Skólablaðið - 15.03.1978, Side 3
Bóöss Bjöss, 5.-D, inspeotor platearum.
Þú.' gamli þrjótur og óforbetranlegi sveita-
maður, til hvers ertu nú að trana þér fram?
Jón á Gautlöndum - það er minn maður, í hans
anda, Krúsa á Svartagili og ungmennafjelagshreyf-
ingarinnar ætla jeg mjer að komast að því hver
urðu örlög rússneska drengsins - hans Sergei okkar
- borinn^út glákublindur af óvinum bændastjettar-
innar; þá vil jeg berjast fyrir þvi að heims-
meistaraeinvígið í manntafli verði framvegis að
Gásum, hinum forna höfuðstað Norðurlands; láta
útrýma þeim andskotum þúfnabönum; jeg vil láta
flokk vaskra sveina leita að gulli Egils fyrir
mörgum öldum týnt; flytja sauðnaut til Viðeyjar;
kýr í Fjósið; þá krefst jeg þess að Sambandslögin
verði endurskoðuð; láta taka niður þá hina grísku
klukku skólans og uppsetja klukkurnar úr Hóla-
dómkirkju....
Ach'. og hvar ertu upprunninn?
Jeg er fæddur í Hrísey.
Jæja. Er það svo?
Nei ... raunar fæddist jeg i Kópavogi - það var
árið 1858; átti jeg þess því kost að ganga ungur
í þindindishreyfinguna og runnum við okkar æsku-
skeið saman; jeg er því stakur þindindismaður nema
á stórhátíðum, auk þess sem mjer þykir ekki annað
við hæfi en að drekka hvannarrótarbrennivínið í
öll mál - ekki er nú landinn siðri - þess má geta
að jeg er hatrammur andstæðingur rafurmagnsins,
meginþráðarins og telegrafsins suður á Melum
sem jeg tel stórhættulegt sauðfje .....
Raunar var ég að spyrja um upprunann.
Að langfegðatali er jeg kominn af Göngu-Hrólfi
- hef frá honum „samræmt göngulag fornt" - þaðan
í gegnum hollenska konunga og fjesýslumenn til
duggara af Flandri; þeir munu hafa komist í kynni
við Þóru portkonu á Skæringsstöðum í Loðmundar-
firði - faðir minn hjet annars bara Bob og var
víst majór, hitt móður mína, Gógó gengilbeinu,
á Hótel Happínesi i Kamp Noks bak við Melana,
þar fæddist jeg í bragga 1942; varð snemma athafna
samur í viðskiptalifinu og beitti mjer fyrstur
manna fyrir kaupum á þilskipi til landsins, af
mjer er runnin mikil ætt - Bjöss-ættin, víðfræg
af þátttöku i stjórnmálum og viðskiptalífinu:
má nefna, ólaf Bjöss, Richard Bjöss, Thor Bjöss,
Bjöss Bjöss, 'Bjöss Bjöss-Bjöss, Braga Bjöss
Blumenstein og Kára Bjöss, allt afkomendur mínir,
enda er j,eg kominn beint af Lefolium kaupmanni
á Eyrarbakka, þaðan af Leví feldskera, sem af er
komin ættin Leví-Andersen sem margir kannast við
en hefur nú illu heilli Kristnast; þess má geta
að jeg er algerlega sammála Davíð Ben-Gúríon -
hann er enda náfrændi ólafs Bjöss - við Gyðingar
verðum að standa saman - (nefndu mjer tíu fræga
sígauna) - jeg vil láta taka upp umskurn sem vörn
gegn þeim saurindum sem finna sjer stað i leik-
fimihúsi skólans; annars er jeg fæddur 1969 og
varð illa úti í Stóru-Bólu sem þá geisaði, enda
er jeg talinn launsonur byskupsins og hef síðan
haft mikinn áhuga á kristindómsfræðslu og tel
margt ógert í þeim efnum; enda fermdur uppá annað
og meira og betra en faðirvorið; þegar jeg var að
alast upp á fyrri hluta sautjándu aldar kunni
hvert barn Iðrunarsálma sjer Halldórs á Prest-
hólum afturábak og áfram - raunar þótti mjer
Skúli fógeti alla ævina ódæll; já þarasta leið-
indapúki og Baunasleikja ....
OooooovistT Eitthvað að lokum?
Það væri ósgu lítið: nefndir eru til sögunnar
Guðmundur Jóhannesson afi minn og Nölseyjar-Páll,
eftir viku sukk og svínarí hrjáði þá sumblekla;
drukku þeir þá koniak úr maga sels : þá sagði
Friðbert í Hraunkoti við,langalangafa minn - en
hann var aðeins þrjú fet á hæð - súptu á Guðmundur
JóhannessonT ekki er það gott en engan deyðir það
- þess má geta að jeg er þeldökkur múlatti.; bú-
settur i Ghana af Hausakynflokki, faðir minn heit
Llmbwombwlmbwanmwo, velskur að móðurkyni - enda
var þá þetta kveðið:
Klukkum og klof
þeim syng jeg lof
vil reisa þeim hof
og öjá þeim sof -
loks væri ekki úr vegi að geta þess að ég er
kynvilltur kynskiptingur, pródúseraður í Casa-
blanca, faðir minn er Morris ....
Halldór Þorgeirsson, 5.-D, forseti Framtiðar.
Hvers vegna ertu hér kominn?
Vegna áhuga á framtíð Framtíðar-
innar, ég hef gífurlegan metnað
fyrir hönd Framtiðarinnar og yil,
veg hennar sem mestan. ^Starfið í
vetur hugnaðist mér ákjosanlega^
þótt mjög tímafrekt væri. Að mínu
mati hefur áhugi á Framtíðinni
aukist nokkuð; ég ákvað^að bjóða
mig fram vegna þess að ég gat ekki
reynslulitlir og ábyrgðarlausir menn nyttu þann
áhuga og kæmu e.t.v. öllu a kaldan klaka.
Og hver eru helstu áhugamálin?
Þau eru feikilega mörg.' Ég er uppfullur hug-
mynda sem ég vona að mér - nái ég kjöri - takist
að hrinda i framkvæmd, að sjálfsögðu asamt þartil-
kosinni stjórn, enda er forseti algerlega undir
stjórnina settur. Ég vil taka sem dæmi að eg
hef áhuga á að efla tengsl stjórnarinnar við
almenna félagsmenn, minna hefur oft farið fyrir
slíku en skyldi, t.d. með því að kalla saman al-
mennan fund i upphafi vetrar þar sem nemendur fa
að láta í ljós óskir sínar um dagskrá vetrarins.
Félagstíðindi sem hafa komið út öðru hvoru þarf
að efla; jafnvel að láta þau flytja skemmtilegar
fréttir úr skólalífinu eða annað lettmeti. Þa ^
mætti Framtíðin að ósekju vera virkari innan skola
lífsins, hún má ekki einangrast með sína starf-
semi, hún ætti að tengjast skólafélaginu meira
þannig að dagskrár-beggja félaganna verði sam-
rýmdar og bæti hvor aðra uþp - þo ber þess^ser-^
staklega að gæta að Framtíðin haldi hlut sinum 1
þeim viðskiptum og glati 1 engu sjálfstæði sínu.
Fleira sem þér liggur á hjarta?
Langar orðræður eru til lítils,^ég trúi að
kjósendur muni meta gott starf meira löngum lof-
orðalista; nú er enn á ný kallað til kosninga og
er vonandi að nemendur velji ekki tilfallandi
í framagosa sem allt i einu birtast útúr blamanum
| fram yfir hina sem þegar hafa synt hæfni og dug-
leik ... eða hvað?
hugsað mér að
Jón Ingvar Pálsson, 4.-C, stjórn Framtiðar.
Hvers vegna þú?
Af áhuga á að efla starfsemina
enn meira. Eg tel einnig að sú
ánægja sem samfara því að starfa
í Framtíðinni mun efla andlegan
þroska minn til muna. Samt vil
gg geta þess að ég fullur áður-
nefnds þroska.
A að breyta, bæta, mála?
Starfsemin i vetur hefur verið mjög góð, eða
öllu heldur frábær miðað við fyrri ár en breyt-
ingar til hins betra hljóta að vera velþáðar af
Fraiptíðarfélögum, s.s. að efla og vanda þarf út-
gáfustarfsemi. Tengja hinn almenna félagsmann við
stjórnina enn meira. Víkka þarf sjóndeildarhring
nemenda, virkja þá betur, s.s. leita oftar í yngri
bekkina, þar sagt er að leynist hinir mestu ræðu-
skörungar. Vanda þarf alla dagskrá þannig að hx
hvergi verði á henni veila. ÞKð er nauðsynlegt
að við sýnum góðan móral, verum jákvæð, til þess
að allir félagsmenn fáá notið sín sem best.
Og lox?
Einhvers staðar verða góðir að vera, þess vegna
skulum við taka saman höndum og styðja hinn
frjálslega og skemmtilega.
Ölafur Rögnvaldsson, þta bekk, Herranótt.
Hvað dró þig í framboð?
Ja, ég mundi nú kannski ekki
segja að ég hafi farið með stærsta
hlutverkið á Herranótt i ár, en
það var nóg til þess að ég "fékk
bakteríuna" og nú langar mig til
að starfa áfram að þessum málum.
Áttu þér einhver baráttumál?
Ég kynntist því gegnum starfið í vetur að
það er aðeins eitt sem skiptir máli: góð samvinna.
;Löng ræðuhöld eru til lítils, mig langar einfald-
jlega til að vinna að Herranótt, langar til að
jleggja mig allan fram svo góður árangur megi nást.
Eg vona að nemendur vantreysti mér ekki til þessa.
Páll Ásgeirsson, 4.-T, L.í.m.-nefnd og ritnefnd.
Hvers vegna LlM-nefnd og rit-
nefnd?
Ritnefnd vegna þess að ég hef
ókristilegan áhuga á að hasla mér
völl á ritvellinum og álít þar af
leiðandi að besti staðurinn sé
ritnefnd Skólablaðsins. Einnig
hef ég áhuga á að það verði gefið
út blað á vegum LlM sem inniheldur
það besta sem birtist í skólablöðum
menntaskólanna líkt og átti að gera
þennan vetur. Önnur ástæða fyrir framboði mínu í
LlM er að ég hef áhuga á að gera LÍM að stéttar-
félagi menntaskólanema. Sem slíkt getur LÍM
tekið afstöðu í baráttu alþýðunnar fyrir kjörum
sínum bættum sem eru jú bætt kjör okkar.
Ölfar Ingi Þórðarson, 4.-T, stjórn Framtíðar.
Mig fýsir að vita hvers vegna
þú ert nú kominn í framboð.
Ástæðan er augljós, mikill
og óskiljanlegur áhugi á að
vinna að félagsmálum, ég átti
smáþátt í stjórn Framtíðarinnar
nú í vetur og hef fengið smjör-
þefinn af öllu saman, líkar
bara vel...
Þú ætlar að beita þér fyrir?
Einungis því að efla og bæta starf Framtiðarinna:
I vetur hefur mikið til verið unnið gott starf
og-fjölbreytt en áhugaleysi nemenda hefur verið
áberandi. Það er máski aðallega það sem égihyggst
reyna að bæta úr , það ætti að lánast ef fyrir
hendi er samhent og dugmikil stjórn sem lætur
hvergi deigann síga; Framtíðin er einn allra mikfil
vægasti þátturinn i félagslífinu og starfsemi
hennar ætti að vekja áhuga allra nemenda. Mér
þykir og sýnt að auka mætti samstarf Framtíðar-
innar og Skólafélagsins - báðum til hagsbóta,
þá á ég kannski sérstaklega við Listafélagið.
Fleiri hugmyndir mínar ætla ég svo að kynna betur
í akiteringunni.
Einhver lokaorð?
Já, þakka þér fyrir. Ég vona að áhugamál mín
og nemenda seu hin sömu, a.m.k. ekki ólík,
ef svo er get ég lofað öllum mínum starfskröfum
og líkamsorku í þágu félagslífsins.
Yrsa Þórðardóttir, 4.-B, stjórn Framtíðar.
Þú hyggst starfa í Fram-
tíðinni, er ekki svo? Hvernig
stendur á því?
1 Ég hef sótt málfundi og rabb-
fundi og 1 fyrra fór ég á mælsku
námskeið á vegum Framtiðarinnar.
Ég hef hrifist mjög af starfi
félagsins og vildi gjarnan fá
að stuðla að því að starfsemi þess yrði sem blóm-
legust á vetri komanda.
Er ekki eitthvað sérstakt sem þú vildir koma
á framfæri hér í blaðinu?
Jú, ég vil minna þig á - kæri kjósandi - að
þitt atkvæði getur ráðið úrslitum. Ég vona að
þú styðjir mig.
Guðmundur Þorbergsson, 5.-Y, forseti Framtíðar.
Hvers vegna býður þú þig fram?
Ég býð mig fram vegna þess að
ég hef áhuga á að berjast fyrir
aukinni fjölbreytni og viðtækara
lýðræði í starfsemi Framtiðarinnar.
Hvert er álit þitt á núverandi
stjóm Framtíðarinnar?
Hún hefur að sumu leyti verið
góð eh engu að síður hefur tals-
vert vantað frumleik og nýjar
hugmyndir. Ég er ánægður með þá stefnu að hafa
málfundi nokkuð reglulega. Rabbfundir hafa verið
of fáir og finnst mér það einkennilegt vegna þess
að með smáhugkvæmni má gera þá mjög skemmtilega.
Eitt er það í fari núverandi stjórnar sem ég er
mjög óánægður með en það er hið gífurlega vald
forsetans. Hann hefur að því er mig minnir stjóm
að öllum málfundum og séð um alla rabbfundi
vetrarins. Ég berst fyrir auknum áhrifum óbreyttr
a stjórnarmanna. Ef ég næ kjöri mun ég verða mjög
opinn fyrir hugmyndum nemenda og fúslega leyfa
félagsmönnum sjálfum að spreyta sig á að sjá um
rabbfundi eða jafnvel málfundi innan framkvæman-
legra marka-. Ég er semsé afskaplega góður og
líberal náungi.
Aðrar breytingar sem þú hefur í huga?
Það er nauðsjmlegt að gera öðru hverju smá-
breytingar á starfsemi Framtiðarinnar ef hún á
ekki að staðna. Ég hyggst auka fræðslustarfsemi
að mun. Ef hægt er að tala um slíka starfsemi nú
þá felst hún aðallega í dreifingu á hinum klassísk
bæklingi Gunnars Thorodssen sem líklega hefur
verið dreift áratugum saman og mælskunámskeiðum.
Námskeiðin eru sjálfsagður þáttu í starfsemi
Framtíðarinnar en fyrirlestrar ná til mun fleiri.
Það mætti kanna þann möguleika að koma á leshring
um helstu stjórnmálastefnur. Ég mundi kanna
hvort Listafélagið hefði áhuga á samstarfi um
nokkrar kvölddagskrár.
Hvað viltu segja um klúbbana og Skinfaxa?
^Klúbbarnir starfa á hefðbundinn hátt og er
lítilla breytinga þörf á þeirra starfsemi nema
hvað mér finnst mega auglýsa 1jósmyndaklúbbinn
meira. Visindafélagið hefur sinn forseta sem
mótar sína stefnu sjálfur. Skinfaxi sá sem kom út
í vetur var hneyksli og Framtíðinni til mikillar
skammar. Ég mun reyna að koma í veg fyrir að
slíkt endurtaki sig og velja einhvern víðlesinnis
og ábyrgan mann í stöðu ritstjóra Skinfaxa.
Hvað viltú segja að lokum?
Það sem skiptir mestu máli er að kjósa mann sem
er laus við alla foringjakomplexa. Ég tel að allt
of mikið hafi borið á forsetanum einum í
starfi Framtíðarinnar i vetur enda eru afleiðing-
arnar eins og búast mátti við, í haust hófst
starfsemin af miklum krafti en er að miklu
leyti dottin niður núna. Ég mun beita mér fyrir
jöfnu og markvissu atarfi næsta vetur allan.