjálfskipaða útlegð frá Hollywood.
„Ég þoldi ekki að ég hefði komið fram
í þeirri mynd og kunni sjálf ekki að
meta frammistöðuna,“ sagði Bynes
við tímaritið Paper árið 2018. „Ég var
útúrskökk af marjúanareykingum
þegar ég gerði mér grein fyrir því en
af einhverjum ástæðum hafði þetta
áhrif á mig. Ég veit ekki hvort veik-
indi mín voru afleiðing fíkniefna-
neyslu en efnin höfðu í öllu falli önnur
áhrif á heilastarfsemi mína en gengur
og gerist. Þau gjörbreyttu upplifun
minni af hlutum.“
Næstu ár eru mikið til í móðu. Árið
2012 var hún í fyrsta skipti handtekin
fyrir ölvunarakstur og hlaut skilorðs-
bundin dóm fyrir tvö aðskilin atvik.
Viðbrögð Bynes voru að kalla eftir
hjálp; fór raunar ekki hefðbundna
leið í þeim efnum, heldur færði sér
samfélagsmiðilinn Twitter í nyt og
ávarpaði Barack Obama, þáverandi
Bandaríkjaforseta, sérstaklega.
Hann ku ekki hafa haft tíma til að
sinna málinu.
Enn settist Bynes undir stýri, nú
próflaus, sem varð til þess að um-
boðsmaður hennar, kynningarfulltrúi
og lögmaður stukku allir í einu frá
borði.
Bynes flutti þá til New York. Ekki
tók betra við þar. Vorið 2013 var hún
handtekin í háhýsinu sem hún bjó í
fyrir neyslu fíkniefna í anddyrinu og
að fleygja þar til gerðum áhöldum út
um gluggann á 36. hæð.
Þaðan þá leiðin þráðbeint í meðferð
í Kaliforníu og þar varði Bynes næstu
sex mánuðum.
Mikilvirk á Twitter
Eftir það gerðist hún mikilvirk á
Twitter og hver undarlega færslan
rak aðra; meðal annars fræg færsla
þar sem hún lét að því liggja að faðir
hennar hefði beitt hana andlegu of-
beldi og reynt að eiga við hana mök.
Þeirri færslu var síðar eytt með þess-
um orðum frá Bynes sjálfri: „Faðir
minn gerði aldrei neitt þessu líkt.
Örflagan í höfðinu á mér fékk mig til
að segja þetta en það var einmitt
hann sem gaf þeim fyrirmæli um að
örflaga mig upp.“ Einmitt það.
Bæði móðir hennar og systkini
lýstu undrun sinni á ummælunum;
þau ættu sér enga stoð í veru-
leikanum. Bynes hefur síðar beðist
velvirðingar á Twitter-færslum sín-
um í stærra samhengi.
Annað var eftir þessu og næstu ár-
in var Bynes inn og út af geðdeild.
Hún reyndi að rísa upp og hefja feril
sem hönnuður en þau áform runnu út
í sandinn. Móðir hennar er nú lög-
ráðamaður hennar, líkt og við þekkj-
um hjá Britney Spears.
Bynes lét síðast á sér kræla í upp-
hafi þessa árs þegar hún sendi frá sér
slagarann Diamonds ásamt rapp-
aranum Precise. Synd væri að segja
að framtakið hafi fallið í frjóa jörð.
Hún hefur ekki leikið í ellefu ár og
endurkoma varla í kortunum.
Eða hvað?
Amanda Bynes var ein vinsælasta barnastjarna í heimi á tíunda áratugnum og í
upphafi þessarar aldar. Þessi mynd er frá 2003.
AFP
HVAÐ VARÐ UM AMÖNDU BYNES?
Bað Obama um
að hjálpa sér
Nýjasta myndin af By-
nes í myndabanka
AFP-fréttaveitunnar er
frá árinu 2013; hún var
þá á leið í samkvæmi.
Ekki liggur fyrir hver
staðan á henni er í dag.
AFP
SÉRBLAÐ
Ferðalög Sérblöð um ferðalögkoma vikulega út í júní
Hvert blað beinir sjónum sínum
að einum landsfjórðung
• Hvert skal halda í sumarleyfinu?
• Viðtöl við fólk sem elskar að ferðast um Ísland
• Leynistaðir úti í náttúrunni
• Hvar er best að gista?
• Ferðaráð
• Bestu sumarfrí Íslendinga
Pöntun auglýsinga og nánari
upplýsingar augl@mbl.is
08.00 Uppskriftir fyrir svanga
birni
08.02 Laugardagsklúbburinn
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Regnbogasögur
08.12 Ég er fiskur
08.14 Örstutt ævintýri
08.15 Veira vertu blessuð
08.17 Ást er ást
08.20 Risastóra næpan
08.22 Lærum og leikum með
hljóðin
08.25 Stóri og Litli
08.35 Blíða og Blær
08.55 Monsurnar
09.10 Víkingurinn Viggó
09.20 Adda klóka
09.40 It’s Pony
10.05 K3
10.15 Mörgæsirnar frá
Madagaskar
10.40 Lukku láki
11.05 Ævintýri Tinna
11.25 Angry Birds Stella
11.35 Top 20 Funniest
12.15 Nágrannar
14.05 Friends
14.30 Supernanny
15.10 Impractical Jokers
15.35 Börn þjóða
16.05 Flipping Exes
16.50 First Dates
17.35 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.55 GYM
19.20 Grand Designs: Aust-
ralia
20.15 Keeping Faith
21.10 Brave New World
22.00 Prodigal Son
22.45 The Bold Type
23.35 Queen Sugar
00.15 Empire
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sjá Suðurland – Þ. 2
20.30 Netnótan – Þ. 3
Endurt. allan sólarhr.
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
18.30 Mannamál (e)
19.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
19.30 Höldum áfram
20.00 Höldum áfram
Endurt. allan sólarhr.
11.15 The Block
12.20 Bachelor in Paradise
13.45 The Bachelorette
15.45 For the People
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves
Raymond
17.35 Ný sýn
18.05 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Gudjohnsen
20.50 This Is Us
21.40 Black Monday
22.15 Gangs of London
23.15 Penny Dreadful: City of
Angels
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Söngvamál.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Grens-
áskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Fólkið í garðinum.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Þar sem ennþá Öxará
rennur.
20.30 Orð & ábyrgð: Köld eru
kvennaráð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Hið mikla Bé
07.43 Poppý kisukló
07.54 Kúlugúbbarnir
08.17 Klingjur
08.28 Kátur
08.30 Hvolpasveitin
08.53 Hrúturinn Hreinn
09.00 Úmísúmí
09.23 Robbi og Skrímsli
09.45 Eldhugar – The Shaggs
– rokkstjörnur
09.49 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
10.00 Skólahreysti
11.10 Rabbabari
11.20 Unga Ísland
11.50 Af fingrum fram
12.35 Martin Clunes: Eyjar
Ameríku
13.25 Óli Prik
15.00 Popp- og rokksaga
Íslands
16.00 Heillandi hönnun
16.30 Herra Bean
16.55 Erilsömustu borgir
heims
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Sumarlandinn
20.20 Gósenlandið
22.00 Svanurinn
23.30 Ófærð
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og
besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi
það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmtunar á
sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vin-
sælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands
sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda.
Hljómsveitin Nýju fötin
keisarans varð til eftir að
nokkrir meðlimir úr Í
svörtum fötum voru að
klára verkefni og fundu á
sér að þá langaði að
halda áfram að búa til
tónlist. Svenni Þór, eða
keisarinn sjálfur líkt og
þeir kalla hann, bættist svo við hljómsveitina og
stefna þeir á að gefa út sína fyrstu plötu í haust. Í við-
tali við Síðdegisþáttinn segja þeir hljómsveitina vera
mikið partíband sem gefur bæði út sína eigin tónlist
ásamt því að spila mikið af partítónlist. Aðspurðir
hvort þeir ætli að taka við af hljómsveitinni Í svörtum
fötum hvað varðar sveitaböllinn segjast þeir vera mik-
ið til í það, en viðurkenna þó að tíðarandinn hafi
breyst mikið. Viðtalið við þá Kela og Svenna úr Nýju
fötum keisarans má nálgast í heild sinni á K100.is.
Úr Í svörtum fötum í
Nýju fötin keisarans