Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 6

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 6
ATHDGASEID Ul HINIÝJD LÖG LISTAFÉLAGS MR Á skólafundi þann 7.mars sl. voru í lög tekin ný ákvæði um starfshætti listafélags þess sem starfandi er hér í skóla. Féllu þar sjieð úr gildi lög þau sem muhu hafa fylgt því frá upphafi vega. Þau voru löngu orðin úrelt og þvi kominn tími til að ný væru sett. En nú tókst svcb slysalega til að lagasmíðin lenti i höndum fólks sem augsýnilega hefur afar óljósar hugmyndir um hvernig testa megi úr vandkvæðum Lista- félagsins. Eigi að glæða áhuga nemenda á starfi þess með breytingum á starfsgrundvelli þess dugar ekkert kák. Helzt þyrfti að umbylta honum til að sigra þá óvini sem stundatafla skólans og húsnæðismál hans eru og gera ráð fyrir auknu samstarfi við nemendur annarra skóla. Lýðræði skyldi eflt, en dregið úr völdum þeirra sem æðstu embættin skipa. I fljótu bragði virðist það líka hafa verið gert með þessari lagasetningu..En við nánari athugun kemur allt annað 1 ljós. Niðurfelling ákvæða um útnefningu deildarformanna og aðalstjórn er svo sjálfsögð að ekki tekur því að ræða hana nánar. öðru máli gegnir um útþurrkun leik- listardeildar. Enda'þótt henni hafi um nokkurt skeið verið sýndur lítill áhugi-orsökin ser sú að hún lenti í höndum duglítilla embættismanna og bókmenntadeild lagði undir sig kynningar á leikbólmenntum - er alls ekki sjálfsagt, að hana mætti ekki lífga við. Lög- vitringar áttuðu sig ekki á því, að bólmenntir og leiklist eru tvær gerólíkar listgreinar, eða finnst þeim e.t.v. eðlilegt að láta bókmenntadeild um kennslu í látbragðsleik? I mesta lagi hefði átt að sameina deildirnar í bókmennta- og leiklistar- deild, eða láta deildina bíða nýrrar vakningar auða. Glapræði var að kippa henni burt og eitt dæmi þeirrar fádæma hroðvirkni, sem bálkurinn er gerður af. Til að bregða sýndarblæ lýðræðis yfir smið- ina er felld inn svohljóðandi klausa: "Öllum nemendur skólans skal heimilt að starfa við hlið stjórnanna, og skulu þær halda opna fundi reglulega". Eg hygg, að þetta sé í fyrsta sinn, sem nokkrum dettur i hug að tryggja þurfi með lagaboði, að þær fáu hræður, sem sinna starfi Listafélagsins, fái að leggja eitthvað af mörkum til þess. Listafélagið hefur ætíð staðið.. öllum oþið, enda segir i lögum þess, að allir innritaðir menendur M.R. teljist félagar í því. Hingað til hefur verið algengara að deildastjórnirnar væru hálfsetnar, stundum af letingjum. Akvæði þetta kemur auk þess all- anakannalega fyrir sjónir eftir að hafa ný- verið fengið í hendur plagg frá bókmenntadeild, þar sem vælt er yfir lélegri þátttöku í les- hring hennar. Þeir búast kannski við, að það fólk, sem ekki sýnir sig á kynningunum sjálfum, láti fremur sjá sig á fundum, þar sem tilhögun starfsins er ákveðin. Ætli megi ekki kallast gott, ef embættismennirnir dragnast þangað sjálfir. Þetta er ekki þó það fáránlegasta. Því að hverjir taka svo allar ákvarðanir? Væntanlega meirhluti fundargesta? Þvi fer víðs fjarri. Eftir sem áður eru öll völd i höndum deildarstjóranna þriggja og i rauninni þeirra mál, hvort þeir gefa tillögum fólks nokkurn gaum. Þessi grein er því gjörsamlega út í bláínn, mun aldrei verða fram- kvæmd og gæti engu breytt um starfsemi Lista- félagsins. Ágreiningur getur aðeins staðið um mórölsk áhrif þess að setja lagagreinar, sem ekki er kleift að framfylgja. Á fundinum 7* marz reis óliklegasta fólk úr sæti og lýsti hrifningu sinni af "opnuninni". Það kemur t.d. töluvert á óvart, að ritstýra Skólablaðsins skuli tilkynna hátíðlega, aö framvegis ætli hún sér að taka virkan þátt i starfi Listafélagsins. Því hvað hefur Inga Lára Baldvinsdóttir afrekað í þágu þess þá þrjá vetur, sem hún hefur setið í M.R. Ekki nokKurn skapaðan hlut. Þau þrjú misseri, sem ég sat í stjórn bókmenntadeildar, nætti hún á flestar kynningar, en hún reyndi hvorki að gagnrýna starf okkar opinskátt né koma með hugmyndir til úrbóta. I eina skiptið, sem leitað var eftir því af hálfu Listafélagsins að fá fasta síðu í Skólablaðinu, reyndist hún full efagirni á tilgang slíks fyrirtækis, og tókst að lokum ásamt fv. ritstýru að móðga Rebekku Sverrisdóttur, svo að hún hætti við allt aaman og þær stöllur gátu óhindrað haldið áfram að útbía blaðið í pólitískri þráhyggju sinni. Framlag hennar til umræðukvölda okkar var einkum þegjandaháttur. Það sem einna mest skemmti henni,var sú misklíð, sem i fyrra vetur drap félagið í dróma, enda var hún farin að smjatta á henni af alkunnri smekkvísi á títtnefndum skólafundi. Og síðan situr þessi litla stúlka við að skrifa langhunda í Skólablaðið um skort skólasystkinanna á félagsþroska. Vafalaust má að ýmsu finna á mínum ferli hjá Listafélaginu. En Inga Lára er þess ekki umkomin að setjast í dómarasæti yfir honum, því - eins og hún orðaði það svo snilldarlega sjálf í Editor dicit nýlega, þar sem hún m.a. fletti bfan af græðgi ákveðinna fjölskyldna (Heyr.) í æðstu embætti vor: "Engum dugar að gera enda- lausar kröfur til annara, en vera sjálfur alltaf stikk fri." Hitt hlýtur að vera misminni mitt, að hún hafi til skamms tíma álitið, að skynsam- legast væri að leggja Listafélagið niður sökum almenns áhugaleysis. Þá væri hún nefnilega farin að veifa skoðunum þveröfugum ivið þær, sem hún lét áður uppi, og slíkan vindhanahátt- eða tvöfeldni - leyfi ég mér ekki að bera upp á jafn- fluggáfaða sómakonu. Eg get aðeins óskað ■ Listafélaginu til hamingju með þennan frábæra starfskraft, sem nú fær loksins að njóta sín fyrir ofríki spilltra emhættismanna og vonað að óþrjótandi hugkvæmni hennar og bjargföst trú á málstað félagsins, megi verða því til sömu blessunar og verið hefur frá því hún tók að heiðra oss með návist sinni. Ég er búinn að eyða fullmiklu máli á "opnun" félagsins sem er meiri kjánaskapur en alvarlegur misbrestur. Þáð.'-er ákvæðið um fjárráð forseta aftur á móti. Vitaskuld gilda sömu lögmál hér innan veggja og'-í öllu þjóðfélaginu: þeir sem hafa peningana hafa völdin. Með því að afhenda forseta tékkheftið fyrir fullt og fast afsala deildarstjórn- irnar sér hættulega miklum hluta áhrifa sinna. Nú hefur forsetaembættið verið prýðilega skipað í vetur og þvi engir árekstrar átt sér stað milli embættis- manna. En svo hefur ekki alltaf verið, og kæmist í stólinn persóna sem greindi á um veigamikil atriði við deildarstjórnirnar væri henni í lófa lagið að hunsa vilja þeirra. Við slíkar aðstæður gæti forseti hæglega tekið sér hvern sem er fyrir gjaldkera-því lögin skylda hann hvergi til að velja gjaldkera úr hópi embættismanna-og farið síðan öllu sínu fram. þá er hætt við að"opni fundurinn" kæmi að litlu gagni,-nema væri til að semja vantraustsyfirlýsingu. Þó að hér sé dregin upp allsvört mynd og í augum ókunnugra e.t.v. ekki fullkomlega trúverðug skyldu menn gæta þess að drættir hennar gætu birst í miklu smærri sííl. Félagið er því orðið ólýðræðislegra en nokkru sinni fyrr, en með gömlu lögunum var þó mögu- legt að binda hendur forseta . I breytingartillögum okkar Jóhanns G. Jóhannssonar fólst einnig að fjár- málin færðust í hendur deildarstjóranna, en samkvæmt þeim áttu þeir að kjósa gjaldkera ásamt forseta. Þessu hafnaði skólafundur af vísdómi sínum. Gegn þessari tilhögun eem myndi skapa miklu eðlilegri og betii samvinnuskilyrði i félaginu sé ég engin rök, og ég skora á einhvern hinna l4j sem átti þátt í að koma ólögum þessum á ,að reyna að tína einhver slík til hér í blaðinu. Á lögum Listafélagsins er því tvískinnungur gervilýðræðis og raunverulegs afturhalds. En hvar er orsakanna að leita? Er hér fremur við skilningsskort og óvandvirkni að sakast en óheiðarleika, nema hvort tveggja sé. Rök flutningsmanna-og ég læt ekki segja mér að þeir eigi hér einir hlut að máli-voru hlægi- lega léttvæg þá sjaldan reynt var að tjalda þeim til, Hvaða ástæða var t.d. að afnema sérkjörgengi sjötta- bekkinga til forsetaembættisins? Þó að erfiðlega hafi gengið að fá mann í það í haust gefur slíkt ekkki tilefni til lagabreytingar, og auðvitað eru þeir sem kynnst hafa starfinu í þrjá vetur miklu betur undir það búnir að móta stefnu félagsins en neðribekkingar-a.m.k. ef dæma má eftir frammistöðu þeirra fjórðabekkinga sem fyllt hafa allar deildir í vetur. ðneitanlega læðist að manni sá grunur að hér sé að verki einhver hr.X sem ekki vill koma fram í dagsljósi-ð en hyggst fljótlega rnunu hafa af hreyt- ingunum. Kannski einhven úr )5.eða 4.bekk langi svo í þetta embætti að hann megi ekki vera að því að b bíða eftir að komast í ó.bekk? Og þá væri auðvitað ekk verra að hafa tangarhald á fjárhirslum félagsins. Séu þessar getgátur á rökum reistar, sem ég vona að þær séu ekki, væri hér um,að ræða svívirðilegt til- ræði við lýðræði þess vanburðuga félagslífs sem reynt er að halda við í M.R.. Það eiga menn að geta hist sem jafninjar og starfað í áátt og samlyndi að eflingu áhugamála en.ekki keppast um hver verði fyrstur upp embættisstigann. Það hafa nefnilega ýmsir mætir menn hálsbrotið sig í þeim stiga. Ég er nú samt sem áður nokkuð vongóður um að eigingjarnar hvatir ráði ekki ferðinni í þessu til- viki, og því hvet éghþá sem stóðu að lagabreytingw unni til að endurskoða hana hið bráðasta. Listafél- aginu verður að halda lifandi handa óbornum kynslóðum nemenda og það verður ekki gert með því að setja því ólög. Jón Viðar Jónsson SVAR Það er alkunna að fátt gremst mönnum meira en að sjá öðrum takast vel við verk sem þeir sjálfir hafa klúðrað. Svo fer líka Jóni Viðari sem hafði hvorki samstarfsvilja, samvinnugetu, félagsþroska né þá skaphöfn sem þarf til félagsstarfs og því urðu innanfélagsdeilur aðal starf Listafélagsins síðast liðið ár. En nú í vetur hefur hópur ungs og áhuga- sams fólks tekið forustuna í Listafélagsins og ekki bólað á neinum deilum. Það er annað en gaman fyrir Jón að horfa uppá þaðvÞví slettir hann úr klaufunum og er mér ætlaður dágóður skammtur af þeim slettum. ^Um þær lagabreytingar sem samþykktar voru á skólafundi hefur þegar verið rætt og er ég sannfærð um að þær verða félaginu til góðs. Þess vegna sþuddi ég þær. Sú grein sem ákveður að forseti stjórni fjármálum fer ákaflega í taugarnar á Jóni. en þó hefur sá háttur verið hafður á undanfarin J.ár. Því var aðeins verið að setja ákvæði um það sem þegar var orðin hefð. Eigi að tíunda öll störf sem unnin eru í þágu íélagslífdins held ég að ekki hallist á mig. MÁ ef til vill geta þess að það ár, sem Össur Skarp- héðinsson var forseti sáum við Björn Brynjólfur um flestar auglýsingar fyrir félagið. Og þau fáu skifti sem ég var beðin um að lesa á bókmennta- kynningu gerði ég það rneð ánægju og mun gera áfram sé til mín leitað. Hins vegar ráðlegg ég öllum að lesa grein Jóns Viðars gaumgæfilega því þar er meira um þversagnir og einstreninshátt í. en almennt er hjá ungu fólki. Skyldi hann hafa fæðst gamall? Eitt geta þó eflaust allir verið sammála-um eftir lestur greinar Jóns Viðars. Maðurinn hefur ekki verið nýttur sem skyldi. Hann hefði sem hægast getað skrifað Quid Novi greinar.Og þá fyrst notið sín og þá hefði ábyrgðarmaður blaðsins loksins fengið eitthvað að gera. Inga Lára Baldvinsdóttir. 6

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.