Skólablaðið - 15.03.1978, Qupperneq 2
Sigríður Dóra Magnúsd., 5--S inspector scholae.
Hvers vegna?
Svarið er sígilt,af áhuga.
í vetur starfaði ég i stjórn Skóla-
félagsins og kynntist þá starfi
inspectors. Viðfangsefni inspectors
eru margvísleg en 'með góðu og
duglegu fólki i stjórn Skólafélags-
ins á að nást góður árangur og
betra félagslíf i skólanum sem er
jú stefna allra.
Hverju viltu helst koma til leiðar?
Hugðarefnin eru mörg og á göngu minni í bekk-
ina raún ég gera betri grein fyrir þeim. Ég
hef margar hugmyndir varðandi meiri samskipti
milli nemenda og þá hef ég aðstöðuna í kjallara
Casa Nova og Selið í huga. Ýmsar hugmyndir eru
um breytingar í kjallaranum og því fyr sem þær
verða að raunveruleika því betra. Selið býður upp
á nær ótakmarkaða möguleika og er um að gera að
nýta það sem best.
Síðan M.R. gekk í L.I.M. hafa fáir nemendur
orðið varir við starfsemi þess. Úr því vil ég
bæta. Því mun ég, nái ég kjöri, hafa samvinnu við
L.Í.M.-nefnd og framkvæmdastjórn L.I.M., aðallega
varðandi húsnæðisleysi hér og samgang milli nem-
enda skólanna.
Þá má einnig nefna ýmis önnur atriði s.s. bók-
söluna, bókasafnið, böllin, skólafundi, störf
scribu og quaestors,plötusafnsnefnd o.fl. o.fl.
Eitthvað að- lokum:
Ég býð nemendum starfskrafta mína, áhuga og
reynslu. Þeir eiga næsta leik.
Anna Guðrún ívarsdóttir, 5--X, skólastjórn.
Fyrir hverju ætlarðu helst að
beita þér i skólastjórn?
Embætti skólastjórnarfulltrúa
er varla þess eðlis að tilefni sé
til hástemmdra kosningaloforða eða
inspíreraðra ræðuhalda. Skóla-
stjórnarfulltrúinn vinnur að mestu
í kyrrþey, í skólastjórn eru teknar
ákvarðanir um trúnaðarmál, brott-
rekstur úr skóla, mætingu, niðurfellingu prófa
og slíkt. Það liggur í augum uppi að skólastjórn-
arfulltrúinn getur ekki staðið á torgum og út-
blásið starfsemi sína; engu að síður er það auð-
vitað rétt stefna, sem í vetur hefur verið aðeins
bryddað á, að skólastjórnarfulltrúar gera nokkra
grein fyrir starfi sínu á skólafundum.
Annar starfsvettvangur skólastjórnarfulltrúa
er L.í.m., Landssamband íslenskra menntáskóla.
Já, ég hef starfað talsvert mikið að málefnum
L.í.m. í vetur, hef farið á stjórnarfundi, starfað
að atvinnumiðlun samtakanna síðastliðið vor etc.
Það er nauðsynlegt að efla og sérstaklega kynna
ýmsa starfsemi L.i.m., Menningartengblasjóð og
fleira.
Hvað hefurðu fleira á prjónunum?
Margt, mjög margtJ En ég held að betri vett-
vangur til kynningar sé bekkjargangan og kosninga
fundurinn, þar geri ég fyllri grein fyrir mínum
málum.
Guðmundur Jóhannsson, 4.-T, quaestor scholaris.
Hvað veldur?
Það áem veldur er mikill
áhugá fyrir að starfa að sam-
eiginlegum hagsmunamálum og
áhugamálum nemenda. Til þess
að starfskraftar mínir megi
nýtast sem best í þagu þessars
hagsmuna og áhugamála býð ég
mig fram í quaestor.
Hvað muntu þá gera?
Ég stefni að góðu samstarfi við hina ýmsustu
gjaldkera skólafélags M.R. t.d. með fundarhaldi
þeirra á milli.
Gauti Kristmannsson, 4.-U, scriba scholaris.
Því þá það?
Einfaldlega vegna þess að ég tek
meiri þátt í félagslífinu með þesHU
móti og mun gera mitt besta til að
bæta það og efla.
Ilr hverju mætti svo bæta?
Ég er nú þeirrar skoðunar að
fæst orð hafi minnsta ábyrgð og minna sem er lofað
því minna er logið. Ég tel að menn eigi heldur
að einbeita sér að starfinu sjálfu þegar á hólm-
inn er komið. Að sjálfsögðu má ætíð bæta ýmis-
legt í skólalífinu. Ut á það ganga kosningarnar
ár hvert. Nú, samband nemenda og Skólafélagsins
mætti -vera nánara og skólafundir tíðari auk þess
sem Skólatíðingi mættu verða algengari. Einnig
eru framkvæmdir í Selinu og Casae sígild kosninga-
loforð. En, orðið skiptir minna máli en gerðið.
Að síðustu?
Helsta ósk mín er að nemendur hætti að láta mata
sig og taki sjálfir virkari þátt í félagslífinu
og hristi aðeins upp I þessum annars ágætaskóla.
Nái ég kjöri mun ég gera mitt besta. Veljið þvi
rétt.
Guðrún J. Baldvinsdóttir, 4.-X, scriba
Vegna hvers býður þú þig fram?
Klassísk spurningJ Af áhuga
fyrst og fremst og til að taka þátt
í félagslffi og býð fram krafta mína
í von um að gera eitthvað gagn.
Hvert er álit þitt á starfi Skóla-
félagsins I vetur?
Hugmyndin um að láta quaestor og scribu vlnna
að hluta starf inspectors finnst mér góð og er
sjálfsagt að það verði áfram eins og það hefur
verið undanfarið.
I hverju telurðu starfið fólgið?
I lögum stendur að scriba skuli vera ritari
Skólafélagsins, gefa út Skólatíðindi etc.
Finnst þér skólafundir nógu margir?
Ja, embættismenn geta ekki komið með endalausai
tillögur, eitthvað verður að koma frá nemendum.
Meðan deyfð nemenda er svona mikil þá er ekki
hægt að búast við fleiri skólafundum en voru í
vetur. Auðvitað verður maður að bera í brjósti
þá von að nemendur hressist og verði virkari.
Eitthvað að lokum?
Ef vel gengur, reyni ég að gera eins og ég get.
ölafur Guðmundsson, 4.-U-, skólastjórn.
Jæja strákur, hvers vegna eru
að þessu?
Vegna þess að ég er barngóðurT
Náungakærleikur minn er best
virkjaður í skólastjórn, þar sem
tekin eru til umræðu hin ýmsustu
viðk-^em mál. .
Og hvað hyggstu.r-fyrir?
Lögleiða notkun skyndiprófatöflu svo að aldrei
verði fleiri en eitt skyndipróf á dag og lengra
milli hinna mikilvægari. Þetta þarfnast lög-
leiðingar vegna sambandsleysis á kennarastofu.
Auka menningartengsl L.I.M. nái ég kjöri.
Hvað finnst þér um Guðna?
Mín kynni af Guðna eru þess eðlis að ég vildi
gjarnan hafa tækifæri til að þræta aðeins meira
við hannT
Hvert er lífsviðhorf þitt?
Jafnrétti, bræðalag, frelsi.
Eitthvað fleira?
Mín reynsla er sú að sjöttubekkingar hafa
dálítið sérstæðari vandamál en yngribekkingar
og tel ég því jafnvel betra að annar skóla-
stjórnarfulltrúa séu yngribekkingur.
Gunnar Jóhann Birgisson, 4.-Y, scriba scholaris
Hvers vegna?
Fyrst og fremst vegna áhuga míns
á félagslífinu og af löngun til að
vinna að hagsmunum nemenda.
Hvert telur þú vera starf scribu?
Nú, það stendur skýrt og skorinort P
í lögum skólafélagsins að scriba sé ritari og
jafnframt varaforseti Skólafélagsins en þar með
er ekki öll sagan sögð. Ég tel að einn veiga-
mesti þáttur í stjórn Skólafélagsins, þ.e.a.s.
hún á að vera eins virk og hún framast getur og
styðja að öllum mætti við bakið á inspector.
Því ég tel víst að stjórn Skólafélagsins geti
aldrei orðið verulega sterk ef inspector einn
stjórni öllum gerðum Skólafélagsins. Hann þarf
svo sannarlega dyggán stuðning quaestors og
scribu ef starfið á að takast sem skyldi
Eru einhver sérstök mál sem þér standa nær
en önnur?
Ég ætla nú ekki að fara að gefa einhver kosning
lpforð í "massavís" því að kjósandinn græðir
raunverulega harla lítið á þeim og ég ætla ekki
að standa fyrir róttækum breytingum ef ég næ
kjöri því ég tel þeirra ekki þörf. Aftur á móti
er starfslið aldrei gallalaust og alltaf má
bæta um bet ur. Ef ég næ kjöri þá mun ég aðal-
lega leggja áherslu á tvennt:
1. Ég mun vera eins atkvæðamikill innan stjórnar
Skólafélagsins og ég framastget.
2. Ég mun stórauka útgáfu Skólatíðinda til að
auka tengsl nemenda og stjórnarinnar.
Þetta tvennt tel ég skilyrði fyrir því að starf
scribu verði farsælt.
Hvaða álit hefur þú á lagabreytingum þeim er
komu fram á síðasta skólafundi?
Ég tel að lagabreytingar Sturlu Sigurjónssonar
sem fela í sér að nemendum verði gerð grein fyrir
útgjöldum Skólafélagsins séu til mikilla bóta.
Þar sjá nemendur í hvað peningum þeirra er eytt
og þar fá emtœttismenn vopn upp í hendurnar ef
þeir eru sakaðir um misferli.
Að lokum?
Nemendur þeir er nú ganga að kjörborðinu verða
að muna ekS að þótt embættismenn séu starfi
sínu vaxnir þá getur félagslífið ekki blómgast
án þátttöku þeirra sjálfra . Það er starf
embættismanna að skipuleggja félagslífið, en
hlutur nemenda að taka þátt í því.
Sigurbjörn Magnússon, '5.-Y« inspector scholae.
Hvers vegna?
Fyrst og fremst af miklum áhuga
á félagsstarfi, svo og áskorun 5ta
bekkjar um að taka við útnefningu.
Einnig löngun til að efla Skóla-
félagið og fá meiri ferskleikablæ
á starfið, þannig að M.R.-ingar
geti státað af öflugu Skólafélagi
með fjölbreyttu félagslífi. Við
þurfum umframallt duglegan mann
sem inspector til að hafa yfirumsjón með öllum
deildum Skólafélagsins ogvinna af alúð að hags-
muna málum nemenda og samheldni meðal þeirra.
Hver eru helstu baráttumálin?
Fyrst má nefna að húsnæðisskortur fyrir félags-
aðstöðu er tilfinnanlegur og á ég þar sérstaklega
við húsnæði fyrir samkomur og fjölmenna fundi.
Ég hyggst heyja harða baráttu fyrir hærri fjár-
veitingu til viðbótarbyggingar við M.R. berjast
innan hagsmunadeildar LlM og efna til kröfugöngu
allra nemenda að Alþingi og Menntamálaráðuneyti
dreifa þar bæklingi þar sem félagsaðstaða mennta-
skólanna á höfuðborgarsvæðinu er borin saman.
Það er um að gera að líf og fjör sé i starfinu,
annars er ekkert púður í því og ef við nemendur
berjumst ekki fyrir auknu húsnæði fyrir félags-
starfið, hverjir gera það þá? Löggjafarsamkomur
Skólafélagsins eða skólafundir hafa verið með
slakasta móti í vetur. Ég vil beita mér fyrir
því að þar verði meira ,rætt um félagslífið sjálft
þegar hinni hefðbundnu dagskrá er lokið, hvað sé
á döfinni og hvaða hugmyndir er verið að gæla við
þannig að skólafundir miðluðu meiri upplýsingum
og gæfu nemendum kost á að láta álit sitt í Ijós
á því sem er að gerast. Einnig mættu embættis-
menn sitja fyrir svörum einhvern hluta úr slíkum
fundi ef tími vinnst til.
Hvað með lögin?
Lög Skólafélagíins þarf að endurskoða en alls
ekki skera þau niður eins og einhverjir vilja láta
gera og vil láta nýkjörna formenn allra nefnda og
ráða koma saman að hausti og koma með tillögur að
nýjum lögum, hver fyrir sína nefnd eða sitt ráð.
Þessar tillögur verði bornar upp á fyrsta skóla-
fundi næsta haust og lögin gefin út hið snarasta
að því búnu en það er mikilvægt að þau séu til
staðar allt skólaárið. Lögin eru til okkar vegna
en ekki við þeirra vegna. Ég el með mér önnur
baráttumál um LlM, auglýsingar, tolleringar, ganga
slagi,■félagsheilimisnefnd, bókasafnið og fleira.
Of langt mál væri að gera glögga grein fyrir
þessu öllu hér. Það geri ég í væntanlegri kosning
barattu. Ekkl sakar að mlnna embættismenn á laga-
grein 3.3: Vanræki embættismaður skyldur sínar
getur inspector vikið honum úr starfi. - Vera má
að það geti haldið embættismönnum við efnið.
Attu von á pólitískum flokkadráttum í kosningum?
Nei, alls ekki. Ég vona að nemendur meti fram-
bjóðendur eftir því hvernig þeir hafa starfað að
félagsmálum innan skólans og eftir þeim málefnum
sem þeir berjast fyrir.
Að lokum.
Ef ég hlýt stuðning ykkar þá hyggst ég vinna
ótrauður að framgangi minna áhugamála ogreyna að
gera nemendum ljósari grein fyrir hverjir séu
hagsmunir þeirra og fá þá til að sinna þeim meira
en áður. Það er nauðsynlegt að fá þá til
hagsmunir þeirra og fá þá til að sinna þeim meira
en áður. Það er nayðsynlegt að fá ný andlit i
Skólafélagið og gefa því þannig hressilegan blæ,
gera félagslífið blómlegt á næsta skólaári.
Jón Atli Árnason, 5--M, skólastjórn.
Hvers vegna býður þú þig fram?
Það væri þó ekki nema einlægs
áhuga á að starfa -að hagsmuna-
málum minna ástkæru skólasystkina.
I skólastjórn get ég verið tengi-
liður milli nemenda annars vegar
og kennara og rektors hins vegar.
Skólastjórnarfulltrúi getur kynnt
kennurum og rektor skólans sjónar-
mið nemenda og komið samþykktum
skólafunda áleiðis. Þess vegna er embættið mjög
mikilvægt.
Viltu breytingar í skólalífinu?
Að sjálfsögðu er ég haldinn mikilli framfara-
þrá og eru því góðar breytingar mér mjög að skapi,
en ekki má gleyma því að skólastjórnarfulltrúar
eru ekki beinlínis framkvæmdaaðilar í félágs-
málum skólans og því er það ekki að þeirra frum-
kvæði að hrinda breytingum í framkvæmd.
Betur list mér á þá tillögu sem kom fram hér
í hitteðfyrra, að ráð djúpt hugsandi félagsmála-
forkólfa kæmi saman og ræddi málin, skilaði að
lokum skólafundi áliti.
En er skólastjórn nemendum til góðs?
Það hlýtur alltaf að vera nemendum til hags-
bóta að hafa sína fulltrúa meðal þeirra sem
stjórna og verði ég kosinn mun ég gæta hagsmuna
nemenda í hvívetna og verða trúr þjónn þeirra.
Þá er svo málum háttað að annar skólastjórnar-
fulltrúi verður sjálfkrafa L.í.m.-nefndarmaður,
menntaskólunum er nauðsynlegt að hafa með sér eins
víðtækt samstarf í félags- og menningarmálum og
kostur er. Þess vegna^er þýðingarmikið að þangað
fari áhugasamir fulltrúar.
' 'i \ /VI