Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 15

Skólablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 15
Hvað er það, sem laðar nemendur að þáttöku í félagslífi? Við erum jú hér til að stunda nám og það eitt ætti að vera hverjum manni nægt verkefni. En þó er það svo að árlega ver hópur fólks tíma sínum til félagsstarfs, enda þótt það bitni á námi og aðaleinkunnin verði drjúgum lægri en ella. Eitthvað hlýtur að liggja að baki en hvað? Almenni nemandinn kallar það "framagirnd", og nú er svo komið að hver sá sem tekur þátt í félagslífinu Ifær þennan mjög svo neikvæða stimpil. En málið er víst ekki svona einfalt. Þörf fólks á félagslegum samskiptum er misjafnlega rík. Meðan við stundum nám í þessum skóla er hann okkar litla þjóðfélag. Það er okkar að gera það fjölbreytt, skemmtilegt og ánægjulegt eða ekki. Bregð- umst við þeirri skyldu að gera okkar bezta til að svo megi verða erum við lítils megnug þegar lengra er haldið Það segir sig sjálft, að þeir, sem taka þátt'í félags- lífi hafa að því mikið gagn og gaman, það eykur þboska þeirra, skilhing þeirra á viðhorfum annarra og hæfni þeirra til að samlaga ólík sjónarmið. Þar5 kynnist maður fólki og viðhorfum þess og starfar, ekki einn og sér heldur með hóp að ákveðnu-'verkefni. Hópvinna gefur fólki meira vegna þess að það er hvort tveggja í senn veitandi og þiggjandi. Því er eðlilegt að félagslífið grípi þá, sem á annað borð gefa sig að því slíkum tökum, að fé- lagslífsþátttakan verður brátt aðalstarf, en námið kvöð, sem stunduð er af illri nauðsyn. Því öll skoðanaskipti og hvers konar starf eru af mjög skornum skammti í hinni almennu kennslu. Það er ekki unnið að góðum árangri heildarinnar heldur einstaklingsins. Enda er hópur á- meðál okkar, svokallaðir samvizkusamir nemendur, sem er^slíkar afætur að það getur engum miðlað af sínu starfi og mun aldrei vera til samvinnu fallið á neinum vettvangi. Þetta fólk verður elífur þiggjandi í öllum þjófélögum. Eins og útgáfu blaðsins er nú háttað er starfið að mestu fólgið í uppsetningu, leit að hothæfum myndum, fyrirsagnagerð að ógleymdri vélritun. Þeir,sem fást við gerð auglýsinga, myndabæklinga, bókagerðarmenn og prent- listargerðarmenn læra þetta í mörg ár í fagskólum. En við erum að bauka við þessa blaðaútgáfu án þess að hafa lært svo mikið sem teikningu í þessum skóla. Hvað þá neinu sem viðkemur formum, • upprö'ðun, -leturgerð eða öðru, sem viðkemur sjónmennt. Og er það þó ríkur þáttur í dag- legu lífi okkar allra. Samstarfsmönnum mínum'í ritnefnd og utan, í skóla og utan þakka ég o.g vona að þau eins og ég hafi haft nokkra ánægju af. Oft hefur þetta verið þungur róður og ekki alltaf jafn margir setið undir árum . En það var þó vel þess virði. ÞVí vil ég að endingu óskamýrri ritnefnd^velfarnaðar, að hún haldi hópinn' og vinni saman, fai sem flesta til liðs við sig í jákvæðu starfi að skólayfirvöld öðlist þann skilning og þroska, að þau noti skólablaðið, sem virkt og lifandi kennslutæki. Blaðinu sjálfu óska ég langra lífdaga og áhugasamra s t'j ó rnenda, Inga Lára Baldvinsdóttir. LANCÖME Snyrtivórur í se'rflokki frá PARIS Það er nýja pillan frá Nóa sem eyku.r áriægjuna Flestir fá sér tvær LEI SZðCBD Ipif \j wuö □ VIMNUEATABÚÐIW. Laugavegi 76 Síml I5Í25 Hvefisgötu 26 sími 28550 8 70012-4 BLOMASTOFA FRIÐFINNS Suðurlandsbraut 10. Sími 31099 SKREYTINGAR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI. — GJAFAVÖRUR I ÚRVALI. 15

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.