Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 4
Jón Bjarnason, 5.-M, inspeotor platearum. í>ú áttir stormasama ævi og æsku, er ekki svo? Það má sannarlega rétt vera, foreldrar mínir kúguðu mig, og orsökuðu um leið veiklun mína. Veiklun? Já, það er löng sorgarsaga, sem ekki rétt er_ að hryggja nemendur með í stuttu viðtali, ég fór yfirum á próflestri hér um árið og einasta frið- þæging mín nú er hinn yndislegi hljómur bjöll-, unnar. fig hugðist hverfa frá námi - og hafði^þó náð frábærum árangri í barna- og gagnfræðaskóla - en sakir foreldra minna er ég hér enn, andleg líðan mín er ekki upp á marga fiskana. Hið eina sem heldur mér sæmilega rólegum er bjölluhljómur, dásamlegur, unaðslegur bjölluhljómur ... Já.' Hvað viltu segja að lokum, Jón minn? Nemendur góðir: Það er ekki aö framagimi sem ég fer í þetta framboð , aðeins af heilsufars- ástæðum og að ráði hins ágæta geðlæknis Sigfúsar Brekkan. Hjálþið mér: Bjargið geðheildu minni.' Baldvin Einarsson, forseti Framtíðar. Pourqoui?? Vegna þeirrar ánægju sem starf í þágu nemenda veitir mér, einnig vil ég koma í veg fyrir að stjórn Fram- tíðarinnar komist i hendur óábyrgra nemenda. Hvað með starfsemi Framtíðarinnar i vetur? Ég hef lítið út á starfsemina að setja. Fél- agið hefur ekki látið sitt eftir liggja í sam- bandi við að vekja áhuga nemenda á félagsstarf- seminni í skólanum, ,félagið hefur verið umfangs- mikið1 Jafnvel verið of umfangsmikið. Eg vil ekki breyta miklu, heldur hlúa að. Að lokum? Nemandi góður. Ég býð fram nfidonskraft" minn til virkjunar í þína þágu. Guðmundur M. Stefánsson, 5--S, insp. platearum. Eg býð mig fram í inspector platearum, þ.e.a.s. það embætti sem gætir þess að hringt sé á réttum tíma til kennslustundar óg úr, rétt svo til að nemendum gefist tækifæri til að endurnýja sina andlegu krafta fyrir næstu kennslustund. S Þannig má sjá að þessi embættismaður er undir miklum þrýstingi stundvísinn- ar, og er það bráðnauðsynlegt fyrir "sálarheill" nemenda að þessi maður sé alltaf "on time". Og nauðsynlegt er einnig að að sá starfskraftur sé þannig í stakk búinn að ná til bjöll- unnar á sómasamlegan hátt. Ég er búinn að mæla - og ég næ:: Jæja, góðlr hálsar. Svo kemur rúsínan í pysluendanum. Samkvæmt nýjustu ættartölu skagfirðinga hef ég komist að þvi að af Pétri hringjara Guðbrands biskups er ég kominn í beinan kaenlegg í 18. lið. Þannig er ómur bjöllunnar beinlínis í blóðinu. Sem sagt, leyfið mér að koma til bjöllunnar og bannið mér það eigi. Arni Þ. Snævar, 5.-B,stjóm Framtíðar. Hvers vegna? Ég hef gífurlegan áhuga að starfa í stjórn Framtíðarinnar og hef fylgst með starfi hennar í vetur.Starfsemin hefur verið nokkuð góð en^mörgu þarf að breyta.Stjórnin hefur látið sitja á hakanum að virkja stærsta. árgang skólans eða öllu heldur þriðja bekk. Hefur þú einhverjar stórframkvæmdir í huga? Ef menn vilja kalla hugmyndir^minar stórar,þá það,en það helsta sem mér liggur á hjarta er að virkja sem flesta nemendur og þá með öflugri kynningu í þyrjun næsta skólaárs þannig að sem flestir fái almennilega hugmynd um starfsemi Framtíðarinnar.Vanda þarf alla dagskrá og hafa hana sem fjölbreytilegasta. Eitthvað að lokum? Ég þykist hafa nokkra reynslu í störfum að félagsmálum og er ákveðinn í að keyra þessar hugmyndir mínar í gegn,það er að segja ef ég næ kjöri. Michael Clausen, 5--Y, inspector platearum. Jæja Michael, hvemig stendur nú á þvi að ... Andartak.' Ég skal sjá um þetta sjálfur: Astkæru nemendur. Þeir hæfileikar sem inspector platearum þarf að hafa eru fjölmargir. Þar ber fyrst að nefna tón- og taktvísi afburðagreind, árvekni, góðan limaburð og aðlað- andi framkomu. Við erum fáir sem höfum þessa eiginleika til að bera. Þess vegna hefi ég, vegna f jölda áskorana vina, velvildarmanna ,og hennar ömmu boðið mig fram embætti inspectors platearum. Eins og nemendum er velflestum kunnugt þarf in- spector platearum að hafa kynnt sér meðferð bjallnó til að kunna réttu handtökin. Ég hefi setið við fórskör fjölmargra íslenskra og erlendra hringjara og numið þau himnesku fræði sem þarf til að hringjs bjöllu á réttan hátt. Ég hefi gengið^um fjöl- margar kirkjur og önnur guðshús, þar á meðal Notre Dame kirkjuna, Frúarkirkjuna, Kópavogs- kirkju og Péturskirkju i fylgd með ýmsum frægum kringjurum. Þar má nefna Zongalsky, Bellsen, SQuasimodo og Pirof McClaud. Góðir skólafélagar, enginn í 5ta bekk er hæfur til að hringjá bjöllunni af slíkri innlifun sem mér er svo lagið. Þess vegna ættuð þið ekki að vera í vafa hvern þið veljið. Sveinn Yngvi Egilsson, 5.-M, Herranótt. Það þarf væntanlega ekki að spyrja hvers vegna þú býður þig fram? Nei.^ Fílefldur eftir stórkost- legan árangur starfsins nú i vetur sé ég enga ástæðu til að leggja upp laupana. Að sönnu er þetta allt saman ekkert nema þrotlaus vinna og puð; ánægjan skilar áér engu að síður ef húsið er á bjargi reist og vel að verki staðið. Eru þér huglægar einhverjar breytingar á starfsemi Herranætur? Sú braut sem mótuð var í vetur er mér að skapi. Frjálsleg framúrstefna - þessi orð lýsa stefnunni sem fylgja skal e.t.v. best; ekki byltingarkennd en stöðug þróun, soldið absúrd, það er það sem er og það sem koma skal, sífelld nýsköpun innan ramma þeirra lögmála sem leikhúsið lýtur; þ.e.a.s. - engra. Leikendurnir setja leiknum takmörk: Sigrún Waage, 3--B, stjórn Framtíðarinnar. Hvers vegna ert þú komin i framboð? Astæðan er gamalkunn, fyrst og fremst sú að ég hef mjög mikinn áhuga á^ félagsmálum, vil taka þátt i þeim sjálf og stuðla að því að sem flestir nemendur skólans njóti þess sem á boðstólum er í félagslifinu. Hvemig finnst þér starf- semi Framtiðarinnar í vetur hafa gengið? Yfirleitt þolanlega, vel hefur verið séð fyrir flestum þörfum nemenda í sambandivið félagslífið, þrátt fyrir örlitla misklíð sem skaut upp kollinum um miðjan vetur. Eru einhverjar breytingar sem þér liggja hjarta nærri? Pétur H. Armannsson, 4.-T. Myndlistardeild Listafélagsins. Hvað hyggstu gera? Tilgangurinn með framboði mínu í myndlistardeild Listafélagsins er að eflingu sjónmennta innan skólans, en með sjónmenntum á ég við málara- og höggmyndalist hvers konar, byggingarlist, 1jósmyndalist og aðrar tegundir myndlistar. I þessu sambandi mætti nefna fyrir- lestra, samkeppnir eða sýningar, möguleg.'. í sam- vinnu við aðra framhaldsskóla, að ógleymdu- Skóla- blaðinu, sem er kjörinn vettvangur fyrir myndlist- aráhugamenn innan skólans. Takmarkið er: Blómlegt listalíf í Menntaskólanum í Reykjavík á komandi vetri. Margrét H. Einarsdóttir, 3.-C, tónlistardeild Listafélagsins. Og segðu nú eitthvað - svona rétt í endann. Kveðjur til allra - með von um marga og góða áhorfendur næsta ár. Gauti Grétarsson, 4.-U, formaður FéJsgsheimilis- nefndar. Hún er einföld, þ.e. einskær áhugi. Starfið er í því fólgið að fylgjast ,með rekstri kakósölunnar, greiðsla reikninga hennar^ og endurnýjun drykkjarítláta. Kakósalan hefur^af nokkurra ára þróun komist í það horf sem hún er í nú bæði hvað ... vjirðar verð pr. einingar, urval og gæði tegunda. Ég vonast eftir atkvæðum sem flestra. Hver er ástæðan? Warum? Helst vil ég láta fjölga beinum kappræðufundum og þá jafnvel með frummælendum utan úr bæ, slíkt getur gefist mjög vel eins og sást á fundinum um herstöðvarmálið. Efni á málfundi mættu vera bein- skeyttari, þá langar mig til að beita mér fyrir veigameiri dagskrá á árshátið Framtíðarinnar og gera hana þar með eftirminnilegri. Finnst þér að félagar í Framtíðinni ættu að kjósa í ritnefnd Skinfaxa? Já, það er í alla staði lýðræðislegra, Skinfaxi er orðinn svo stór þáttur i félagslífinu að mér finnst sjálfsagt að kjósa menn í ritnefnd. Að lokum vil ég geta þess að ég mun að sjálf- sögðu starfa af öllum mínum kröftum, ef ég kemst að, og reyna að bæta enn starfsemi Framtíðarinnar. Ja, ég stunda tónlistarnám og hef þarafleiðandi mikinn áhuga á tónlist. Klassik og popp er það ég held mest uppá þó mér líki flestar tegundir tónlistar. Hvernig leist þér á starf umræddrar nefndar i vetur? Þau tónlistarkvöld sem hafa verið haldin í vetur hafa tekist nokkuð vel en hitt er annað mál að mér finnst vanta meiri áhuga hjá nemendum. Mig langar til að stuðla að því að þeir nemendur sem stunda tónlistarnám taki meiri þátt i þessu öllu saman og flytji jafnvel sín verk á tónlistar- kvöldum, mér er það hjartans mál að stuðla að blómlegra tónlistarlífi í skólanum en nú er. Og endahnúturinn? Komist ég að verður engin feilnóta i fimmtu symfóníunni.... I: Reyndu bara að vara ógeðslegur, þá meikar það engann diff: Þ: Ég meina, það hljóta að vera til takmörk: I: Nei, þau eru ekki til, og ef þau eru til, þá meika þau engann diff: Þ: ö GUÐ MINN GÖÐUR, það eru ekki til nein takmörl Kristján Gottskálk Hansen 4.-T, formaður Félagsheimilisnefndar. Því í ósköpunum? Aðallega vegna áhuga á störfum nefndarinnar og veikri von um að geta selt rugbrauð á vegum hennar. Hvernig verður rekstrinum háttað? Eðlilega svipað og áður, þ.e. reynt verður að veita nemendum kjamafæðu á verði sem næst kostnaðarverði. Stefnt verður einnig að fjölbreyttum kosti. Eitthvað ódauðlegt að lokum? Kjósið réttan mann á réttan stað. eit?hva§ herna 1 hárnið. -Setjum auglýsingu. -ökey. Þið munið Rakarastofuna Klapparstíg.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.