Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 13

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 13
ffiMMENN Það var í Búðum við Fáskrúðsfjörð seint á arinu 1955» að Karen leit fyrst dagsins ljós. Bernska hennar leið stórátakalaust, enda var sú tíð þá þegar liðin, er Fransmenn lónuðu og stálu rauðhærðum stúlkubörnum úr landi, þegar færi gafst. Karen gekk í gegnum allt menntakerfi heima- þorpsins, en stúderaði því næst í þrjá vetur á Eiðum, menntasetri Austfirðinga. Þar nam hún allt, sem nema má í Austfirðingafjórðungi, þ.e. lauk við 5. bekk. Nú lá leiðin frá æskustöðvunum suður til Reykjavíkur, en hér hugðist Karen nema við Kennaraskóla Islands. Það gerði hún í tvo daga, en gekk síðan á fund Guðna Guðmundssonar og æskti inngöngu i Menntaskólann í Reykjavík. Það var auðsótt mál. Eg kynntist Karenu fyrst haustið 1973, en þa'lentum við i sömu bekkjardeild, 5.-Z. Þá hafði hún tvær langar rauðar fléttur, sem hún hefur nú látið fjarlægja í tveimur áföngum. Hvellur smitandi hlátur hennar, hraustlegt útlit og hnyttin tilsvör vinna hug og hjörtu nemenda og kennara. Ösjaldan leggur hún orð i belg og kemur þá öllum í gott skap. Hún mætir alltaf klukkan átta, ýmist hold- vot eða alsnjóug,^eftir því hvernig viðrar, en auðvitað gengur hún í skólann á hverjum morgni. Það er 15 mínútna gangur; lo mínútna, ef tjörnin er lögð. Dag einn var Karen venju fremur vot, þegar hún kom í skólann. Við veltum því mörg fyrir okkur hverju það sætti. Skýringin kom strax. Það hafði reynzt ísnum á tjörninni ofviða að halda henni uppi, svo að hún hrapaði oní þennan líka sótdrulluga ískalda pytt. En Karen væflaðist ekki heim hálfvælandi, heldur lét sem ekkert hefði i skorizt og stundaði nám þennan dag af sömu hörku og aðra daga. Hispursleysi og óþvinguð framkoma Karenar eru flestum kunn. Eg kann að segja af henni tvær sögur, sem sanna, að tepruskapur og tildur eru henni jafnfjarlæg og hómelíur fjandanum. Haust '73; sunnudagur. Það var blíðskapar- veður í Reykjavík. Góð- smá- og broddborgarar fóru í göngutúr og önduðu með nefinu. Þeir komu flestir við i ísbúðinni og keyptu^ís, því að það tilheyrir slíkum göngutúrum. I tvílyftu steinhúsi við Kvisthaga sat Karen í röndóttum náttkjól. Hún var með skaddað viðbein eftir stór- karlaleg átök við kynsystur sínar í blakbolta og þurfti nú að hafa hægt um sig á meðan beinið greri. Nú horfði hún löngunaraugum út að ís- búðinni, þar sem borgararnir gengu um með sælu- svip, smjattandi á Ijúffengu ísdeiginu. Karen gat ekki s,kipt um klæðnað vegna meidda beinsins, né heldur gat hún sent neinn fyrir sig í ís-^ búðina, þar sem hún var ein heima. En af því að Karenu langaði í ís, þá fékk hún sér is. Hún skokkaði léttfætt á röndóttum náttkjólnum, og með hendina í fatla, út í sólina. Hégómasálir glottu illgirnislega, er þeir börðu þetta einhenta rauðhærða fyrirbrigði á náttkjólnum augum. Isinn, þetta grautlina efni, stóð í smá- borgurunum eins og fiskbein. Karen brosti glaðlega, bauð góðan dag, og hélt svo heim á leið með ísinn. Hávetur 1974; fimmtudagur. Norðanstrekkingur og eilítið frost. Það var lokakvöld mælskunámskeiðs Framtíðar- innar, og þátttakendur héldu misgóðar tæki- færisræður, og gæddur sér á ýmiss konar góðgæti. Karen kvað sína ræðu ekki eiga við, þar sem hún færi hátíðarræða í orðsins fyllstu merkingu, sem sagt sjómannadagsræða, og hana yrði að flytja i réttu umhverfi. Talsverðar bollaleggingar urðu um heppilegan stað, en Karen sættist^á Austurstræti, af því að þar væri fleira fólk en við höfnina. Eftir fundinn röltu allir niður i Austurstræti með afganginn af veitingunum, sem var gefinn vegfarendum. Við Reykjavikur- apótek er tengikassi Landssímans, u.þ.b. metri á hæð. Karen stökk upp á hann og hélt ærumandi ræðu um sjómenn. Ræðan var ljóðræn og hvell rödd Karenar yfirgnæfði norðanvindinn og. fyllti Austurstrætið. Fjölmargir vegfarendur stöðvuðu, störðu á Karenu og hlustuðu. "Hver er þetta," spurði fólkið. "Karen", var svarið og það virtist fullnægjandi. Éinn hífaður sjóari skildi ekki lofsönginn til sín og gekk leiðar sinnar,^hristi hausinn, tautandi: "stjórnmál, stjórnmál." 3o manns hlýddu á mál Karenar og klöppuðu feikilega, bæði á hápunktum ræðunnar og eftir hana. Familía Karenar býr á Fáskrúðsfirði, og þar á fCaren heima. Vitanlega kostar ógrynni fjár að búa svo fjarri heimili sínu, en Karen stendur straum af þeim kostnaði að mestu leyti sjálf. Því ákvað hún í haust að fá sér vinnu til að auð- velda sér að kljúfa fjárhagsmálin. Hún sá stöðu senumanns i Iðnó auglýsta. Hún fór þegar-og bað um vinnu. "Tja," sagði viðmælandi hennar. "Ég veit ekki hvað segja skal, það hefur bara aldrei verið kvenmaður i þessu starfi áður. Þetta er talsvert erfitt, eða hefurðu unnið eitthvað í líkingu við þetta áðurí" Karen svaraði: "1 sumar var ég kokkur á Hoffellinu. Við vorum á trolli við Ingólfshöfða, en í fyrrasumar var ég flokksstjóri í læejarvinnunni að Búðum á daginn, en vann í byggingavinnu hjá hreppnum á kvöldin. Þegar teejarvinnunni lauk, málaði ég Kaupfélagið að utan, og síðan...." Hún var ráðin samstundis. Afskipti Karenar af félagsmálum eru öllum kunn. I fyrravetur var hún manna hressust í stjórn Iþróttafélagsins hér í skóla, en i vetur heldur hún lífi í 6tu bekkjarráði. Karen er námsmaður góður og hverjum manni áreiðanlegri og samvizkusamari. Um hana hefur þó^ aldrei verið sagt, og mun aldrei verða sagt, að hún sé kúristi eða kennaralepja, þar sem hún er flestú víðsýnhi og sprækari. Megi hún alltaf þrífast. Fjórum dægrum eftir Krossmessu á vori árið 1955 heyrðist ógurlegt öskur á bæ einum £ Borgarfirði, nánar tiltekið að Mið-Fossum í Andakil. Urðu mýs, sem voru þar að starfa sínum eins og venjulega, svo ofboðslega hræddar að þær hurfu af vettvangi í einum vetfangi og hafa aldrei sést þar síðan. Komu þessi óhljóð úr hálsi drengs nokkurs, sem var að líta dag- sins ljós í fyrsta sinni. Var stuttu seinna sullað á hann lindarvatni og fékk hann nafnið Pétur. En keffið gaf honum nafnnúmerið 7122-0672. Öx hann brátt upp úr snarrótarpuntstráunum á bæjarhólnum.á Mið-Possum. Lék hann sér ekki að hor hornum, leggjum og skeljum eins og títt er með börn á hans aldri. Gerðist hann baldinn og elti hænsfugla föður síns, kleip hundinn i trýnið svo hann ýlfraði og henti kettinum í bæjarlækinn. Var hann með alls konar óknytti við vegfarendur, sem áttu leið um Fékkst þú þér TROPICANA ■ i morgun? SÓLHF 26300 er hann við eina fjölina felldur. H^fur hann áhuga á stjórmálum og skammar auðvaldshunda og hersjónvarps- sinna miskunnarlaust á síðum Moggans. Hann skilgreinir stöðu sína í íslenzkum stjórnmálum vel og skilmerki- lega og betur en flestir aðrir stjórnmálamenn. Er hann "frjálslyndur félagshyggjumaður í anda jafnaðar og samvinnu". Gerðist hann þess vegna miðstjórnarmaður Frjálslyndaflokksins, sem síðar dó. Eftir jarðarför flokksins, sem lofsungin var fyrir stuttu við hátíð- lega athöfn, tók Pétur þá ákvörðun að verða prestur og hyggst næst jarða Samtök frjálslyndra og vinstri manna og því næst Alþýðuflokkinn. I útliti, yfirliti, tilliti, niðurliti, uppliti, eftirliti, innliti, andliti og áliti er Pétur einna virðulegasti menntaskólaneminn. Gengur hann úm í rauðköflóttum jakka, sem stingur í augun og gefur fornköppum vorum í íslendingasögunum ekkert eftir í litadýrð, hvað snertir annan fatnað. En virðulegastur er hann fyrir kollvikin sín, enda notar hann""sampoo for bold hair" made in Coop fabrik ude paa landet., Verður hann trúlega snemma ráðsettur maður í þjóðlífi Islendinga og skipar þar mikilvægan sess. Og bezt væri fyrir hann að fá sér háttsetta stúlku 1 skólanum Yrði það trúlega Ragnheiður Bragadóttir, þar sem hún fetar upp stigann í inspeotor. Pétur héfur hann aflað sér fjölda vina með glaðlyndi sínu og góðvilja, og er hann vinur vina sinna. Ef einhverjir eru hindurvitnatrúar, sem vilja kanna þessa undirfurðulegu mannkind betur samkVæmt stjörnu- spá, þá er hann í nautinu, mánaðarsteinn hans er hlaðið á Mið-Fossum. Kvað svo rammt að þessu, að fólk tók stóran sveig frá bænum. Og varð að lokum að færa veginn burt frá bænum til þess að fólk gæti óáreitt farið leiðar sinnar um sveitina án þess að eiga á hættu að lenda í einhvers konar gildru á hlaðinu eða forðast grjótkast stráksins. Sá faðir hans, að við svo búið mátti ekki standa til lengdar, ef næst ætti ekki að heimta varnargarð í kringum landareign Mið-Fossa. Brá hann búi, er sjrákur hafði tug og gerðist grunnskólakennari á K eppjárnsreykjum í Reykholtsdal Þó settist hann ekki áð á sjálfum staðnum, vegna hræðslu um að hann fengi ekki að dvelja þar til lang- frama, ef strákurinn yrði þar. Holaði hann sér niður - - - , . . á bæ einum innan seilingar frá Kleppjárnsreykjum, sem smargaður og blóm manaðarins eru liljur vallarins. heitir Hamrar. En ekki hafði strákur lengi verið í skóla, þegar tekið var að nefna Kleppjárnsreykji Klepp, vegna óláta hans þar. Helzt fékk hann útrás þar í fót- knattleik í skólanum. Öð hann þá um túnskækilinn eins og naut 1 flagi. Kunni hann sér ekki hóf í hita le'ik- sins. Og lá þá oft við meiðingum. En mótherjum hans vildi það til happs, að hann var ævinlega í Coop- gúmmistígvélum, þannig að meiðingarnar urðu oft minni en á horfðist í fyrstu. Lá leið.hans síðan frá Kleppi að Héraðsskólanum í Reykholti í landspróf. Þar var hann settur í herbergi með járnbentum rúmum i. En þó var það eigi talið í- búðarhæft veturinn eftir og hefur það staðið autt síðan. Svo mikil voru kennimerki hans. á því. Þaðan lá leið hans í höfuðstaðinn í M.R. Var hann þá fullkomlega saklaus sveitapiltur;., þegar þangað kom, þótt sitthvað hafi hann nú lært síðan. Hafði hann hægt um sig fyrsta veturinn en næsta vetur tók að bera meira á honum 1 félagslífinu. Varð hann þá Ráðs- maður Dreifbýlisfélagsins og hefur gengt því embætti síðan. Hefur hann ötullega stutt að málefnum þess, ritað í flest skólablöð í D.B.F. síðuna og kynnt D. B.F. á hverjum 3.bekkjarkynningarfundi, þannig að sér hver ætti að vita, hver hann er og hefur hann það fram yfir aðra framafóla-í félagslífinu. En ekki 13

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.