Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,- L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Annað sumarið í röð efna Ríkissjónvarpið og Rás 2 til Sumartónleika í beinni útsendingu frá öllum landshlutum á föstudagskvöldum í júlí. Eins og í fyrra verður lögð áhersla á þekkta íslenska tónlist og á hverj- um stað halda þjóðþekktir gestasöngvarar uppi fjörinu ásamt hús- bandinu góða, Albatross, undir forystu Halldórs Gunnars Pálssonar, Fjallabróður og gítarleikara, og látúnsbarkans Sverris Bergmanns. Ballið byrjar í Vestmannaeyjum á föstudaginn kemur en þaðan liggur leiðin á Bíldudal, Akureyri og Höfn í Hornafirði. Framtakið féll í frjóa jörð í fyrrasumar eftir erfiða mánuði sam- komutakmarkana og persónuhelsis en eins og við munum rofaði þá til í faraldrinum um stund. Nú hefur öllum hömlum verið sópað út af borð- inu og tónleikaþyrstur landinn ætti að leika á als oddi á Sumartónleik- unum. Látið ykkur ekki bregða þótt dansað verði uppi á borðum. Og jafnvel á veggjum og loftum. Hver veit nema Sverrir Berg- mann komi til með að skera úr sér hjartað – með skeið. Morgunblaðið/Kristinn Albatrossinn aftur á loft Ef að líkum lætur mun Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir stjórna veislunni af alkunnri festu. Morgunblaðið/Golli Sumartónleikar RÚV og Rásar 2 í beinni útsendingu á föstudögum í júlí. „Ég er alveg sjálfmenntaður í lyklasmíðinni, fyrst lærði ég hana í amerískum bréfaskóla og síðan hef ég talsvert fylgzt með vinnu- aðferðum og framgangi mála hjá dönsku fyrirtæki, sem ég kaupi allt efni af. Svo lærir maður þetta smám saman af reynslunni,“ sagði Ingvar Þórðarson, í samtali við Morgunblaðið í lok júní 1981, en hann var þá eini maðurinn á landinu sem hafði lyklasmíði að aðalatvinnu. Ingvar sagði starfið fyrst og fremst fólgið í smíði alls konar lykla, allra venjulegra og óvenju- legra. „Ég smíða lykla í hús og það sem þeim tilheyrir, bíllykla og fyrir flugvélar, skip og pen- ingaskápa og aðrar lokaðar hirzl- ur. Það má segja að ég geti smíð- að nær allar þær lyklategundir, sem hér eru fáanlegar.“ Beðinn að rifja upp skemmti- legar sögur úr starfinu gat Ingvar um peningaskáp sem honum hafði verið falið að opna og virtist fullur af einhverju dóti. Eigand- anum hafði verið gefinn skáp- urinn en tjáði Ingvari að hann mætti eiga það sem í honum leyndist. Eftir japl, jaml og fuður tókst Ingvar loks að opna skápinn og var hann þá orðinn allnokkuð spenntur. Og uppskeran? Eitt nafnspjald. GAMLA FRÉTTIN Bréfaskóla- genginn lyklasmiður Ingvar Þórðarson lyklasmiður við gamla Fordinn sinn sumarið 1981. Morgunblaðið/Emilía Björg ÞRÍFARAR VIKUNNAR Shirley Temple kvikmyndastjarna Árný Fjóla Ásmundsdóttir tónlistarkona í Gagnamagninu Leanne Kiernan knattspyrnukona hjá Liverpool

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.