Fiskifréttir - 06.06.1986, Page 2
2
Aflabrögðin
Ságuli
áberandi
fyrír austan
Ekki brugðust tíðindamenn
Fiskifrétta þegar leitað var eftir
aflatölum á mánudaginn var þrátt
fyrir að kosningatölur væru enn
ofarlega í hugum þeirra. Víðast
hvar um landið fór veður batn-
andi og á Austíjörðum var einstök
veðurblíða sem jaðraði við
„Mæjorkaveður41 eins og komist
var að orði. Enn er það er sá guli
sem kætir Austfirðinga en þar hef-
ur verið mjög góður þorskafli að
undanförnu. Hólmatindur land-
aði 27. maí 170 tonnum en þar af
voru 130 tonn þorskur og Gull-
bergið landaði 164 tonnum og þar
af voru 122 tonn þorskur. Eitt-
hvað mun þorskurinn vera farinn
að gera vart við sig á Vestfjörðum
þrátt fyrir að grálúðan sé þar enn
allsráðandi. Veðurguðirnir voru
Vestfirðingum hliðhollari en oft
áður en þrátt fyrir það var afli
smærri báta fremur rýr. Margir
netabátar eru nú búnir að draga
upp og hættir en fara síðar á
rækju. Humarvertíðin hefur farið
vel af stað og hafa Vestmanneyja-
bátar fengið mikinn og góðan
humar. Rækjuveiðar frá Grinda-
vík líta mjög vel út.
Vestmannaeyjar
Veður og veiði hafa verið góð
við Vestmannaeyjar í síðustu viku
og virðist humarvertíðin ætla að
vera góð. Draupnir var með 3,7
tonn af humri eftir vikuna sem
verður að teljast gott sunnan-
lands. Að auki voru fimm bátar
sem lönduðu humri í seinustu
viku og komu þeir með frá 400 kg
upp í 1200 kg eftir einn til tvo
daga. Heildaraflinn eftir vikuna
var: Ófeigur 1,7 tonn, Ófeigur II
1,5 tn, Skúli fógeti 1,4 tn, And-
vari 1,4 tn og Sigurbára 1,1 tonn.
Þeir togarar sem lönduðu voru:
Sindri með 113 tonn, Halkion
98.1, Breki 191.3, Bergey 68,7,
Gideon 96 og Suðurey með 44
tonn í net eftir tvær lagnir.
Suðvesturland
Grindavík: Gott veður hefur
verið alla vikuna í Grindavík og
hafa 15 bátar landað 33 tonnum
af humri sem er þokkaleg veiði.
Hver bátur hefur komið með
1200-1600 kg að landi sem telst
gott sunnanlands. Máni kom með
mestan afla af humarskottum eða
2,3 tonn síðan Harpa og Garðar
með sín 2 tonnin hvor. Rækju-
veiðar eru að hefjast og komu
tveir bátar af Eldeyjarsvæðinu,
Sigurþór með 6 tonn og lítill
bátur, Freyr, með 2,4 tonn, báð-
ir úr einum róðri. Kefla-
vík: Lítið hefur verið róið út
frá Keflavík og eru flestir hættir á
netum. Jóhann Jónsson kom með
12,4 tonn, Ólafur 2,3 og Vonin
45.2 tonn. Er þetta allt í 3 löndun-
um og uppistaðan er þorskur.
Binni í Gröf landaði 2,2 tonnum
af humri og Þröstur 1,5 af humri.
Dræmt hefur verið hjá trillubát-
um og hafa þeir verið með 200 kg
upp í tonn af þorski. Tværtogara-
landanir voru í Keflavík og land-
aði Aðalvík 124 tonnum 26.maí
eftir 10 daga veiðitúr. Uppistaðan
var grálúða eða 101,5 tonn,
þorskurl0,5 tonn, karfi 6,5 og ufsi
3.7 tonn. Bergvík landaði 152
tonnum 30.maí en hún fór út 22
maí. Uppistaðan var grálúða
135.5 tonn og 12 tonn af karfa.
Sandgerði: Tveir trollbátar lönd-
uðu í Sandgerði þeir Geir goði
með 16,9 og Elliði 41,2 tonn og
var fiskurinn mjög blandaður.
Humarvertíðin er sæmileg og hafa
5 bátar landað allt að 1,5 tonnum
af humarskottum eftir 2-4 daga
úti. Lélegt hefur verið hjá netabát-
um og hafa þeir fengið frá 2 tonn-
um upp í 5 tonn eftir 2 daga.
Heildarafli vikunnar hjá einstaka
bátum var:Þorkell 5,5 tonn, Júlía
8,4, Guðfinnur 14,6 og Ragnar
19.7 tonn. Á handfæraveiðum var
Birgir með 3 tonn, Hrefna 4,4 í
tveimur róðrum og Bolli 1,9 tonn.
Sigurjón Arnlaugsson var á línu
og fékk 28,3 tonn. Á dragnót var
Reykjaborg með 23,2, Farsæll
18.5 og Arnar4,9 tonn. Togarinn
Sveinn Jónsson landaði 26.maí
tæplega 140 tonnum eftir 10 daga
túr og var karfi 50 tonn og þorsk-
ur 12 tonn. Þorlákshöfn: Lítið
hefur verið fiskað og var heildar
bolfiskafli 97,950 kg. í net var
52.3 tonn, handfærabátar með
13,1, humarbátar 14,5 og drag-
nótabátar með 18,0 tonn. 22
heimabátar eru á humarveiðum
og fengu þeir samtals 47 tonn og
humarinn frekar góður en ekki
SKlNi OGr SKÚRIR Vl€> SJ^VPRSÍÐUNH
mjög stór. Hafnarfjörður: í Hafn-
afirði eru flestir bátar komnir á
færi og þeir stóru hættir í bili. Sæ-
tindur kom með 2.0 tonn, Þor-
valdur 1,3, Búi 800 kg, Fengsæll
300 kg, Svanur 1,1 tn, Valdi 1400
kg, Faxaberg 4,6 tn, Anna 200 kg,
Haukur 500 kg, Neptúnus 700 kg,
Fróði 500 kg, Hjörvar 550 kg,
Viktoría 300 kg, Inga 500 kg, Páll
Jónsson 400 kg og Dreki 10,4
tonn og var uppistaðan ýsa eða
8,1 tn. Togbáturinn Einir landaði
41,4 tonni og var ufsi þar 16,6
tonn. Víðir 66,3 tonn og þar af
vargrálúða 20,1 tonn. Reykjavík:
26.maí landaði togarinn Jón
Baldvinsson 118 tonnum eftir 12
daga túr. Heildarverðmæti aflans
var 1.933.106 kr. Uppistaðan var
grálúða, ufsi og karfi. Ásþór land-
aði 6 tonnum 26.maí eftir tveggja
daga veiði en upp kom bilun í tog-
aranum . Heildarverðmæti aflans
var 147.000 kr. og uppistaðan
þorskur og karfi. Otto N. Þorláks-
son landaði 188 tonnum 27.maí
eftir 11 daga veiðitúr. Heildarafli
var 2.843.740 kr. Uppistaðan var
grálúða og karfi. Engey landaði
26.maí 168 tonnum eftir 11 daga
túr. Uppistaðan var grálúða eða
107 tonn, karfi var 31 tonn og
þorskur 21 tonn. Ögri landaði eft-
ir 14 daga túr 278,3 tonnum.
Uppistaða aflans var grálúða eða
251 tonn og fór 97% hennar í
fyrsta fiokk. Eftirtaldir netabátar
lönduðu í Reykjavík: Rúna 24,4
tonn, Valur 3,9, Anna 6,9, Gull-
toppur 23,4, Fossberg 9,8, Diddó
8,8, Sigrún 3,6, Jón Helgason 5,6,
Eyrún 3,4, Ágúst 1,5, Stakksnes
1,2, Auðbjörg 16,4 og Grunnvík-
ingur22,l. Togbáturinn Stokksey
landaði 91,8 tonnum, Farsæll 8,6,
Freyja 14,8 ogGeirl9,4 tonnum.
Vesturland
Akranes: Þrír togarar lönduðu
á Akranesi í síðustu viku: Höfða-
vík landaði 174 tonnum eftir 9
daga á veiðum. Skipaskagi 63
tonnum eftir 6 daga og Sturlaugur
H. Böðvarsson 190 tonnum eftir 8
daga. Þetta er ágætis afli og grá-
lúða meiri hluti aflans. Lítið hefur
gefið á sjó og smábátar hafa ekki
róið. Rif Þokkaleg veiði hefur ver-
ið á Rifi og er mest allt þorskur
sem í net hefur veiðst, svolítið
ýsublandað. Á línu er það aðal-
lega steinbítur, koli og ýsa.
Þokkalegt veður hefur verið alla
vikuna og gefið hefur á sjó alla
dagana. Fáir eru á skaki. Eftir-
taldir bátar voru á netaveiðum:
Fúsi 3,8 tonn, Hrappur 2,1 Valdís
8,3, Doddi 4,7, Bjarmi 160 kg og
Esjar 7,7 tn. Sævaldur var á línu
með 2,3. Á handfæraveiðum voru
: Guðjón 1,0, Bliki 1,4, Sikill 1,0,
Kári 4,2, Mjaldur 1,7, Sigurvin
I, 1, Klukkutindur2,4 og Már810
kg. Leo var á iínu og fékk 730 kg,
Hafsteinn var á rækjutrolli með
460 kg og Saxhamar með 8,8 tn
og á línu var Hafnatindur 3,6 tn
og Guðrún Ágústdóttir 8,6 tonn.
Ólafsvík: Á dragnót voru Auð-
björg og fékk hún 28 tonn, Auð-
björg II 24 tonn og Gulltoppur 14
tonn. Á netaveiðum voru Jón
Guðmundsson með 5 tonn, Auð-
unn 800 kg, Hafliði 1500 kg og
Pétur Jacop 10 tonn. Fremur lítið
hefur verið af rækju en Skálavík
kom með 2,1 tonn, Halldór Jóns-
son 2,3, Jón Jónsson 4,5, Stein-
unn 5,5, Matthildur 2,7 Kristján
S 1700 kg, Magnús 420 kg og
Lómur 5,5 tonn. Grundafjörður:
Runólfur landaði 120 tonnum og
var uppistaðan grálúða. Á rækju-
trolli fóru eftirtaldir bátar 2 veiði-
ferðir og fór allt í fyrsta flokk og
aðeins 2-3 % í úrgang. Fanney
17,1 tonn, Sóley 6,1, Grundfirð-
ingur II 7,4 og Grundfirðingur SH
6,3 tonn. Stykkishólmur: Aðal
fréttir frá Stykkishólmi eru afla-
leysi. Fimm bátar hafa byrjað á
rækju en sökum gæftaleysis er afli
rýr og lélegur.
Vestfirðir
I síðústu viku viðraði mun bet-
ur til fiskveiða miðað við undan-
farnar vikur og komust bátarnir
flesta daga á sjó.
Patreksfjörður: Þar hafa smá-
bátar aflað sæmilega miðað við
gæftir. Smári hafði 20 tonn yfir
vikuna. Tálknafjörður: Tálknfirð-
ingur landaði 185 tonnum þann
30. maí eftir viku v.eiðar og var sá
afli aðallega grálúða. Jón Júlí
landaði 4,9 tonnum úr þremur
sjóferðum, María Júlía 16,5 úr
fjórum og Siggi Bjarna 3,8 úr
þremur ferðum. Allir þessir bátar
fengu aflann í snurvoð. Minni
bátarnir sem stunda skak og
handfæraveiðar gerðu það ágætt í
vikunni, Frigg kom með 5,7 tonn
úr tveimur ferðum, Guðmundur
Guðmundsson 1,7 eftir eina ferð
og Hringur 695 kg. einnig úr einni
ferð. Bíldudalur: Sölvi Bjarnason
kom með 115 tonn þann 31. maí
eftir 6 daga og skiptist sá afli í grá-
lúðu og karfa. Nokkrir smábátar
eru nú byrjaðir veiðar og aðrir að
gera sig klára. Þingeyri: Sléttanes-
ið landaði 76,1 tonni þann 27.
maí og var sá afli aðallega grá-
lúða. Þrátt fyrir fremur rysjótt
veðurfar lönduðu nokkrir bátar
afla: Gísli Páll 1,7 , Guðbjörg
Kristín 1,2 , Hrönn 0,5 , Máni
160 kg., Sigurfari 300 kg. Funi
FRÉTTIR
Útgefandi:
Frjálst framtak hf.
Reykjavik
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur:
Guðjón Einarsson
Blaðamaöur: Eiríkur S. Eiríksson
RÍtstjórn:Ármúla38,
sími: 685380
Auglýsingastjóri:
HildurKjartansdóttir
Auglýsingar, áskrift og
innheimta:
Ármúla 18, simi 82300.
Pósthólf 8820
128 Reykjavik.
Setning og prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar
Áskriftarverð: 1.130 kr.
Jan,—april innanlands.
Hvert tölublað i áskrift: 67,80 kr.
Lausasöluverð: 79 kr.